spurning í sambandi við búr

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
laaadyglow
Posts: 3
Joined: 17 Apr 2013, 23:38
Location: Reykjavík

spurning í sambandi við búr

Post by laaadyglow »

segjum að ég ætlaði að smíða 250 lítra gler búr ..
hverjar væru þá sirka mælingarnar sem ég þyrfti af gleri
ég er glööötuð í reikningi og kann ekki að reikna það út
vill frekar ahfa það lengra heldur en hærra :)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: spurning í sambandi við búr

Post by Andri Pogo »

Ég hef nú ekki smíðað búr sjálfur en 250L búr er t.d. 100x50x50cm (lengdxbreiddxhæð)
Þá þarftu botngler sem er 100x50cm, 2x gler í langhliðar sem eru líka 100x50cm og 2x gler í styttri hliðar sem þarf aðeins að reikna betur.

Ef þú ætlar að nota t.d. 8mm gler þá þarftu að draga 16mm frá þeim 50cm sem hliðin er því stuttu glerin fara á milli þeirra löngu.
Svo þarf að gera ráð fyrir smá bili fyrir sílikonið, ætli það sé ekki 1-2mm (myndi bíða eftir svari frá reyndari aðila með þá stærð).
En miðað við 8mm gler og 2mm sílikonbil beggja vegna væru styttri hliðarglerin 48x50cm.

S.s:
3 gler 100x50cm
2 gler 48x50cm
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Re: spurning í sambandi við búr

Post by Squinchy »

Myndi nú ekki hafa botninn 100x50, hliðarglerin eiga að límast á hliðarnar á botninum frekar en ofan á honum

Ef 8mm gler er notað og gerum ráð fyrir 1mm af sílíkón þá erum við að tala um:
48,2x98,2cm er botninn
2 plötur af 100x50cm fram og aftur glerið
2 plötur af 48,2x50 hliðarnar
Kv. Jökull
Dyralif.is
laaadyglow
Posts: 3
Joined: 17 Apr 2013, 23:38
Location: Reykjavík

Re: spurning í sambandi við búr

Post by laaadyglow »

Squinchy wrote:Myndi nú ekki hafa botninn 100x50, hliðarglerin eiga að límast á hliðarnar á botninum frekar en ofan á honum

Ef 8mm gler er notað og gerum ráð fyrir 1mm af sílíkón þá erum við að tala um:
48,2x98,2cm er botninn
2 plötur af 100x50cm fram og aftur glerið
2 plötur af 48,2x50 hliðarnar

já ég hafði samt hugsað mér 6mm gler :)
þarf ekki meir en það :)
Post Reply