bæklaðir gúbbí

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
svana
Posts: 9
Joined: 16 Oct 2010, 18:55

bæklaðir gúbbí

Post by svana »

er með slatta af gúbbí fiskum og öðru hvoru koma beyglaðir fiskar. ?
Núna er einn með alveg bogið bak ? hvað getur mögulega verið að? stundum eru fiskarnir með mjög ljótann sporð, alveg samankreptur eða jafnvel rifnir... hvað á ég að gera?

Kv. svana
User avatar
plantan
Posts: 140
Joined: 17 Nov 2009, 22:02
Location: Reykjavík
Contact:

Post by plantan »

Farga þeim sem eru gallaðir og ljótir til að koma veg fyrir að þeir fjölgi sér..
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

þetta tengist kalk og D vitamín skorti, jafnvel nitrit eitrun meðan þeir eru ungir.
Farga ljótum fiskum strax.
Gefa fiskunum gott grænfóður og hafa vatnið gott og 25 gráður.
Mæli með grænfóðrinu sem heitir Tetra Pro Vegetable.
Mæli með að kaupa það hjá Varginum :wink:
kiktu hér

Ef fiskar eru með samankrepptan sporð, þá er eitthvað að.
Hefuru séð einhverja bletti á fiskunum?
Hvíta litla bletti eða gulleita litla bletti?
Hröð, óeðlileg öndun?
Minni matarlist?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
svana
Posts: 9
Joined: 16 Oct 2010, 18:55

Post by svana »

:( ég sé enga bletti, en nokkrir eru með sporðinn saman krepptann og maginn virðist einnig vera að dragast inn á nokkrum. núna er einnig stór fiskur í búrinu að drepast, svona appelsínugulur,röndótt ryksuga. á ég ekki bara að taka búrið alveg í gegn og farga þeim sem eru gallaðir. Hvernig er annars best að farga fiskum, hef ekki gert það áður. nema þegar þeir eru hálfdauðir þá sturta ég þeim niður ?
svana
Posts: 9
Joined: 16 Oct 2010, 18:55

Post by svana »

ég er að gefa þetta fóður sem er skrifað hér fyrir ofan... hvað er nitrit eitrun?
hitastigið er í kring um 25 og mjög góð dæla.....
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

svana wrote:ég er að gefa þetta fóður sem er skrifað hér fyrir ofan... hvað er nitrit eitrun?
hitastigið er í kring um 25 og mjög góð dæla.....
Hér er ágætis grein um nitur hringrásina.

http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=7003
Post Reply