Hvar er úrvalið?

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
QCumber20
Posts: 8
Joined: 17 Nov 2012, 20:26

Hvar er úrvalið?

Post by QCumber20 »

Ég er búinn að þræða flestar gæludýrabúðir í bænum að ég held og ég finn voða lítið úrval af gróðri. Þetta er alltaf það sama og í sumum tilfellum afskaplega illa farnar og ljótar plöntur. Hvert leitið þið þegar þið viljið kaupa skemmtilegann nýjan gróður?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Hvar er úrvalið?

Post by keli »

Líklega engin eins og er... Það er alltaf best að reyna að mæta í verslanirnar þegar þær eru nýbúnar að fá sendingar af gróðri.. Þetta vill drabbast niður hjá þeim á 2-3 vikum (og úrvalið minnkar auðvitað líka).

Dýragarðurinn ætti að opna einhvertíman í mánuðinum, það hlýtur að koma ný sending í nýja búð..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Re: Hvar er úrvalið?

Post by prien »

Þú getur líka látið FF taka inn plöntur fyrir þig, þegar hann tekur inn sendingu.
Sjá link:
http://verslun.tjorvar.is/index.php?cPa ... cqpo0hhap4
500l - 720l.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Hvar er úrvalið?

Post by keli »

prien wrote:Þú getur líka látið FF taka inn plöntur fyrir þig, þegar hann tekur inn sendingu.
Sjá link:
http://verslun.tjorvar.is/index.php?cPa ... cqpo0hhap4
Sniðugt.. Hvað er hann að taka sendingar oft?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Re: Hvar er úrvalið?

Post by prien »

Mér hefur sýnst að hann sé að taka inn sendingar á u.m.þ.b. 3ja mánaða fresti.
Eitthvað breytilegt samt til eða frá.
Fer líklega eftir því hve margar sérpantanir séu komnar inn.
500l - 720l.
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Re: Hvar er úrvalið?

Post by Guðjón B »

keli wrote:Líklega engin eins og er... Það er alltaf best að reyna að mæta í verslanirnar þegar þær eru nýbúnar að fá sendingar af gróðri.. Þetta vill drabbast niður hjá þeim á 2-3 vikum (og úrvalið minnkar auðvitað líka).

Dýragarðurinn ætti að opna einhvertíman í mánuðinum, það hlýtur að koma ný sending í nýja búð..
Afsakið útúrsnúninginn en hvað er í gangi hjá þeim, breytingar eða ætla þeir að rísa úr öskunni?
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Hvar er úrvalið?

Post by keli »

Guðjón B wrote:
keli wrote:Líklega engin eins og er... Það er alltaf best að reyna að mæta í verslanirnar þegar þær eru nýbúnar að fá sendingar af gróðri.. Þetta vill drabbast niður hjá þeim á 2-3 vikum (og úrvalið minnkar auðvitað líka).

Dýragarðurinn ætti að opna einhvertíman í mánuðinum, það hlýtur að koma ný sending í nýja búð..
Afsakið útúrsnúninginn en hvað er í gangi hjá þeim, breytingar eða ætla þeir að rísa úr öskunni?
Flutningar.. Þetta kom fram í öðrum þræði hérna.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
QCumber20
Posts: 8
Joined: 17 Nov 2012, 20:26

Re: Hvar er úrvalið?

Post by QCumber20 »

Þannig að það þarf bara að vakta hverja búð fyrir sig eða taka sérpantanir og vona að maður sé réttu megin við þessa 3 mánuði?

Er þetta ekki nógu stór hlið á hobbíinu að alla vega ein búð gæti séð markaðstækifæri í því að vera með fallegt gróðurbúr til sýnis og eitthvert úrval af gróðri og búnaði, þó það væri ekki nema bara pöntunarlisti?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Hvar er úrvalið?

Post by Vargur »

Það getur gefið góða raun að auglýsa eftir afleggjurum hér á spjallinu, margir með falleg gróðurbúr og þau þarf að grisja reglulega.
QCumber20
Posts: 8
Joined: 17 Nov 2012, 20:26

Re: Hvar er úrvalið?

Post by QCumber20 »

Vargur wrote:Það getur gefið góða raun að auglýsa eftir afleggjurum hér á spjallinu, margir með falleg gróðurbúr og þau þarf að grisja reglulega.
Já ætli ég reyni það ekki bara.
Post Reply