Sparkling gourami

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Sparkling gourami

Post by RagnarI »

Keypti mér par af sparkling gourami í vor og hef ekkert pælt í því, var á tímabili meira að segja viss um að þetta væru tveir hængar.

tók eftir því fyrir síðustu helgi að það voru komin seiði hjá þeim í stóra búrinu en kardinálarnir voru ekki lengi að sjá um að stúta því.

ég setti þau í sér búr í vikunni og þegar ég var að kíkja á búrið áðan þá er það FULLT af seiðum!

Image
Image
Image

myndirnar eru ekki þær bestu en seiðin sjást sem smá strik á milli rótanna á flotplöntunni og á laufunum á javaburknanum
Post Reply