Yellow Lab búrið mitt (85 l)

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
BB
Posts: 78
Joined: 07 Apr 2007, 21:10
Location: moso

Yellow Lab búrið mitt (85 l)

Post by BB »

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af búrinu.Ég er með nokkra Yellow Lab og langar að vita meira um þá.
Er með fjóra litla(3-4 cm) laba og þeir eru oft að elta hvorn annan í hring eftir hring.Allt kallar?
Er með tvo aðra (5-6 cm) sem fara stundum í svona hringien miklu minna en hinir.Kallar?Ég er ekki viss um hvort að þeir séu orðnir kynþroska því að ég er með einn í viðbót (7 cm) sem er miklu litmeiri og með svartari ugga.Kall?Ég keypti þessa þrjá á sama tíma og þá voru þeir mjög svipaðir á stærð og engin orðinn svona dökkur og fallegur,en svo hefur þessi 7 cm orðið stærri og litmeiri en hinir tveir, og það gerðist fyrir þó nokkru síðan og mér finnst skrítið að þeir skuli ekki fara að ná honum eftir svona langan tíma.

[img]http://www.fishfiles.net/up/1011/t_s2uf ... úr_011.jpg[/img]
[img]http://www.fishfiles.net/up/1011/t_v9ix ... úr_003.jpg[/img]
[img]http://www.fishfiles.net/up/1011/t_zdyv ... úr_015.jpg[/img]
[img]http://www.fishfiles.net/up/1011/t_ykql ... úr_004.jpg[/img]
[img]http://www.fishfiles.net/up/1011/t_veap ... úr_009.jpg[/img]
[img]http://www.fishfiles.net/up/1011/t_7iz6 ... úr_007.jpg[/img]
[img]http://www.fishfiles.net/up/1011/t_7asz ... úr_006.jpg[/img][/img]
Toni
Posts: 488
Joined: 05 Nov 2006, 12:41

Post by Toni »

áttu ekki stærri myndir ?

en ég myndi halda að það sé kk á mynd númer 3. svo svartir uggarnir neðan á honum
BB
Posts: 78
Joined: 07 Apr 2007, 21:10
Location: moso

Post by BB »

Nei því miður ég á ekki stærri myndir en er að vinna í því.Koma kannski seinna með nýum myndum.
Í sambandi um mynd nr.3 þá datt mér í hug að hann væri kall.

En það var einhver á spjallinu sem sendi svar við spurningu um þessa hringi sem þeir fara stundum í,og þannig datt mér í hug að þessir littlu væru kallar því allir þeir hafa oft farið í svona hringi.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

þegar þeir bíta saman vörunum og eða synda í hringi um hvorn annan,
þá eru þeir að mæla hvorn annan út, hver er sterkastur og hver á að ráða
(yfir búrinu eða einhverjum stað í búrinu)
þessir litlu eru líklega að æfa sig í þessu.
En það væri sniðugt að uppfæra búrið fljótlega, þessir fiskar eiga ekki heima í 85L búri.
Myndi láta þá í allavega 180L eða stærra.
Þessir fiskar verða allavega 10cm.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
BB
Posts: 78
Joined: 07 Apr 2007, 21:10
Location: moso

Post by BB »

Ég veit að þett er í minni hlutanum.
En ertu að segja að þetta þurfa ekki endilega að vera kallar :?:
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

örugglega eitthvað um kvk hjá þér. :wink:
Bara erfitt að sjá það þegar þeir eru litlir.
en karlarnir eru venjulega með dekkri ugga og dekkri gotraufarugga.
og dökkna aðeins í framan og á kviðnum.
uggarnir eru líka oddhvassari en á hrygnunum (bakugginn og gotraufarugginn)
karlarnir fá líka eggjabletti á gotraufaruggan, en ekki alltaf, eða þá mjög litla.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
BB
Posts: 78
Joined: 07 Apr 2007, 21:10
Location: moso

Post by BB »

Takk Keli og Elma.
Næst síðasta myndin er af 4-6 cm fiski sem ég veit ekki hvort sé ekki orðinn kynþroska kona eða karl, eða fullþroskuð kona?
Last edited by BB on 09 Nov 2010, 21:40, edited 1 time in total.
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

mjög flott búr :D
kristinn.
-----------
215l
BB
Posts: 78
Joined: 07 Apr 2007, 21:10
Location: moso

Re: Yellow Lab búrið mitt (85 l)

Post by BB »

Voru að hryggna í þriðja skiptið
Post Reply