Viðurinn litar vatnið gult

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Zedda
Posts: 39
Joined: 29 Mar 2008, 22:59

Viðurinn litar vatnið gult

Post by Zedda »

Við vorum í smá vandræðum með sýrustigið í búrinu og fundum það út á netinu að þá væri gott ráð að bæta við út í búrið. Við keyptum viðarbút í dýrabúð, létum hann liggja í vatni í sólahring og skoluðum hann svo áður en hann fór útí fiskabúrið.

Góðu fréttirnar eru þær að sýrustigið er orðið nokkuð gott bara :)
Slæmu fréttirnar eru þær að vatnið í búrinu er gult!

Er það slæmt að vatnið sé orðið svona gult? Er einhver leið til að laga það? :P

Við skiptum 1/3 af vatninu út fyrir sirka 2 dögum, en gerði nú svosem ekki mikið.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Viðurinn litar vatnið gult

Post by keli »

Viðurinn á eftir að lita næstu mánuðina. Það fer minnkandi en í raun ómögulegt að koma í veg fyrir það.

Liturinn er ekkert verri fyrir fiskana og líkir í raun betur eftir náttúrulegu umhverfi þeirra. Passaðu bara að sýrustigið lækki ekki of mikið. Hvaða fiska ertu með?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Viðurinn litar vatnið gult

Post by Andri Pogo »

Liturinn er ekki hættulegur fiskunum en hann fylgir oft trjárótum. Ef þú vilt síður fá litinn geturu prófað að láta renna á rótina í baðkari t.d. í góðan tíma eða skellt henni í uppþvottavél (án sápu auðvitað).
-Andri
695-4495

Image
Terrapedes
Posts: 20
Joined: 02 Apr 2013, 15:49

Re: Viðurinn litar vatnið gult

Post by Terrapedes »

Þetta er tannín. Hverfur smá saman
Ólöf

100L GRÓÐURBÚR

17L GRÓÐURBÚR
Zedda
Posts: 39
Joined: 29 Mar 2008, 22:59

Re: Viðurinn litar vatnið gult

Post by Zedda »

Við erum með sverðdraga, plegga, platy, tetrur, corydoras og black molly.

Sýrustigið virðist vera stopp við sirka 7, ef það fer að verða of basískt þá skellum við bara nokkrum skeljum útí hehe :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Viðurinn litar vatnið gult

Post by keli »

Viðurinn lækkar sýrustigið (vatnið verður súrara), þannig að það er lítil hætta á því að það verði of basískt. En skeljar væru ráð til að gera það basískara. Ég hugsa að þú þurfir samt ekkert að pæla í því.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Viðurinn litar vatnið gult

Post by Sibbi »

keli wrote:Viðurinn lækkar sýrustigið (vatnið verður súrara)
Keli, hvað er gott, og hvað er slæmt við það?
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Viðurinn litar vatnið gult

Post by keli »

Venjulega skiptir það ekki miklu máli nema maður sé með mikið af við í búrinu. Hvort það sé gott eða slæmt að lækka sýrustigið (pH) fer bara eftir því hvaða fiska maður er með. T.d. væri ekki æskilegt að vera að hrúga við með afrískum síkliðum, en mjög gott með mörgum tetrum og fiskum sem koma úr "blackwater" ám eins og rio negro ofl.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Viðurinn litar vatnið gult

Post by Sibbi »

keli wrote:Venjulega skiptir það ekki miklu máli nema maður sé með mikið af við í búrinu. Hvort það sé gott eða slæmt að lækka sýrustigið (pH) fer bara eftir því hvaða fiska maður er með. T.d. væri ekki æskilegt að vera að hrúga við með afrískum síkliðum, en mjög gott með mörgum tetrum og fiskum sem koma úr "blackwater" ám eins og rio negro ofl.
Takk fyrir þetta Keli.
En með td. Guppy og Kuðungasiklíðum?
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Viðurinn litar vatnið gult

Post by keli »

Kuðungasíkliður vilja frekar hátt pH, þannig að ég myndi frekar hafa skeljasand og svoleiðis frekar en rætur. Þær spjara sig þó sjálfsagt fínt í súrara vatni. Guppy vilja pH 7-ish og þarf venjulega ekkert að fikta í vatninu fyrir þá.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Viðurinn litar vatnið gult

Post by Sibbi »

keli wrote:Kuðungasíkliður vilja frekar hátt pH, þannig að ég myndi frekar hafa skeljasand og svoleiðis frekar en rætur. Þær spjara sig þó sjálfsagt fínt í súrara vatni. Guppy vilja pH 7-ish og þarf venjulega ekkert að fikta í vatninu fyrir þá.
Já ok,,, ruglast alltaf í þessum fjan"#$a :) og spurði vegna þess að ég er með svo mikið af rótum (litlum) í gróðurbúri hjá Guppy, rækjum og Kuðungasiklíðum, spurning hvort það sé í lagi.
með fyrirfram þökk fyrir svar, og svo skal ég ekki stela meiru af þessum þræði :-)
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Viðurinn litar vatnið gult

Post by keli »

Ef fiskarnir hafa það gott þá hafa þeir það gott, þarf ekkert endilega að breyta neinu ef búrið er í góðu jafnvægi :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply