Málning á bakhlið fiskabúrs?

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
Ingó30
Posts: 6
Joined: 21 Apr 2014, 11:17

Málning á bakhlið fiskabúrs?

Post by Ingó30 »

Góðan daginn.

Er orðinn þreyttur á að hafa engann bakgrunn á fiskabúrinu mínu og hef séð búr sem eru með málaða bakhlið. Var að velta fyrir mér hvaða málning hentar vel í þetta. Mig langar að hafa bakið svart.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Re: Málning á bakhlið fiskabúrs?

Post by Squinchy »

Ég hef haft góða reynslu á því að nota ACE háglans sprey sem fæst í byko, þarft samt helst að vera með tómt búr og hafa aðstöðu til að nota sprey brúsann, svona mistur ferðast slatta
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Re: Málning á bakhlið fiskabúrs?

Post by Arnarl »

Ég hef nota bara venjulega vatnsmálningu og litla rúllu, best að fara nokkrar umferðir svo það sjáist ekki í gegn. 1 líter kostar 990 í Bauhaus
Minn fiskur étur þinn fisk!
Post Reply