500 Lítra búr *Update 13.3

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Jújú ég mun líklegast setja riðfría plötu (eins og listarnir á búrinu), gera 90° vinkil úr henni og festa rofan í hana og festi síðan plötuna við karminn á búrinu :)

Hehehe :D
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Þetta er flott.
Virkar þessi rofi þannig að hann setji dæluna í gang ef vatnsborðið fer sjálfkrafa aftur í rétta hæð? Svona svipað og á brunndælum með sjálfvirkum rofa.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Ég þrái Skvinnsí... ég tilbið þig. Ég trúði ekki að þú værir til en nú trúi ég. Og tilbið. Þetta er lógísk þróin í átt að trúrlkni og trú.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Takk :) já um leið og vatns hæðin minkar slokknar á segulliðanum og opnar þá fyrir strauminn á dæluna

Haha takk fyrir traustið Birkir :D
Last edited by Squinchy on 11 Feb 2008, 13:19, edited 1 time in total.
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Nóg að gerast í dag hérna, var að klára að setja saman yfirfall nr.2

Image
Þannig að það verður klárt á morgun og þá mun ég prufa að setja dæluna á fullan snúning :D og mun líklegast koma flot rofanum fyrir á morgun :) allt að gerast :D
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Var að fá Egg crate plötuna mína sem ég nota í sumpinn

Það er notað til að halda 2/3 Bio mediunni upp úr vatninu
Image
Image
Litli renningurinn er til þess að halda svömpunum uppi

Er bara að bíða eftir bio mediunni og svömpunum :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvar fékkstu egg-crate, ég var einhvern tíman að leita að þessu og fann ekki til sölu svona í lausu ?
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Fann þetta í gömlum ljós lampa, síðan er einhver gaur í keflavík sem er að selja svona en það er fáranlega dýrt 4000.kr fyrir 120x60cm plötur, finnst það frekar mikið þar sem þetta kostar á milli 10 - 15$ úti
Kv. Jökull
Dyralif.is
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

ég þekki gaurinn sem er að selja þetta það er sá sami og er með búrið niðri vinnu.ég á nokrar svona plötur sem ég get selt fyrir slik
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Jæja þá eru næstum því 2 mánuðir síðan eitthvað gerðist í þessu verkefni :D

En ég er búinn að vera hugsa lengi um svo litla breitingu á hönnun búrsins undanfarið og verið að stússast í öðru nýu verkefni sem kemur í annan þráð seinna :P

3D bakgrunnur er það sem hefur verið að stöðva framkvæmdirnar og hönnun í kringum hann, þar sem ég vill hafa yfirfallið innifalið í honum þannig að enginn einasti hlutur er sjáanlegur í búrinu :)

Ákveðið var að setja Yfirfalls box innan í búrið og bakgrunnurinn mun síðan vera sniðinn í kringum það
Image

Hérna eru framfarirnar

Image
Image

Síðan er líka útlitið á heildar verkefninu orðið annað þar sem að bakgrunnurinn mun vera á bakglerinu og báðum hliðarglerunum, þá vill ég ekki alveg láta sjást í silikon límið og það á hliðarglerunum ;)
Þannig að þetta verður nýa útlitið:
Image
Image

spurning um að færa þráðinn yfir í föndur hornið ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

djöfull er þetta flott hjá þér!!
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Takk takk :), byrja vonandi á morgun að vinna í 3D bakgrunninum :D
Kv. Jökull
Dyralif.is
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

hvaða fiskar fara svo í þetta?
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Bara Frontosur og Pleggar/Gibbar
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Var ekki Squinchy á Skjá1 áðan í dýraþættinum?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ekkert smá stór þessi tjörn, virtist svo miklu minni á mynd sem ég sá hérna á spjallinu.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Haha jújú þetta mun hafa verið ég :), já þetta er dógóður pollur ;)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Og lét engan vita??
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Bara fattaði það ekki :P
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Þá var að koma sendingin sem ég var að bíða eftir, fór áðan upp í Dýralíf að sækja hlutina:
8 Juwel svampar 4 grófir 4 fínir, 30L af K3 Kaldnes Bio media
Þetta K3 er með mesta yfirborðssvæði af bio mediu sem ég hef fundið miðað við stærð, YS: 584M2
Image
Image

Þetta búr fer bara að vera of lítið fyrir þennan sump :P
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Hvað kostaði þessi hellingur af bio balls?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Það var dágóð summa samt mun ódýrara Lítra verð en á þessum bláu boltum sem hafa minna yfirborðsvæði
Last edited by Squinchy on 21 Nov 2007, 19:56, edited 1 time in total.
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég setti bara gróf rauðamöl í sumpinn sem ég var að gera... Get ímyndað mér að það sé ansi mikið yfirborð á því :) Átti það líka við hendina. Svo á ég reyndar eitthvað af eheim media sem ég pantaði frá þýskalandi á sínum tíma sem ég held að ég hendi í - er hvorteðer ekkert að nota það eins og er.


