325 ltr. búr

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

325 ltr. búr

Post by Ásta »

Þetta er þráður um búrið mitt.

Það er 325 ltr. verksmiðjuframleitt með 2 perum og speglum.
Í því eru 4 brichardi, 4 dickfeldi, kribbapar, 2 yellow lab kerlingar, 1 gibbi, 4 johannii seyði, 1 convict seyði sem ég kalla Hermann hálfvita því það syndir einna helst á opnu svæðu: það gæti alveg eins skrifað á ennið á sér: STEIK... jæja... svo er ég með bótíu sem ég man ekki alveg hvað heitir og nenni ekki að fletta henni upp núna en kannski man Vargur það, fékk hana hjá honum.
Ég held það sé upptalið og birti hérmeð eina mynd og kem svo til með að setja fleiri.

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Bótian heitir Botia histrionika.
Hér er andlitsmynd af einni slíkri hjá mér.
Image
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Takk :)
Þetta er fínsti fiskur með síkliðunum, hún ræðst miskunnarlaust á aðra fiska finnist henni gengið á sinn rétt, en er friðsöm að öðru leyti.
Ég setti Spirulina töflu í búrið á sunnudaginn og hún spændi hana í tætlur á "no time"
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Já það er gaman af þeim þegar það er smá samkeppni um fóðrið, þær elta reka aðra fiska miskunarlaust frá og elta jafnvel lengi. Maður taldi þetta vera einhverja silakeppi sem hanga á botninum en sikliðurnar meiga stundum hafa sig allar við að stinga bótíurnar af.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Johannii seyðin hafa stækkað órtúlega mikið og hér eru 2 þeirra eitthvað að slást:
Image

Svo þarf ekki annað en að lyfta hendinni yfr búrið, þá halda allir að það sé kominn matur. Þarna eru flestallir búrfélagarnir samankomnir:
Image

Kribbakarlinn, það vantar alveg rauða litinn á magann á honum:
Image
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég bætti við um daginn 4 stk af Lamprologus multifasciatus eða shell dwellers ásamt gróðri. Allt annað að sjá búrið þegar það er komið svona grænt í það.
Nú er bara mjög lítið pláss eftir í því og ég ætla að sjá til hvort ég finni eitthvað nógu spennandi til að nenna að drösla því heim frá Danmörku en ég fékk leyfi til að koma með 100 fiska til landsins ásamt einhverju öðru smáræði.
Annars er allt í sómanum í búrinu og enn hafa ekki orðið afföll nema með convict seyðin sem ég sleppti alltof snemma en það er bara 1 eftir.

Kem með myndir fljótlega.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

100 fiskar frá Dk, það er nú ekkert annað, hvað á að koma með ?
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

einhverja hluta vegna sé ég engar myndir á þræðinum. ertu með þær einhverstaðar annarstaðar á netinu svo ég geti séð þær?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Birkir, ef þú hægrismellir á myndina færðu upp properties og þú getur kóperað urlið í browserinn þinn.
þetta var allt á myalbum.is held að notendanafnið mitt þar sé BV, annars lá sú síða niðri seinast þegar ég athugaði.


Vargur, ég kem örugglega ekkert með 100 fiska, ég bara setti þá tölu inn til að geta keypt allt sem mig langar í! Má líka koma með froska og salamöndrur :D
En mig langar mest í flottan calvus en ætla þó ekki að kaupa "bara eitthvað til að kaupa" því ég nenni ekki að fara að standa í að dröslast með fisk sem ég get fengið hér á svipuðu verði. Svo eru það náttúrulega diskusarnir.
Ég er ekki alveg komin yfir þá dellu ennþá og ætla a.m.k. að hafa 500 ltr. búrið klárt... just in case :wink:
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

ég tók properties urlið af þessu og fékk:

Not Found

The requested URL /d/87836-2/PICT2170.JPG was not found on this server.

Additionally, a 404 Not Found error was encountered while trying to use an ErrorDocument to handle the request.

