Þórir og Guðlaug. Búrin okkar.

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Þórir og Guðlaug. Búrin okkar.

Post by thorirsavar »

Breytt þráð 14.4.2010.

360Lítra MP búr.

Íbúalisti:
2x Rocio octofasciatum (Jack Dempsey)
2x Thorichthys meeki (Firemouth)
2x Aequidens pulcher (Blue acara)
1x Pleggi

Allt ungfiskar. 4-8cm stórir.

Gróður: Anubias nana, anubias nana mini(Mjöög litlar), ceratophyllum demersum, egeria densa og 2x dverg sverðplöntur.

Stóri steinninn reif ég upp úr garðinum hjá pabba. Hann var með þennan hnullung í búrinu sínu fyrir 15-20árum síðan :-)

Dæla: Eheim 2028

Image

Image

Image

Image

Image

Image

=================================================================

160Lítra MP búr.

Íbúalisti:
2x Rocio octofasciatum (Jack Dempsey)
1x Óþekktur afríkani sem við fengum gefinns hjá Guðmundi
2x Brúsknefir


Dæla: Eheim 2213

Ekki ánægð með uppsetninguna, erum alltaf að hræra í þessu búri :?

Image

Image
Snillingurinn. Mynd tekin í öðru búri.

=================================================================

90Lítra Rena gróðurbúr.

Íbúalisti:
10x Neon Tetrur
10x Danio rerio (Sebra dannar)
4x Puntius tetrazona (Tiger Barb)
3x Brúsknefir ( Mjög ungir )


Gróður: Jave fern, anubias nana, anubias nana mini, pistia stratiotes, ceratophyllum demersum, egeria densa, echinodorus tenellus, cabomba piauhyensis(höldum við) og ein sem gæti verið apongogeton crispus.

Það er ein T8 18W pera í búrinu sem ég held að sé ekki nóg. Ætla setja 2x T5 perur í eitthvertíman á næstunni.

Image

Image

Image

=================================================================

60Lítra Tetra

Íbúalisti:
2x Pomacea bridgessii (Eplasniglar)
5x Black Molly
4x Sverðdragar
3x Gubby


Gróður: pistia stratiotes, ceratophyllum demersum, egeria densa, cabomba piauhyensis(höldum við).

Image

Image

=================================================================

30Lítra seiðabúr

Íbúalisti:
--

Ekki í notkun eins og er.

Takk fyrir okkur og endilega gerið athugasemdir :D

Myndirnar voru teknar á Sony Alpha 100 vél sem ég fékk lánaða frá pabba. Tek það fram að ég kann ekkert á ljósmyndir né vinnslu í kringum þær.
Last edited by thorirsavar on 14 Apr 2010, 21:57, edited 7 times in total.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Þetta er alveg hlussu snigill þarna í 30L búrinu!

Finnst 90L búrið mjög fallegt hjá ykkur :-)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Flott grjót :)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Fallegir Dempsey, en þeir eru Rocio ekki Cichlasoma.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

Já þetta kemur vel út hjá ykkur, sérstaklega 90l búrið.
Er þetta Amazon sverðplanta lengst til vinstri, frekar framarlega í 90l búrinu?
thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Post by thorirsavar »

prien wrote:Já þetta kemur vel út hjá ykkur, sérstaklega 90l búrið.
Er þetta Amazon sverðplanta lengst til vinstri, frekar framarlega í 90l búrinu?
Já held að þetta sé amazon sverðplanta, veit samt ekki hvort hún geti verið stór..
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

jú hún getur orðið vel stór, ég er með eina sem er 40-50 cm há
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Post by thorirsavar »

Þarf að fara breyta þessum pósti. Erum búin að gjörbreyta öllu. Keyptum okkur 360Lítra MP búr um daginn og breyttum vel til.

Reyni að henda inn myndum á morgun :)
thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Post by thorirsavar »

Vorum að uppfæra þráðinn og settum inn myndir af nýja búrinu okkar. Endilega segið okkur hvernig ykkur finnst :D
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Skemmtilegt val á fiskum og uppsetningarnar eru alveg aðdáunarverðar. Sjálfur þarf ég að setja rætur og gróður í búrið hjá mér.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Nielsen
Posts: 218
Joined: 11 Mar 2010, 21:34

Post by Nielsen »

hvar get ég fundið svona steina?
þeir eru AWESOME
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

360L búrið er glæsilegt. Rótin og steininn eru hrikalega flott!
Svolítið tómlegt samt fyrir minn smekk :)
Verður enn flottara þegar gróðurinn hefur vaxið meira. 8)
Annars eru öll búrin ykkar mjög flott og vel uppsett.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Post by thorirsavar »

Var að reyna taka myndir af búrunum mínum, ég kann ekkert á þessa myndavél og mér fannst allt misheppnast, set inn hérna 3 myndir af 160L búrinu, gróðurinn er farinn að taka vel við sér í því.

Image

Image

Image

Þarf svo að fara uppfæra þráðinn betur.[/url]
eddi
Posts: 117
Joined: 17 Aug 2010, 00:15
Location: Álftanesi

Post by eddi »

þetta svakalega flott hjá ykkur. en þessi steinn er geðveikislega flottur :D
Kv:Eddi
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

Er rauða plantan í 60l Tetra búrinu enn lifandi?
thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Post by thorirsavar »

prien wrote:Er rauða plantan í 60l Tetra búrinu enn lifandi?
Nei þvímiður drapst hún frekar fljótlega, enganvegin nógu öflug lýsing fyrir hana.
thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Post by thorirsavar »

Nokkrar myndir af tveimur búrunum okkar. Ekki sáttur með myndgæðin, kann ekkert á myndavélar og veit ekki alveg hvernig er best að ná góðum myndum af fiskur :?

Image
Heildarmynd af 360L

Image
Þetta er eitthver leiðinda þörungur sem við erum að berjast við. Drekkir öllum plöntum og steinum í búrinu :?

Image

Image
User avatar
Jaguarinn
Posts: 1141
Joined: 20 Oct 2007, 16:07

Post by Jaguarinn »

flott búr hjá þér .
:)
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

Ég náði að drepa þennann þörung með Tvöföldum skammti af Flourish Excel.
Vallisnerian mun samt að öllum líkindum ekki þola þennan skammt af Excel.
Hjá mér linaðist hún upp og varð að drullu.
Þekki fleiri dæmi um það.
thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Post by thorirsavar »

prien wrote:Ég náði að drepa þennann þörung með Tvöföldum skammti af Flourish Excel.
Vallisnerian mun samt að öllum líkindum ekki þola þennan skammt af Excel.
Hjá mér linaðist hún upp og varð að drullu.
Þekki fleiri dæmi um það.
Eitthvað hlýtur það að hafa kostað :-) Mannstu hvað þú þurftir að gera þetta í langan tíma? Og hefurðu ekkert verið að nota þetta eftir að þú náðir að drepa hann niður eða ertu ennþá að nota þetta í dag?
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

thorirsavar wrote:
prien wrote:Ég náði að drepa þennann þörung með Tvöföldum skammti af Flourish Excel.
Vallisnerian mun samt að öllum líkindum ekki þola þennan skammt af Excel.
Hjá mér linaðist hún upp og varð að drullu.
Þekki fleiri dæmi um það.
Eitthvað hlýtur það að hafa kostað :-) Mannstu hvað þú þurftir að gera þetta í langan tíma? Og hefurðu ekkert verið að nota þetta eftir að þú náðir að drepa hann niður eða ertu ennþá að nota þetta í dag?
Þörungurinn var byrjaður að láta verulega á sjá eftir viku.
Hélt þessu áfram þar til hann var horfinn, man ekki allveg hversu lengi, svo ég sé nú ekki að ljúga einhverju.
Svolítið langt síðan ég gerð þetta (rúmt ár).
Fékk mér nýjar Vallisneriur og hef haldið áfram notkun á Excel í ráðlögðum skömmtum en þær hafa aldrei þrifist almennilega, alltaf hálf tætingslegar og linar einhvernveginn.
Tek fram að allur annar gróður vex eins og honum sé borgað fyrir það.
Hætti að gefa Excel fyrir 2 vikum síðan og því ekki kominn reynsla á það hvort það skipti máli fyrir Vallisneriurnar, nú eða þá að annar gróður fari að dala eitthvað.
Og já, kostnaður við Excel er allt of mikill fyrir svona stór gróðurbúr.
Þetta hentar sjálfsagt betur í minni búr.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

mæli með að klippa burt mjög illa farin blöð á anubiasnum.
Hafa hann þar sem er minni birta. Anubias þolir mjög litla birtu*.
Þörungar eiga það til að vaxa á hægvaxta plöntum.
Mjög leiðinlegt. :?

(* er til dæmis með tvo anubias í ljóslausu búri og
ég þurfti að taka vatnið úr því þannig að það er c.a 10cm af vatni
í búrinu, bara ræturnar eru í vatni og blöðin standa upp úr.
Plönturnar eru búnar að vera svona í margar vikur og eru mjög
fallegar :)
úða á þær vatni á c.a 2ja vikna fresti.)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Post by thorirsavar »

Ok takk fyrir þetta Elma, klippum þær til. En það er ekki skrítið að þörungurinn setjist svona á anubiasinn, þessi þörungur er útum allt búr og er að gera okkur brjáluð. Verð að fara reyna gera eitthvað til að stoppa hann.
thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Post by thorirsavar »

UV Ljós virkar ekki á þennan þörung er það?
thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Post by thorirsavar »

Fórum að ráðum Eiríks(prien) og fengum okkur Fluorish Excel til að láta reyna á þennan þörung og það er að svínvirka. Búin að setja þetta efni í búrið núna í tvær vikur og er stór hluti af þörunginum farinn.

Fékk svo í gær einn Golden Line Royal Panaque Pleco L027 hjá Tjörva. Þarf að fara koma með myndir af þessu bráðum.
thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Re: Þórir og Guðlaug. Búrin okkar.

Post by thorirsavar »

Hérna eru nokkrar nýjar myndir af búrunum okkar.

Image
Jack Dempsey kallinn.

Image
Jack Dempsey parið.

Image
90L búrið. Vorum að losa okkur við flesta fiskana úr því, ætlum að hafa bara 30-40 neon tetrur í því.

Image
Regnbogasíkliðurnar með seiði.

Image
Heildarmynd af 160L búrinu. Fiskarnir eru allir í felum útaf seiðunum hjá síkliðupainu. Ætlum að fara breyta til í þessu búri mjög fljótlega.
Last edited by thorirsavar on 13 Feb 2011, 16:10, edited 3 times in total.
Ási
Posts: 423
Joined: 15 Nov 2010, 13:43
Location: mosó

Re: Þórir og Guðlaug. Búrin okkar.

Post by Ási »

sé ekki myndirnar :(
400l búr sem á eftir að verða monster búr og
búin að breyta nafninu í Ási úr red
Kv.Ásbjörn
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Þórir og Guðlaug. Búrin okkar.

Post by Vargur »

Íslenskir stafir í urlinu.
thorirsavar
Posts: 126
Joined: 19 Jan 2010, 21:38
Location: Sandgerði/Reykjanesbær

Re: Þórir og Guðlaug. Búrin okkar.

Post by thorirsavar »

Vargur wrote:Íslenskir stafir í urlinu.
Þakka fyrir :)
Ási
Posts: 423
Joined: 15 Nov 2010, 13:43
Location: mosó

Re: Þórir og Guðlaug. Búrin okkar.

Post by Ási »

flott búr
400l búr sem á eftir að verða monster búr og
búin að breyta nafninu í Ási úr red
Kv.Ásbjörn
Post Reply