Engin ljós

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Engin ljós

Post by Piranhinn »

Er búinn að kaupa nýja peru og prufa 4 nýja startara, hvað gæti verið
að klikka? Ég er alveg lost?
Last edited by Piranhinn on 30 Mar 2008, 20:27, edited 1 time in total.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

klóin ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

nei klóin er fín, var að athuga það áðan, getur verið e-ð annað sem er að klikka?
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Eru startararnir nógu stórir fyrir peruna? eða getur verið að Ballestin sé úrbrædd? snýr peran rétt? eða er Lekaliðinn farinn?
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

animal wrote:Eru startararnir nógu stórir fyrir peruna? eða getur verið að Ballestin sé úrbrædd? snýr peran rétt? eða er Lekaliðinn farinn?
Hvernig snýr peran rétt? Ég hef ekkert kynnt mér þetta?
Hvernig get ég athugað meira en ég hef gert nú þegar?
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

Og hvað get ég gert til að athuga ballestina? :/
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Piranhinn wrote:
animal wrote:Eru startararnir nógu stórir fyrir peruna? eða getur verið að Ballestin sé úrbrædd? snýr peran rétt? eða er Lekaliðinn farinn?
Hvernig snýr peran rétt? Ég hef ekkert kynnt mér þetta?
Hvernig get ég athugað meira en ég hef gert nú þegar?

Sorry, þetta með peruna og lekaliðann var glens ( getur ekki snúið nema rétt ef að eru bara 2 plögg). Ef þetta er ballestin þá þarf að mæla hana.
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Myndi ekkert fara flækja þetta með mælingum strax, prófaðu að setja gömlu perurnar aftur í lampann og sjá hvort hann virki með þeim

Ef svo er þá eru miklar líkur á því að peran sem þú fékkst sé bara einfaldlega ekki að standa sig í stykkinu eða hentar ekki þessum tiltekna lampa :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

já ég prufaði gömlu peruna með nýju störturunum, það virkaði ekki.
En ég hallast að því að gamla sé ónýt og peran sem ég keypti passi ekki fyrir unitið, var búinn að spá í hvort að það gæti verið.
Og þetta með að snúa perunni rétt: Þá var ég að hugsa þetta: "Ekki er maðurinn að meina þetta?!" haha :lol:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Er þetta eitthvað spes ljós, af hverju ætti nýja peran ekki að passa fyrir unitið, er hún ekki sama stærð ?
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

Vargur wrote:Er þetta eitthvað spes ljós, af hverju ætti nýja peran ekki að passa fyrir unitið, er hún ekki sama stærð ?
Hún er sama lengd en ég er ekki viss um að hún sé með sömu watt stærð.
Og það var það sem ég var að spá, af hverju get ég ekki fengið mér peru með aðra watt tölu í þetta unit? Þetta er, eins og fransmaðurinn myndi segja, trés bisarre!? :/
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Piranhinn wrote:
Vargur wrote:Er þetta eitthvað spes ljós, af hverju ætti nýja peran ekki að passa fyrir unitið, er hún ekki sama stærð ?
Hún er sama lengd en ég er ekki viss um að hún sé með sömu watt stærð.
Og það var það sem ég var að spá, af hverju get ég ekki fengið mér peru með aðra watt tölu í þetta unit? Þetta er, eins og fransmaðurinn myndi segja, trés bisarre!? :/
Vegna þess að ballestin er bara gefin upp til að gefa frá sér x mörg wött, og ef þau eru of mörg eða of fá, þá annaðhvort er ekki nægur kraftur eða of mikill (peran springur)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Er ekki bara málið að tölta í Byko og ná sér í ódýra peru í söma watta stærð og sú gamla og prófa.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Virkaði gamla peran í þessum lampa áður ef þú settir þessa nýu í lampann ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Re: Engin ljós :(

Post by Hrafnkell »

Piranhinn wrote:Er búinn að kaupa nýja peru og prufa 4 nýja startara, hvað gæti verið
að klikka? Ég er alveg lost?
Rofinn á snúrunni sem þú ert búinn að gleyma og er undir skáp.
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

Squinchy wrote:Virkaði gamla peran í þessum lampa áður ef þú settir þessa nýu í lampann ?
Jájá, gamla peran virkaði. Svo hætti hún að virka, þannig að ég keypti
peru og startara og það virkar hvorug peran. Ætla að láta reyna á það að kaupa aðra peru með sömu watt stærð og gamla (60w að ég held) og athuga hvað gerist út frá því.

