2 stk Red Spot Severum til sölu. SELT.

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

2 stk Red Spot Severum til sölu. SELT.

Post by Gilmore »

Alveg gullfallegir fiskar. Ég held að þetta sé par, en þeir eru allavega búnir að hrygna einu sinni, en þetta gætu þó verið 2 kerlingar.

Verð: 6000kr fyrir báða. (Stk kostar rúmar 7000kr hjá Tjörva í sérpöntun).


Hérna eru myndir af þeim, en þeir hafa stækkað helling síðan þær voru teknar.

viewtopic.php?t=9910
Last edited by Gilmore on 10 Sep 2010, 08:00, edited 2 times in total.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

hvernig gekk að hafa þá með óskar? urðu þeir ekkert undir? Hvað eru þeir orðnir stórir?
kom eitthvað úr hrygningunni? (einhverstaðar las ég að þetta ræktunarafbrigði væri ófrjótt?)
-Andri
695-4495

Image
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Ekkert mál að hafa þá með Óskar. Þeir eru samt ekki eins frekir á matartímum, en þeir fá samt alveg sitt. Óskararnir voru ekki að skipta sér mikið af þeim.

Þeir eru orðnir ca. 12 cm núna. En það kom ekkert út úr hrygningunni, eggin hafa sennilega verið étin en þau voru horfin eftir nóttina.

Það er mikið til í því að þeir séu ófrjóir. En mig minnir að það þurfi sérstakar aðferðir til að ná þessu afbrigði. Þess vegna eru þeir sjaldgæfari og mikið dýrari en venjulegir Severum, því það er töluvert mál og vinna að rækta þá. En fallegir eru þeir, margir sem ruglast á þeim og Discus. :)
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Hvað þurfa þeir stórt búr?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

200 lítra fyrir par, en svo bara því stærra því betra.
Post Reply