búrin mín - kiddicool98

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Þessir svörtu Juwel bakgrunnar eru frekar þunnir og taka sama og ekkert pláss, en Rock bakgrunnarnir frá þeim eru þykkari.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Gilmore wrote:Þessir svörtu Juwel bakgrunnar eru frekar þunnir og taka sama og ekkert pláss, en Rock bakgrunnarnir frá þeim eru þykkari.
Mér finnst t.d svörtu Juwel bakgrunnarnir ekki flottir og ég myndi taka frekar eitthvað fallegt plaggat í staðinn. Annars er ég með eitthvað voða flottan bakgrunn í mínu 200L búr og finnst það flott en tekur samt slatta pláss en myndi aldrei skipta honum út fyrir þennan svarta frá Juwel þó hann taki minna pláss :).


En búrið kemur vel út :D verður gaman að sjá það með fiskum í. Mér finnst mölin vera passleg, svipað eða minna en er í mínu 200L búri, hægt að gera meira með mölina ef hún er mikil, hafa t.d einhverja hóla og þessháttar :D.
200L Green terror búr
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

ég er ekki sammála þér, mér finnst Juwel bakgrunnirinn fallegri en myndaplaggat. hann getur verið gerfilegur fyrst, en svo fer að vaxa þörungur á honum og þá verður hann bara ágætur.
plaggötin eru svo mmmm.... að mínu mati. fallegast finnstk mér að hafa bara einlitt plaggat
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

er eðlilegt að hitarinn kveiki og slökkvi á sér?
kristinn.
-----------
215l
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Meinaru að ljósið sem er á honum kveikir og slekkur á sér, af og til?

já það er alveg eðlilegt.

Sumir hitarar kveikja á sér á t.d korters fresti og slökkva á sér eftir 5 min. (dæmi)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Hitarar kveikja á sér þegar vatnið er kaldara en það á að vera og slökkva á sér þegar það er nógu heitt. Þetta er mekkanískt og ekki tímatengt, hitarinn er bara í gangi á meðan vatnið er kalt.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

Elma wrote:Meinaru að ljósið sem er á honum kveikir og slekkur á sér, af og til?

já það er alveg eðlilegt.

Sumir hitarar kveikja á sér á t.d korters fresti og slökkva á sér eftir 5 min. (dæmi)
já.... hann er samt stilltur á 26° og hitinn er búinn að vera í 24 komma einhvað í soldið langann tíma og ekkert ljós (þeas þegar ég er búinn að vera að kíkja á hann :roll: ) en ég sé á morgun þegar ég vakna hvort hann verður ekki kominn í 26 hitinn....
kristinn.
-----------
215l
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Stundum er fjöðurin sem stýrir hitaranum aðeins "off" og þá þarf að t.d. stilla hitarann aðeins hærra en hitastigið sem maður vill að hann nái.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

ætti ég ekki bara að stilla á 28°??
kristinn.
-----------
215l
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Prófaðu þig bara áfram með það. Ekki of miklar breytingar í einu samt.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

fór í fiskó og keypti mánaðar birgðir af gróðurnæringu fyrir 1600 og einhvað :shock:
kristinn.
-----------
215l
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

búinn að setja dæluna í og stefni svo að því að setja fyrstu fiskana í einhvern tíman eftir helgi :D
kristinn.
-----------
215l
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

fór í fiskó og keypti fyrstu íbúana og fóður. fyrstu íbúarnir eru 2 skallar, einn ''hvítgulur'' og einn ''svartskræbóttur'' :D reyni að koma með myndir á morgun.
kristinn.
-----------
215l
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

Image
Image eina myndin sem ég náði af þeim ljósa.

alveg ómögulegt að ná myndum af þessu af því að þeir húka allan tíman við hitarann og dæluna. veit einhver af hverju þeir gera það og hvað ég get gert til að þeir hætti því? sá þennan ljósa samt éta smá.svo gapa þeir og anda á fullu. kannski súrefnislaust vatn? vatnaskipti? loftdæla? já og svo er dælan alveg rosalega hávær... mjög! heirst hátt '' grrrrrrr''
Last edited by kiddicool98 on 13 Apr 2010, 15:08, edited 1 time in total.
kristinn.
-----------
215l
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Skalar eru venjulega mjög fljótir að koma að glerinu og sníkja. Ef þeir húka bara við dæluna þá er eitthvað að.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Heyrðu, skalar eru ekki góðir sem startfiskar. Þeir þurfa búr sem er stabílt og eiga að vera með síðustu fiskum sem maður setur í búrið. :o

Ég er að cycla mitt með nokkrum Gúrömum, það eru fínir startfiskar, flottir og skemmtilegir líka.
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

Gilmore wrote:Heyrðu, skalar eru ekki góðir sem startfiskar. Þeir þurfa búr sem er stabílt og eiga að vera með síðustu fiskum sem maður setur í búrið. :o

Ég er að cycla mitt með nokkrum Gúrömum, það eru fínir startfiskar, flottir og skemmtilegir líka.
oó er sleppur þetta samt ekki alveg á nokkrum dögum... eða þarf ég að setja þá í pössun :x :!: :?:
kristinn.
-----------
215l
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Tja þetta virðist amk ekki vera að ganga vel miðað við hegðun þeirra.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það gæti verið í lagi að prófa að fá einhverja fleiri fiska sem draga kannski skalana fram. Td. gurama eða einhverjar harðar tetrur.
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

Vargur wrote:Það gæti verið í lagi að prófa að fá einhverja fleiri fiska sem draga kannski skalana fram. Td. gurama eða einhverjar harðar tetrur.

myndu tveir kribbar ganga?
kristinn.
-----------
215l
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

það er að verða mjög pirrandi þessi hávaði í dælunni. en það sem verra er:
í gær slökkti ég á dælunni og þeir urðu bara mjög fínir eftir smá stund, kveikt aftur á dælunni og þeir voru aftur komnir inní horn hjá dælunni. er núna búinn að slökkva á dælunni, gá hvort þeir komi þá ekki aftur. gæti verið einhvað samhengi milli dælunnar og fiskanna?
kristinn.
-----------
215l
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Hvaða dælu er svona mikill hávaði í? Loftdæla eða hreinsidælan? Hvernig dæla er þetta sem þú ert með....tunnudæla eða?
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

þetta er am tom am 1000 hreinsidæla
kristinn.
-----------
215l
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

1000 ltr dæla
gæti verið allt of mikill straumur í búrinu
og fiskarnir reyna að finna sér rólegan stað
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þessi Am-top 1000 dælu er í fyrsta lagi nánst ónothæf vegna hávaða en einnig vegna þess að hún er allt of kröftug í þetta búr þannig hún blæs fiskum eins og skölum út í horn.
Æskileg stærð af hreinsidælu í þetta búr er dæla sem dælir 5-600 l/ klst eða tunnudæla sem dælir 900-1200 l/klst.
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

Vargur wrote:Þessi Am-top 1000 dælu er í fyrsta lagi nánst ónothæf vegna hávaða en einnig vegna þess að hún er allt of kröftug í þetta búr þannig hún blæs fiskum eins og skölum út í horn.
Æskileg stærð af hreinsidælu í þetta búr er dæla sem dælir 5-600 l/ klst eða tunnudæla sem dælir 900-1200 l/klst.
ohh.... keypti þetta á glænýtt! :evil: það er samt hægt að stilla kraftinn á henni en já þetta er allt of hávært. kaupi samt tunnudælu seinna , á bara engann pening... :x ætti ég ekki bara að lækka kraftinn og kaupa mér rena xp2 seinna?
kristinn.
-----------
215l
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

jæja búinn að lækka kraftinn niður í lægsta og það er fínt en sami hávaðinn. keypi lítið kribbapar/kall og kellu.voða fínir , ekkert vesen á þeim og byrjuðu straks að éta og stuð. skallarnir meiraseigja komu soldið meira fram :D reyni að koma með myndir á morgun. þarf svo að fara að setja rót í þetta eða einhvað :-)
kristinn.
-----------
215l
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

setja meira dót í búrið steina, rætur og gróður og þá færðu fleiri staði þar sem vatnið er ekki á fullu
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

hér koma myndir:
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
[/img]http://fishfiles.net/up/1004/zvhummry_2 ... 24.jpg[img]
http://fishfiles.net/up/1004/uf5syacn_2 ... ur_025.jpg[/img]

kannski allt of mikið af myndum :roll: gat bara ekki hamið mig :!:
kristinn.
-----------
215l
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

var svona að pæla, ég keypti mér malarryksugu fyrir vatnaskiptin. er í lagi að byrja vatnaskiptin strax eða þarf það einhvað að cycla betur?
kristinn.
-----------
215l
Post Reply