Sjávarsafn

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Sjávarsafn
Posts: 10
Joined: 31 Jan 2011, 22:28

Sjávarsafn

Post by Sjávarsafn »

Er að fara setja upp fiskasafn með helstu fiskum,krabbadýrum,lindýrum og upplýsingum um þau..
Er kominn með land og er að semja við nokkra aðila um húsakost
stálgrindarbraggi grár á lit verður örugglega fyrir valinu...

Breiddin á búrunum verður örugglega 1,5 metrar og hæðin 1,5 lengdin um 3 metrar og set í þau í samræmi við það....
Veit ekki úr hverju ég á að hafa þau.. vil helst halda kostnaði niðri en samt hafa þetta smekklegt...
járn,stál,trefjaplast,steypa?
Mun dæla sjó í búrin og á eftir að finna mér góðar dælur...
verð með snertibúr þar sem börnin geta fiktað í krossfisk og hinu og þessu.
Mun byrja smátt til að kostnaðurinn bugi mig ekki..
Allar ábendingar,ráð,heilræði vel þegin....
Ási
Posts: 423
Joined: 15 Nov 2010, 13:43
Location: mosó

Re: Sjávarsafn

Post by Ási »

Hvar á svo þetta að vera á landinu?
400l búr sem á eftir að verða monster búr og
búin að breyta nafninu í Ási úr red
Kv.Ásbjörn
Sjávarsafn
Posts: 10
Joined: 31 Jan 2011, 22:28

Re: Sjávarsafn

Post by Sjávarsafn »

á austurlandinu.. Breiðdalsvík
Sjávarsafn
Posts: 10
Joined: 31 Jan 2011, 22:28

Re: Sjávarsafn

Post by Sjávarsafn »

átti von á meiri svörum... en finn mér þessar upplýsingar bara annarstaðar...
User avatar
ellixx
Posts: 565
Joined: 02 Mar 2010, 12:42
Location: Hafnarfjörður

Re: Sjávarsafn

Post by ellixx »

samkvæmt þessari síðu þarf glerið að vera 38mm þykt og búrið verður 6750 litrar

http://www.theaquatools.com/building-your-aquarium

grunar að það sé best að nota steipu eða krossvið og hafa frontin eitthvað skiftan ,með stoð á milli til að sleppa með þinnra gler.

nokkrar hugmyndir.
http://www.youtube.com/watch?v=lrZhdPvwC60
http://www.youtube.com/watch?v=wGRFLZErAWg
http://www.youtube.com/watch?v=Q7nKf_kE4YI

annars er ég engin sérfæðingur.
kveðja
Erling
180 lítra juwel.
54 lítra mp. til sölu
30 lítra tetra. gaf brósa :)
1200 lítra rekki. hættur ....... selt ,hent
Canon EOS 500D
Sigma 18-200.
Sjávarsafn
Posts: 10
Joined: 31 Jan 2011, 22:28

Re: Sjávarsafn

Post by Sjávarsafn »

þakka þér... var reyndar búinn að skoða þetta... en þetta er agaleg þykkt á glerinu... verð aðeins að skoða þetta betur...
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Sjávarsafn

Post by Vargur »

Það gæti verið sniðugt að kíkja á safnið í Vestmannaeyjum til að fá hugmyndir.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Sjávarsafn

Post by keli »

Þessi mikla hæð gerir miklar kröfur til glersins - það gæti verið sniðugt að hafa búrið lægra, eða steypa búrið upp og hafa glerið bara á efstu 80cm af búrinu til dæmis - myndi spara mikið í glerkostnað.

Það er líklega ódýrast að steypa svona búr upp, glerið er illfáanlegt yfir 20mm hér á landi, þannig að það þyrfti að sérpanta glerið með tilheyrandi aukakostnaði. Svo vill maður líklega bæta einhverju við í þykktinni þar sem þetta yrði í safni þar sem fólk gengur mis vel um.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Sjávarsafn
Posts: 10
Joined: 31 Jan 2011, 22:28

Re: Sjávarsafn

Post by Sjávarsafn »

Þarf að sía sjóinn áður en ég dæli honum í búrin eða?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Sjávarsafn

Post by keli »

Sjávarsafn wrote:Þarf að sía sjóinn áður en ég dæli honum í búrin eða?
Það fer eftir því hvaðan hann kemur, en það borgar sig líklega að setja allavega einhverja grófa síu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Sjávarsafn
Posts: 10
Joined: 31 Jan 2011, 22:28

Re: Sjávarsafn

Post by Sjávarsafn »

tek það úr fjörunni legg rör útí sjó og útbý mér síu úr netadræsum eða einhverju svipuðu....
þakka fyrir ábendingarnar sem ég hef fengið..... en með búrin
Er að spá í að vera með Plexiglerplötu - Polycarbonate á að vera höggþolið sem front er samt ekki viss..ef einhver er með betri hugmynd þá er hún vel þegin....
Er enn að spá í hvort að ég eigi að vera með timbur eða stál rekka eða hvað þið kallið þetta....
Kominn með húsnæði en er að redda rafmagni í það... legg ekki í að byrja á neinu áður en það kemur...
Post Reply