Nú ef að þetta virkar ekki, sem kemur í ljós á morgun, hvar fæ ég þá nýtt perustæði? :)
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

jæja ég er alveg að gefast upp núna, hvernig redda ég mér ljósum?
Bögg.is
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Víst að gamla peran er hætt að virka þá hefur ballestið líklegast farið, ef þú átt Volt mælir getur þú prufað að setja hann á skautin í perustæðinu og séð hvað gerist, en annars sé ég þetta tækifæri til að hreinsa allan T8 búnað úr lokinu og koma T5 fyrir :)

Er þetta verksmiðju framleit Búr/lok ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

Squinchy wrote:Víst að gamla peran er hætt að virka þá hefur ballestið líklegast farið, ef þú átt Volt mælir getur þú prufað að setja hann á skautin í perustæðinu og séð hvað gerist, en annars sé ég þetta tækifæri til að hreinsa allan T8 búnað úr lokinu og koma T5 fyrir :)

Er þetta verksmiðju framleit Búr/lok ?
Já, verksmiðjuframleitt "junk". :)
Hvar get ég nálgast svona T5 stæður á sanngjörnu verði og
hvað eru svoleiðis kvikindi að kosta cirka?
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Ljós

Post by malawi feðgar »

Flurlambar í Hafnarfirði eru með þetta fyrir ekki svo mikið. Hér er númerið þeirra 555-4060 hringdu bara og spurðu þá
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Post by Hrafnkell »

Piranhinn wrote: Hvar get ég nálgast svona T5 stæður á sanngjörnu verði og
hvað eru svoleiðis kvikindi að kosta cirka?
Passaðu að kaupa T5 High Output útgáfuna. Annars er enginn ávinningur af því að fara í T5.

Flúrlampar selja íhlutina sem þú þarft til að gera þetta. Treystirðu þér til að víra þetta upp sjálfur svo ekki skapist hætta af?

Annars færðu í fiskabúðum búnað til að tengja ljós sem er meira "plug and play" en er auðvitað dýrari.

Ballest fyrir 2 T5 HO ætti að vera á rúmlega 2þús, endafatningar á 250kr stykkið, peran á 1000kr stykkið. Íhlutir í þetta fyrir 2 T5 HO perur ættu að vera því á 2000+2x1000+4x250 = 5000kr með perum.
Það krefst þess auðvitað að þú treystir þér að smíða þetta.
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

Hrafnkell wrote:
Piranhinn wrote: Hvar get ég nálgast svona T5 stæður á sanngjörnu verði og
hvað eru svoleiðis kvikindi að kosta cirka?
Passaðu að kaupa T5 High Output útgáfuna. Annars er enginn ávinningur af því að fara í T5.

Flúrlampar selja íhlutina sem þú þarft til að gera þetta. Treystirðu þér til að víra þetta upp sjálfur svo ekki skapist hætta af?

Annars færðu í fiskabúðum búnað til að tengja ljós sem er meira "plug and play" en er auðvitað dýrari.

Ballest fyrir 2 T5 HO ætti að vera á rúmlega 2þús, endafatningar á 250kr stykkið, peran á 1000kr stykkið. Íhlutir í þetta fyrir 2 T5 HO perur ættu að vera því á 2000+2x1000+4x250 = 5000kr með perum.
Það krefst þess auðvitað að þú treystir þér að smíða þetta.
Ég treysti mér fullkomlega til að ganga þannig frá þessu að það
slái ekki saman í þessu, þess vegna er ég svo pirraður að
geta ekki fundið hvað er að þessari ballest sem að er í búrinu núna, af því að ég hef alveg skilning á tengingunum. Watt talan er e-ð sem að maður
ætti að pæla í en ég hélt að það væri bundið við lengdina á perunum?
Watt aukast við lengri perur, að jafnaði. Það bara gerist ekkert í þessari ballest sem er núna, er með réttan startara (miðað við Watt) og bara ekki rass? Einhver fræðingur til í að ganga í málið? :)
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Post by Hrafnkell »

Piranhinn wrote:Watt talan er e-ð sem að maður
ætti að pæla í en ég hélt að það væri bundið við lengdina á perunum?
Í T5 er hver pera til í 2 afl-flokkum (Wattastærð).
T.d. er 549mm T5 pera bæði til í 14W og 24W.

Osram kallar þetta High Efficiency og High Output flokka.
Post Reply