Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
jonsighvatsson
Posts: 185
Joined: 24 Jun 2010, 12:06

Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Post by jonsighvatsson »

Málið er þar með vexti að hann aron sem er oranda gullfiskur fær blöðru(ur) á sporðinn fyrst fékk hann eina blöðru , sem fór af sjálfu sér. Svo birtast tvær eða þrjár 2 vikum seinna og þá ákveð ég að setja hann í sjúkrabúr með tetra general tonic. Og þannig "hverfur" vandamálið á ca.3 dögum... ath samt hef ég hann í ca10 daga í sjúkrabúrinu með lyfið í gangi. Síðan læt ég hann aftur í stóra búrið (260lítrar 4xgullfiskar) ca 2 dögum seinna þá fer bóla aftur að myndast á sama stað og ég sá þá upprunalegu. !! ARG

Aldrei orðið var í neinum tilvikanna að hann hafi orðið slappur . Samt núna sé ég hann stundum taka sér hvíld innan um gróðurinn öðruhvoru í skamma stund í senn.

lýsing á bólunni.
1.þetta er of stórt til að vera ich
2.þetta er eins og vatnsblaðra, nánast glær.
3. Virkar ekki eins og sveppur , allavegana ekki hingað til.
4. ekki séns að taka mynd af þessu, bæði of lítið og fiskurinn er alltaf á ferð þegar hann heyrir í mér.

Vatnsgæði
skv.Tetra test 6in1 þá er allt í "o.k." range no2 og no3 eru í lágmarki, varla greinanlegt
Tvisvar skipt er um vatn (20%) einu sinni í viku, filterar teknir í gegn mánaðarlega.
1200L/klst tunnudæla einnig standard juwel dælan í gangi 24/7 + o2 + co2 diffusion

Von um góð svör frá félögum mínum hérna :) ég hugsa að ég hætti með fiska ef þessi tiltekni fiskur deyr, hef átt hann í bráðum 3ár .

Image
Image
User avatar
jonsighvatsson
Posts: 185
Joined: 24 Jun 2010, 12:06

Re: Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Post by jonsighvatsson »

hjálp takk :væla:
User avatar
jonsighvatsson
Posts: 185
Joined: 24 Jun 2010, 12:06

Re: Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Post by jonsighvatsson »

crap , núna eru bólurnar orðnar 3x og á sama stað og þegar ég setti hann í sjúkrabúr á sínum tíma. í dag prófaði èg að setja smá salt
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Post by Vargur »

Þetta er algengt á fiskum með mikið slör. Orsökin er sú að fiskurinn skaddast lítilega á slörinu og þegar það grær myndast smá hnúður.
User avatar
jonsighvatsson
Posts: 185
Joined: 24 Jun 2010, 12:06

Re: Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Post by jonsighvatsson »

Þetta er alveg ótrúlegt, setti hann í 20lítra sjúkrabúr (AFTUR) með general tonic í 2-3 vikur, og allt farið strax.. þessar bólur sem myndast . Svo bara dagin eftir að ég læt hann í stóra búrið þá fara þessar bólur að poppa upp !! Ég sé ekki betur en honum klægji í þetta :(

Ég er ekki að skilja þetta , búinn að mæla búrið no2-no3 = 0,0% NH4 = 0 . 260lítrar 4 gullfiskar

Getur dýralæknir gert eitthvað í þessu ? fyrir utan að höggva af honum hausinn ? :(

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Post by keli »

Frekar ólíklegt að dýralæknir geri mikið annað en að rukka þig fúlgur fjár fyrir að líta á þetta :)

Ég bendi bara á það sem Vargur skrifaði hér fyrir ofan.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Post by Andri Pogo »

er þetta nokkuð meira en eitthvað sem þér finnst ljótt? Er hann að klóra sér í þessu?
Verðuru ekki bara að horfa framhjá þessu ef þetta er ekkert að skaða fiskinn?
-Andri
695-4495

Image
User avatar
jonsighvatsson
Posts: 185
Joined: 24 Jun 2010, 12:06

Re: Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Post by jonsighvatsson »

Skrítið að hann skaddist á sama stað um leið og hann erkl settur aftur í stóra búrið , já honum klæjar í þetta sýnist mèr , er að reyna klóra sèr
Tango
Posts: 162
Joined: 15 Apr 2011, 10:44
Location: Hafnafjörður

Re: Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Post by Tango »

smá hugmynd, afhverju saltarðu ekki aðal búrið sem hann er í ? ég hef nokkrum sinnum saltað búrin mín og fiskunum líkar það bara vel
---------------------------
530 L síklíðu búr.
200 L þrískipt uppeldisbúr.
130 L Gotfiskabúr.
130 L froskabúr.
4 X 200 L Rekki.
User avatar
jonsighvatsson
Posts: 185
Joined: 24 Jun 2010, 12:06

Re: Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Post by jonsighvatsson »

Ég er búinn að bæta 200gr. Í 250l bùrið , get ekii séð að hann sé að lagast
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Post by Sibbi »

Ég mundi nú bara farga þessum gullfisk, lýtaaðgerðir eru nefnilega rándýrar, og sýnist allt stefna í það hjá þér.
Gullfiskar eru ekki svo dýrir, og ábyggilega hægt að fá þá "notaða :)" hér á spjallinu.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
jonsighvatsson
Posts: 185
Joined: 24 Jun 2010, 12:06

Re: Aron pálmi (GULLFISKUR) að gera mig nuts! HJÁLP

Post by jonsighvatsson »

Bara spes hvað þetta hverfur eins og dögg fyrir sólu þegar maður lætur hann í annað búr með lyfi í . En nei langar ekki að farga honum þetta er Aron pálmi!
Post Reply