Guppy spurning

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
rauðbakur
Posts: 35
Joined: 07 Jun 2010, 10:04
Location: álftanesi

Guppy spurning

Post by rauðbakur »

sæl og blessuð

Ég fékk mér tvo Guppy (kk og kvk) og þau eru alltaf uppi á yfirboðinu :? . Eru þetta bara þannig fiskar sem eru bara alltaf á yfirboðinu, ég spyr ykkur því ég er ekki jafn fróður og þið um fiska :D ?
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Þá er gott að lesa sér til um fiskana, þú getur fundið fullt af upplýsingum um gúbbífiska bara ef þú ferð í "leita" hér á spjallinu. Eða að nota hinn stórfenglega, víðfræga vef sem heitir hvorki meira né minna en google.com
Hér eru tveir góðir linkar sem ég fann við það einfaldlega að leita "guppy" á google. Hér geturu lesið næstum því allt sem vita þarf um guppy.

http://en.wikipedia.org/wiki/Guppy
http://www.guppies.com/


En jú gúbbí eru yfirborðsfiskar og synda mikið/aðallega þar.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
jonsighvatsson
Posts: 185
Joined: 24 Jun 2010, 12:06

Post by jonsighvatsson »

Mengað vatnið í búrinu eða súrefnisleysi ?
rauðbakur
Posts: 35
Joined: 07 Jun 2010, 10:04
Location: álftanesi

Post by rauðbakur »

Takk síklíða :D

En er þetta kannski útaf því að ég er með gullfiska í búrinu líka?
vikar m
Posts: 124
Joined: 10 May 2010, 22:02
Location: akureyri
Contact:

Post by vikar m »

rauðbakur wrote:Takk síklíða :D

En er þetta kannski útaf því að ég er með gullfiska í búrinu líka?
burt með gullfiskana
ég er alveg kex óður í fiska
54l
seyðakassi úr rúmfó
og gullfiskur
http://kaninur-fiskar.blogcentral.is/

:hákarl: :sybbinn:
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

vikar m wrote:
rauðbakur wrote:Takk síklíða :D

En er þetta kannski útaf því að ég er með gullfiska í búrinu líka?
burt með gullfiskana
Að sumu leiti er þetta rétt hjá vikar m en mér finndist réttast af honum a.m.k. að útskýra mál sitt.

Gullfiskar eru kaldavatnsfiskar og kjósa kaldara vatn en flestir hitabeltisfiskar (gullfiskar 16-20°C, aðrir hitabeltisfiskar 24-26°C og allt upp í 28-30° hjá sumum).
Gúbbífiskar eru frekar heitfengnir og dafna best í 27-28° hita.

En á hinnbógin eru þetta hvort tveggja harðgerðir fiskar sem þola mikið og geta alveg lifað í sátt og samlyndi, persónulega finnst mér ekki gaman að blanda fiskum með svona ólík skilyrði saman en það er smekkur hvers og eins.

Þetta er nú örugglega ekki gullfiskunum að kenna að þeir eru mikið við yfirborðið.

Helst dettur mér í hug súrefnisskortur í vatninu, og fiskarnir "lepja" yfirborðið. Til að koma í veg fyrir þetta er sniðugt að láta bununa úr dælunni gára vatnið og koma yfirborðinu á meiri hreyfingu, jafnvel svo myndist loftbólur.

Það væri gott að fá smá upplýsingar um búrið hjá þér til að geta leyst þetta (ef eitthvað er).

Búrstærð?
Íbúar?
Dælubúnaður?
Hitastig?
Hversu oft þú skiptir um vatn og hversu mikið í einu?

Ég vona að þetta hjálpi.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
rauðbakur
Posts: 35
Joined: 07 Jun 2010, 10:04
Location: álftanesi

Post by rauðbakur »

Ég er með 125l búr með miklum gróðri. veit ekki nafn á dælu en þetta er gamla gerðin af juwel búrinu. hita stigið er í kringum 26-27°c og skyfti 50% af vatninu í hverri viku

íbúar eru 3 gullfiskar,2 platty,2 sverðdragar og 2 gubby.
Post Reply