vantar upplýsingar og hjálp um plötusögun

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
User avatar
igol89
Posts: 381
Joined: 12 Dec 2010, 04:13
Location: Álftanes

vantar upplýsingar og hjálp um plötusögun

Post by igol89 »

er að fara að klæða skápinn sém ég smíðaði undir 240 l búrið og vantar að vita hvert er best að fara til að fá mjög nákvæmt sagað niður eða er einhver hérna sem tæki það að sér fyrir eitthvað smotterí eða smá öl? :)
Logi


________________________________________________-
240L að tæmast 180L tómt, 120L tómt, 30L rækjur
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: vantar upplýsingar og hjálp um plötusögun

Post by keli »

Getur pantað niðursagað eftir máli hjá byko og líklega húsasmiðjunni. Ég gerði það einhvertíman og fyrir lok sem ég var að smíða, fannst það ekkert skelfilega dýrt, en smiðum þykir það líklega mjög dýrt :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
linx
Posts: 152
Joined: 27 Mar 2007, 21:26

Re: vantar upplýsingar og hjálp um plötusögun

Post by linx »

Ef að það er orðið vesen að saga niður, er það fínn kostur að fá allt niður sagað í akkúrat þeim málum sem maður vill og með mjög góðum skurði. Ég myndi allavega passa uppá að sá sem sagar niður fyrir þig sé með blað til þess að fá fínan skurð.
Það er ekki svo dýrt fyrir fáa hluti þó maður sé smiður! :wink:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: vantar upplýsingar og hjálp um plötusögun

Post by Vargur »

Það tekur því allavega ekki að fara og kaupa plötuna og flækjast eitthvað með hana til að saga í mál.
Einfaldast að láta bara næstu timbursölu gera þetta og geta svo sett efnið niðursagað beint í bílinn sinn.
Þessi fyrirtæki rukka metraverð á sögun og nokkuð einfallt að hringja bara og spyrja um verð.
Post Reply