Litla vinnufiskabúrið

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Litla vinnufiskabúrið

Post by Andri Pogo »

Ég er með lítið fiskabúr niðri í vinnu og datt í hug að skella inn þræði um það :)
Það hefur verið í gangi síðan haustið 2010, í rúmt ár. Ég tæmdi þó búrið síðasta sumar þar sem það er staðsett í smíðastofu í grunnskóla og ég nennti ekki að gera mér ferðir í vinnuna í allt sumar til að gefa og þrífa :mrgreen:
Stefni á að tæma það alltaf á sumrin og geyma fiskana heima eða láta þá.
Þetta er líka lítið búr sem bíður ekki upp á margt og þá getur maður leyft sér að setja unga fiska í búrið og haft þá út skólaárið en skipt þeim svo út ef þeir eru farnir að stækka eitthvað af viti.
Ég skrifa svo alltaf stutta grein um fiskana í búrinu og hengi upp fyrir ofan búrið fyrir þá sem vilja lesa sér til um fiskana.

Í fyrstu var búrið inni á skrifstofunni minni, inn af smíðastofunni en ég færði það fljótlega í glugga á skrifstofunni sem snýr inn í smíðastofuna:
Image

Standur sem ég skellti undir búrið (myndin er tekin jan í fyrra):
Image

Glugginn, séð úr smíðastofunni:
Image

Með því að færa búrið þangað kom ég í veg fyrir sífellt ráp inn og út af skrifstofunni til að kíkja á fiskana og þeir eru öruggir bakvið glerið í glugganum, s.s. ekki hægt að banka beint í búrið:
Image

Í fyrstu var ég með kribbapar í búrinu og venusarfiska, skipti þeim svo út í jan 2011 fyrir Puffer sem ég átti fyrir heima:
Image

Image

Pufferinn drapst eftir einhverjar vikur, sem kom mér ekki mikið á óvart, það er víst mjög erfitt að halda þessari tegund á lífi (Takifugu occelatus).

Eftir að pufferinn drapst skellti ég hrygnandi demantssíkliðupari í búrið en ég á því miður engar myndir af því.
Þegar sumarfríið kom svo í fyrra fékk einn áhugasamur nemandi, sem átti fiskabúr fyrir, að eiga demantana :)

Svo í haust þegar skólinn byrjaði aftur fór ég á stúfana að leita að einhverju skemmtilegu í búrið en ég vil frekar hafa einhverja óvenjulega/spennandi fiska.
Ég rakst á litla Senegalus-a (Polypterus senegalus) og keypti tvo og bætti svo fljótlega við litlum afrískum hnífafiski (Xenomystus nigri) því búrið var ansi tómlegt með tvo litla Senegalusa. Þessir fiskar eru undir 10cm og geta því verið í búrinu en eins og ég sagði hér að ofan mun ég skipta þeim út áður en búrið verður of lítið fyrir þá.
Þessir þrír hafa verið í búrinu án vandræða frá því í haust en hnífafiskurinn lætur lítið sjá sig í dagsbirtu.
Í gær var ég að leita að einhverju til að hafa með þeim enda ekki aktívir fiskar og sjást oft alls ekkert. Rakst á fallega Parachanna Obscura og skellti henni í búrið, hún passar vel með hinum Afríkufiskunum :)

Kíkti við áðan til að sjá hvernig Channan hefði það, hún er smá tætt eftir annan Senegalusinn en virtist þó hress.
Svona er búrið í dag:
Image

Sjáiði báða Senegalusana?
Image

Og Channan, varð frekar litlaus þegar ég kom að taka myndir:
Image

Hnífafiskurinn vildi ekki láta sjá sig.

Skelli kannski inn fleiri myndum seinna eða ef ég breyti búrinu eitthvað.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Litla vinnufiskabúrið

Post by keli »

Gaman að þessu, gott ungliðastarf líka ;)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Re: Litla vinnufiskabúrið

Post by Karen »

Æðislegt hjá þér Andri :)
Ég er alltaf jafn hrifin af uppsetningum hjá þér, rosalega snyrtilegt og flott en samt svo einfalt! I like it!
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Litla vinnufiskabúrið

Post by Sibbi »

:góður:
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Re: Litla vinnufiskabúrið

Post by Birkir »

Ég kíki vonandi á ykkur aftur í vikunni. Þetta er stórgott framtak.
Post Reply