86l búrið mitt

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
Hrafntinnu
Posts: 4
Joined: 25 Mar 2014, 00:21

86l búrið mitt

Post by Hrafntinnu »

Núna var ég að eignast 86l fiskabúr og langar mig mikið til að hafa það sem gróðurbúr.
Það eru nokkrar tegundir af plöntum í búrinu núna:
anubias nana (má ekki alveg örugglega planta henni í mölina?)
vallisneria asiatica
hygrophila polysperma
bacopa amplexicaulis

Samkvæmt google þá eiga þetta að vera frekar auðveldar plöntur. Eru einhverjar
fleiri tegundir sem þið mælið með? væri mikið til í einhverjar rauðleitar.
Gróðurnæring - mér var seld næring frá Tetra sem heitir initial sticks, er eitthvað vit í þessari næringu?
ég á eftir að setja hana niður, hann sagði að ég ætti að stinga henni niður með rótunum.

Fiskar -
ég stóðst ekki mátið og keypti tvo colisa lalia, rauðan og bláan.
Eftir smá googl um þá sé ég að þeir séu frekar árásagjarnir? fúlt þar sem ég spurði sérstaklega um það í búðinni :(
Langar svolítið til að hafa einhverja fallega torfu af fiskum með, kannski einhverja sem
eru ekki algengir, einhverjar uppástungur?
Indian glass fish, hefur einhver hér átt svoleiðis og getur frætt mig um hvernig þeir hafa komið út?
Mig langar svolítið til að hafa einhverja fallega gotfiska í búrinu, eru einhverjir betri en aðrir með gróðri?
Ætlunin er svo að fá nokkra kuhli ála, en enn og aftur samkvæmt google þá þarf maður að leyfa búrinu að jafna
sig í allavega mánuð :)
Hvaða botnhreinsifiska væri sniðugast að hafa? var að hugsa um corydoras, verða þeir allir jafn stórir og er hægt að blanda
mismunandi týpum saman?

Kkv.
Hrafnhildur
Esjan
Posts: 2
Joined: 20 Mar 2014, 14:29

Re: 86l búrið mitt

Post by Esjan »

Flestar gúrama tegundir eru árásagjarnar en ekki dverggúramar :) Þeir eru friðsamir og þola mjög illa árásagjarna fiska í kring um sig.
Kallarnir geta að vísu verið ágengir við kerlurnar, en ef þú ert með tvö karla er ekkert til að hafa áhyggjur af

Og já passa með anubias nana að gróðursetja bara neðst af rótunum, stilkurinn má ekki fara á kaf í mölina :D
Hrafntinnu
Posts: 4
Joined: 25 Mar 2014, 00:21

Re: 86l búrið mitt

Post by Hrafntinnu »

Ok, þá vonandi voru google upplýsingarnar um gúramana bara vitlausar :)
Þeir eru nú óttalegar hænur greyin, það má ekki anda þá eru þeir horfnir!
Ég einmitt fékk leiðbeiningar um anubiasinn að ræturnar mættu bara fara niður,
auk þess að klippa neðan af öllum rótum.
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Re: 86l búrið mitt

Post by RagnarI »

Initial sticks hefðu átt að vera dreift yfir botninn á búrinu áður en sandurinn/mölin fór í. Reyndi einmitt sjálfur að setja svona í eftirá og það var algjört slys. Búrið gruggaðist og allt varð rykugt í því í 2-3 vikur
Hrafntinnu
Posts: 4
Joined: 25 Mar 2014, 00:21

Re: 86l búrið mitt

Post by Hrafntinnu »

Já mig grunaði það nefnilega =/
En þar sem hann sagði stingdu þessu bara ofaní þá hélt ég það skipti ekki
miklu máli :( Ég prófa kannski.
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Re: 86l búrið mitt

Post by RagnarI »

já, settu bara einn staut í einu og potaðu honum eins langt ofan í sandinn og hægt er, corydorasarnir hjá mér grófu mína upp úr sandinum (ég er með mjög fínan sand þannig að það gæti verið auðveldara fyrir þá að grafa upp hjá mér en þeim sem eru með möl
Post Reply