:?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er búið að vera eitthvað fokk með þetta myalbum. Prófaðu http://www.dadi.info/dyraspjall/viewtop ... sc&start=0 þar eiga að vera einhverjar myndir.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Nú hlýtur eitthvað að fara að ske í búrinu hjá mér. Tók eftir því í gærkvöldi að brichardi reka alla frá sínu svæði og þeir eru nánast búnir að hertaka 1/3 af búrinu, óvenju herskáir. Dickfeldi voru eitthvað að reka frá sínu svæði líka svo ég var að vona að ég færi að fá fullt af ungviði.
Ég fylgist spennt með næstu daga og læt vita ef ég finn eitthvað.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Er að skipta um vatn núna og bætti við einni plöntu í dag, Anubias hastifolia sem er mjög flott.
Ég færði kuðungana til í búrinu hjá mér því litlu skeljabúakrúttin hafa ekki litið við þeim á þeim stað sem þær voru. Þær fóru strax að máta og vonandi hef ég hitt á betri stað núna.
Ég læt renna aðeins kaldara vatn í búrið en var fyrir, því ég er að vona að þessir fiskar fari að hrygna fyrir mig þegar hitnar aftur.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Vatnshrygningatrikkið virkar best á þungbúnum rigningadegi, það er eitthvað í loftþrýstingnum sem triggerar fiskana.
Skipta út vatni 30-50% og hafa nýja vatnið ca 4° kaldara en vatnið í búrinu.
Jafnvel fóðra mjög lítið í 1-2 vikur áður og auka svo fóðrunina.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég ætla að prófa þetta út í ystu æsar næst ef það virka ekki hjá mér núna.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Brikkarnir búnir að hrygna.
Hrognanna er vel gætt og kannski verð ég búin að fá seyði þegar ég klára seinni shortarann minn..hihihihi (smá prívat grín)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Gaman, gaman, nú verður fjör í búrinu þegar bricardi fara að hamast að alvöru í búrfélögunum.
Er þetta ekki fyrsta fjölgunin í búrinu eða hvað ?
Er fyrri shortarinn búinn ? (smástelpuhíhíhí) :)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Jú, þetta er fyrsta fjölgunin og orðin tímabær, búin að vera með þetta búr í 4 mánuði. Kannski er best að vera ekkert að fagna fyrr en seyðin eru komin, það getur að sjálfsögðu allt farið til fjandans.
Ég er þó heppin að hafa ekki miss neina fiska úr því nema seyðin frá þér Vargur sem ég sleppti allt of snemma.
Last edited by Ásta on 02 Jan 2007, 08:21, edited 1 time in total.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hellingz af seyðum undan Brichardi, ekkert nema skemmtilegt.
Hef ekki tíma til að taka þau frá (mikið að gera í jólakortaskrifum og innpökkun) svo ef þetta fokkast geri ég betur við næsta holl.
Það er einstaklega skemmtilegt þegar Brikkarnir eru að stugga frá, margir sem líta hlaðborðið girnilegum augum.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Bara gaman gaman. :)
Eru ekki aðrir fiskar í búrinu að hugsa um að stofna fjölskyldu ?
Varð ekkert úr fiskainnflutningi ? Skoðaðir þú eitthvað fiskatengt úti eða var bara legið í kerlingabúðarápi ?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég get ekki séð neina ástarleiki hjá öðrum fiskum, bara allt í stíl við ástandið á heimilinu... hehe
Það fór svo að dagurinn sem ég ætlaði að fara í fiskaleiðangur leystist upp í reyk og skít svo ég geymi bara leyfið mitt þangað til ég fer næst.

Varðandi kerlingabúðarráp... hemmhemmm.. reyndar rápað mikið en lítið keypt, (enda tölurnar á kreditkortina orðnar stjarnfræðilega háar eftir ferðina á undan sem var til USA) :roll:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvernig er það, þarftu ekki að fara að segja okkur eitthvað frá 500 l búrinu hjá þér ?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Jú, er það ekki bara.
Skelli inn einhverju um það á næstu dögum.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er greinilega ofsögum sagt þetta með að Brichardi gæti seyðanna að eintómri hörku.
Þeir passa reyndar vel uppá meðan ljósin eru kveikt, en um leið og ég slekk eru þeir komnir undir stein og skilja ungviðið eftir á tiltölulega opnu svæði.
Ekki veit ég hvort þeir eru svona náttblindir eða myrkfælnir en þeir gera ekkert til varnar seyðunum í myrkrinu.
Ég hef oftar en einu sinni gómað Convict við að gommsa í sig ferskmetinu og hefur hann fengið algjöran frið til þess.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Verður þú ekki bara að setja einkverskonar náttljós hjá þeim. Hafa td kveikt eitthvað ljós við búrið eð smella bara jólaseríu á það. :D
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Er þá ekki bara málið að láta aðra peruna loga 24/7 a.m.k. á meðan seyðin eru svona lítil ?
Þau fara ekkert út fyrir steininn sem þau "fæddust" á.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það ætti að vera fín lausN en spurning hvort þörungurinn taki ekki völdin.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Vargur, viltu fá nokkur seyði?
Það eru ekki mörg eftir en ég get séð af nokkrum.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég þakka gott boð en er ekki spentur fyrir Bricardi.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ekkert mál.

Það er aðeins af þörungi í búrinu hjá mér og af einum steini kemur talsvert af loftbólum.
Er þetta einhver gasmyndun sem verður? Hitin er um 28°C
Post Reply