Lítur annars vel út hjá þér - hvenær fær maður að sjá eitthvað af búrinu sjálfu? :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Okei hvernig sump er þetta, Bio tower ?

Það er lítið sem engin breiting á búrinu sjálfu, nema bara þetta nýa yfirfall, er síðan nokkurnveginn búinn að ákveða hvernig bakgrunnurinn verður þannig að ég get bráðlega farið að vinna í honum :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Er bara með allt á floti, ekkert trickle vesen, nenni ekki sullinu í kringum það :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Bjarkinn
Posts: 32
Joined: 10 Nov 2007, 14:01

Post by Bjarkinn »

áhugaverð pæling að setja rauðamöl í sumpinn, þá sérstaklega ef þú ert með gróðurbúr, ég meina það hlýtur eitthvað af járni að fara út í vatnið. Hefuru tekið eftir eitthverjum breytingum á plöntunum hjá þér eftir þetta?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég tók ekki eftir neinni breytingu þegar ég var með þetta fyrir nokkrum árum.. En var reyndar ekki með mikið af plöntum þá heldur.


Er núna bara búinn að vera með þessi búr í gangi í nokkra daga þannig að það er engin reynsla komin á rauðamölina þar... og er með lítið af plöntum í búrinu, aðallega bara slatta af javamosa
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Bjarkinn
Posts: 32
Joined: 10 Nov 2007, 14:01

Post by Bjarkinn »

amm það væri gaman að prófa þetta með t.d rauðarplöntur því það er alltaf sami hausverkurinn að hafa nægilega mikið járn handa þeim. Pælinga að skella bara rauðmöl í búrið.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Þá held ég að það sé tímabært fyrir smá uppdate þar sem þetta verkefni hefur ennþá smá líf í sér ;)

Nú þegar hreinsikerfið er nánast tilbúið er aðalega verið að bíða eftir því að koma upp bakgrunninum og þá getur þetta haldið áfram

Einhver mega leti er búin að vera í manni síðan Nov 21 '07 :lol: og aðalega því ég var ekkert svo spenntur fyrir því að fara skera þetta mega frauðplast :D þannig að ekkert hefur verið að gerast en núna er ég að vinna í búrinu alla mánudaga og þriðjudaga í sirka 5 tíma á dag þannig að hlutir eru farnir að gerast aftur, sem betur fer :P

Byrjaði að skera út þann 29.1.08, þemað sem var fyrir vali er stuðlaberg, teiknaði svona gróflega upp hvernig þetta ætti að fara fram, kom mér á óvart hvað þetta var ekkert leiðinlegt :P

Image
Image
Ég ákvað að gera hvern og einn stuðul sér til að fá þetta raunverulegra
Image
Image
Á eftir að fínnskera stuðlana aðeins betur sem komnir eru, sérviskan og fullkomnunar áráttan alveg að fara með mig í sambandi við þennan út skurð, en þetta klárast vonandi einhvertíman ;)

Svo var ég að leggja inn pöntun hjá Dýralíf fyrir 10 litlum Frontosumog 2 Royal Pleco L-190 (Panaque sp. nigrolineatus] ógeðslega flottir!!!!, sendingin kemur þann 14 :D, get ekki beðið! er einig að spá í að fá mér einn L-177 fyrir 170L búrið mitt :D hellingur af flottum pleggum að koma þarna þann 14

Endilega koma með skoðun um bakgrunninn ef ykkur finnst eitthvað mætti betur fara :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég hef trú á að þessi bakgrunnur eigi eftir að verða flottur.

Er hægt að panta svona fiska hjá Dýralíf?
Ég fór þangað um jólaleytið en náði engu sambandi við afgreiðslukonuna því hún var í símanum þegar ég kom og í símanum þegar ég fór svona 15 mín. síðar.
Post Reply