Að Drepa Aiptasia

Greinar um fiska og umhirðu þeirra

Moderators: Vargur, Andri Pogo

Post Reply
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Að Drepa Aiptasia

Post by Squinchy »

Aiptasia: Þessi eintök voru í mínu 54L Nano búri og voru sirka 4 - 5cm
Image

Ég lenti í því þegar ég startaði mínu saltvatns búri að fá með Live Rock sæ fífil sem kallast Aiptasia, sem er flokkað undir pest og leiðinda kvikindi sem getur verið mjög erfitt að drepa eða losa sig við

Aiptasia fjölgar sér alveg ótrúlega hratt þegar hún byrjar á því og kemur þessi pest þá svolítið að manni óvörðum þar sem oft ætlar maður að vera svo "Góður" að leifa þeim að lifa aðeins og sjá hvort að þetta verði til einhverja vandræða (Mæli ekki með því, Drepa strax!, fjölgun getur verið á milli 15 - 30 pínulitlum auka Aiptasium á víð og dreif um búrið allt)

Best er að losa sig við þetta sem fyrst um leið og fífillinn er búinn að ná sirka 1+cm að stærð

Það sem þarf til að losa sig við Aiptasia er
Nál sem er: 0,5mm X 16mm (Færð þetta í: Lyfja)
Latex Free Sprautu 2 eða 5ml (Færð þetta í: Lyfja)
Sítrónu safa (Færð þetta í: matvöru verslunum t.d. Hagkaup)
Skotglas (Eða bara eitthvað lítið glas til að setja sítrónu safan í)
5 eða 10 lítra fötu
Handklæði eða bréf til að þurrka sér


Aðferðin:
Byrjar á því að setja vatn í fötuna svo það nái upp fyrir steininn, setur steininn í fötuna með vatninu og kemur fötunni fyrir á vel upplýstum stað (Með góðum lampa eða einhverju álíka),

Á meðan steininn var fluttur í fötuna hefur fífillinn líklegast dregið sig saman og inn í hellir þar sem erfitt er að nálgast hann, á meðan við bíðum eftir að hann komi út aftur og sperrir sig gerum við hlutina sem við þurfum klára

1. Tekur nálina úr umbúðunum með plast vörnina ennþá á.
2. Snýrð nálina þéttings fast á sprautuna.
3. Hrista Sítrónu safa brúsan og sprautaðu smá safa ofan í skotglasið.
4. Fjarlægið varnarhettuna af nálinni og setjið sirka 3ml af sítrónusafa í sprautuna.
5. Stingið nálinni inn í Sæ Fífilinn (pass að fara ekki í gegnum hann) eins nálægt "fætinum" (Rótinni) á Sæ Fíflinum og hægt er (Fífillinn mun draga sig saman og reyna fara inn í hellirinn sinn).
6. Ekki þarf að sprauta miklum safa inn í Fífilinn, 0,5 ml eiga að duga, takið nálina út og færið ykkur yfir á næsta Sæ Fífil og endurtakið (stundum getur maður séð "Fótinn" á fíflinum sem búið er að sprauta og þá getur maður notað nálina til þess að reyna losa fífilinn af steininum í stað þess að láta hann rotna í búrinu hjá manni).
7. Þegar þið hafið lokið verkinu takið sprautuna í sundur og skilið allt með hreinu vatni, þurkið og geymið á öruggum stað þar sem enginn nær í til þess að nota aftur ef fleiri fíflar spretta upp

Ef þú hefur mjög mikið af Aiptasiu þá er EKKI! sniðugt að drepa allar í einu þar sem það mun valda mengun í búrinu

Smá myndasyrpa:
Image
Image
ImageImage
Vinstri: Ekki búið að sprauta. Hægri Nýbúið að sprauta
Image
Fífillin dauður innan við mínútu
ImageImage

Upplýsingar um þessa aðferð fann ég hjá www.About.com
Link: http://saltaquarium.about.com/cs/msubpe ... 061903.htm
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
thunderwolf
Posts: 232
Joined: 17 Aug 2007, 15:02
Location: Hafnarfjörður

Post by thunderwolf »

er ekki mikið mál að kaupa sprautu og nál?
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Það getur hver sem er keypt sprautur og nálar í apóteki (kannski ekki börn)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Massíft! Ég var alltaf í veseni með þetta á sínum tíma.. En þá voru þessar leiðir ekki alveg jafn þróaðar, þá var bara talað um að nota sjóðandi heitt vatn.. Og vatn kólnar ansi fljótt í sprautu :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
gudnym
Posts: 142
Joined: 01 Apr 2008, 13:39
Location: Keflavík

Post by gudnym »

ég er líka búin að vera í mikkluveseni með þetta í mínu búri og er búin að prufa sítrónu safan og svo eithvað sem dyragarðurinn lét mig hafa og þetta kemur og fer en á miðvikud fæ ég 2 peppermint shrimp og 1 Copperbanded Butterflyfish og þeir eiga að éta þetta með bestu lyst. þannig ef þú ert enþá að glíma við þetta þá geturu pantað rækjuna og fiskinn hjá tjörva fyrir miðvikud og feingið þetta á miðvikudags kvöldinu. ég er búin að heyra margar sögur um að þetta virki:P
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Rækjurnar eru ágætar, en éta bara allra minnstu aiptasiuna, og copperband eru svo viðkvæmir að oft endast þeir ekki lengi í búrunum. Svo er algjört happdrætti hvort þeir éti eitthvað af aiptasiunni yfirhöfuð.

Þetta er þó reynandi ef maður er í vandræðum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply