Snertiflötur fiskabúrs

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
Premium
Posts: 123
Joined: 14 Jan 2008, 16:54
Location: Hveragerði

Snertiflötur fiskabúrs

Post by Premium »

Sæl öll

Ég var að kaupa Akvastabil 250 lítra búr og ætla að smíða stand undir það. Ég er búinn að vera að skoða netið í leit að hugmyndum, þar á meðal standinn hans Sven sem mér finnst geggjaður. Svo rakst ég á þráð á plantedtank.net þar sem menn póstuðu myndum af stöndum sem þeir höfðu smíðað sjálfir og þar var einn sem mér finnst mjög fallegur í einfaldleika sínum: Image

Hornspýturnar einar og sér duga til að halda þunganum (hann er með 90gal/340l á þessum stand hjá sér), en ég velti fyrir mér hve veigamiklu hlutverki milliböndin/þverspýturnar gegni í að dreifa stressinu sem gæti myndast á búrið? Botnplata er í raun óþörf vegna þess að botnplata búrsins hvílir hvort eð er aldrei á neinu vegna rammans sem er um Akvastabil búrin, eða hvað? Og hvar fær maður almennilegt timbur hérlendis, þ.e. sem er nógu fallegt til að smíða húsgögn úr?

Hér eru myndir af búrinu á standinum hjá honum.
Þórður S.
Posts: 91
Joined: 16 Nov 2011, 13:16

Re: Snertiflötur fiskabúrs

Post by Þórður S. »

getur prófað að tala við þá í Sögin

http://sogin.is/index.php?dispatch=cate ... ory_id=190
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Snertiflötur fiskabúrs

Post by keli »

efnissalan er líka með eitthvað efni. Líklega bara óheflað samt. En allskonar gegnheila eik o.fl.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
GummiH
Posts: 41
Joined: 04 Jul 2012, 19:14

Re: Snertiflötur fiskabúrs

Post by GummiH »

Algengur miskilningur, en standur er bara einn fótur undir búri :)
Premium
Posts: 123
Joined: 14 Jan 2008, 16:54
Location: Hveragerði

Re: Snertiflötur fiskabúrs

Post by Premium »

Glæsilegt, þakka svörin. Er einhver með pælingar varðandi þyngdardreifingu búrsins á lappirnar/þverböndin? Sem og álit manna á engri plötu á skápnum?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Snertiflötur fiskabúrs

Post by Andri Pogo »

keli wrote:efnissalan er líka með eitthvað efni. Líklega bara óheflað samt. En allskonar gegnheila eik o.fl.
efnissalan er með bæði óheflað og heflað efni, mæli með þeim.
(ég er með þykktarhefil annars ef þig vantar aðstoð með óunnið efni)
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Snertiflötur fiskabúrs

Post by keli »

Ég mæli líka sterklega með efnissölunni. Ég er með borðplötur í hverju horni frá þeim og ég fékk þær á frábæru verði miðað við aðra staði.


Ég fæ kannski að bögga þig með heflun einhvertíman andri :) Ertu með þetta í vinnunni eða heima hjá þér? Hvað geturðu heflað þykka bita?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Snertiflötur fiskabúrs

Post by Andri Pogo »

bara í vinnunni, minnir að hann taki max 10-12cm þykkt en man ekki alveg breiddina, eitthvað í kringum 20-25cm
-Andri
695-4495

Image
linx
Posts: 152
Joined: 27 Mar 2007, 21:26

Re: Snertiflötur fiskabúrs

Post by linx »

Varðandi þyngdardreifingu þá dreifist þyngdin á þá púnkta sem búrið hvílir á. Með þennan stand þá dreifist þyngdin aðalega á enda búsinns sem eitt og sér er í fínu lagi en ef að viðkomandi myndi hlaða miklu upp í miðjunni á því eða að missa eitthvað í botninn þá gæti glerið gefið eftir þar sem það er ekkert bak við það til að halda við það. Persónulega myndi ég setja þverstífu eftir miðjunni eða á 50cm millibili til að lámarka hættu á þessháttar slisum en þetta er samt allt í hlutfalli við hersu stór botnflöturinn er, hvaða efni hann situr á og hve þykkt botnglerið er. Það sem væri lang sniðugast að gera er að sleppa þverstífum og að fjölga löppum þar sem að fura sem er algengasta efnið sem er verið að smíða úr svignar undan þunga á langveginn en mjög erfitt er að kremja hana saman. Ef ég væri að smíða stand núna og vildi vera undir 50 þús. í efniskostnað myndi ég smíða standinn úr furu og svo skoða hvaða úrval er af fallegum spón og spónleggja hann eins og flest öll húsgögn eru í dag. Efnissalan er t.a.m. með fínt úrval af fallegum spón.
http://www.efnissalan.is/?page_id=9
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Snertiflötur fiskabúrs

Post by Andri Pogo »

athugaðu líka varðandi botninn að þú sagðir að akvatabil búrin hvíla á rammanum, að þegar þú kaupir nýtt akvastabil búr (amk var það þannig með mitt gamla) að það fylgir þunn frauðplastplata með til að hafa undir botninum sem styður við botnglerið þannig þyngdin liggi ekki bara meðfram brúnunum.
Það er kannski óþarfi að spá í þessu með 250L búr en vildi bara koma þessu að :)
-Andri
695-4495

Image
Premium
Posts: 123
Joined: 14 Jan 2008, 16:54
Location: Hveragerði

Re: Snertiflötur fiskabúrs

Post by Premium »

Andri Pogo wrote:athugaðu líka varðandi botninn að þú sagðir að akvatabil búrin hvíla á rammanum, að þegar þú kaupir nýtt akvastabil búr (amk var það þannig með mitt gamla) að það fylgir þunn frauðplastplata með til að hafa undir botninum sem styður við botnglerið þannig þyngdin liggi ekki bara meðfram brúnunum.
Það er kannski óþarfi að spá í þessu með 250L búr en vildi bara koma þessu að :)
Þetta vissi ég ekki, takk fyrir þetta.
Post Reply