Inline Diffuser

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
User avatar
snerra
Posts: 136
Joined: 03 Jun 2013, 21:30

Inline Diffuser

Post by snerra »

Hafa menn einhverja reynslu af svona diffuser. ? http://www.co2supermarket.co.uk/co2-inl ... fuser.html
Last edited by snerra on 09 Feb 2014, 07:17, edited 1 time in total.
Santaclaw
Posts: 59
Joined: 26 Aug 2013, 19:31

Re: Inline Diffuser

Post by Santaclaw »

Ég á svona en ekki komið því í verk að prófa hann, en hef heyrt að svona Atomizer sé frábær fyrir gróðurinn, en fer í taugarnar á sumum hvað hann rykar vatnið. Það sem mér finnst mest spennó við hann er maður losnar við draslið úr búrinu :)

Ég er með stiga í einu og svona gæja í öðru http://www.ebay.com/itm/JBL-ProFlora-Ta ... 5d450e5014

Þessi seinni alveg svínvikrar og hægt að lenga hann að vild, loftbólurnar eru nánst horfnar þegar þær ná alveg upp. :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Inline Diffuser

Post by keli »

Margir setja þetta nú bara beint á út slönguna á tunnudælunni sinni. Einstefnuloka (sem eru oft í þrýstijöfnurunum) og málið er dautt. Ekki viss um að maður þurfi sér græju í þetta nema maður sé að nota brjálað mikla kolsýru í búrið (stórt búr)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
snerra
Posts: 136
Joined: 03 Jun 2013, 21:30

Re: Inline Diffuser

Post by snerra »

Það er einmitt málið búrið er 720 lítra hvað eru þið að skipta oft út vatni ?
User avatar
snerra
Posts: 136
Joined: 03 Jun 2013, 21:30

Re: Inline Diffuser

Post by snerra »

:roll: Það er einmitt málið búrið er 720 lítra hvað eru þið að skipta oft út vatni ?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Inline Diffuser

Post by keli »

Fer algjörlega eftir aðstæðum hvað þú þarft að skipta oft. Ef þú ert með mikið af plöntum og frekar lítið af fiskum þá þarf ekki að skipta oft.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Santaclaw
Posts: 59
Joined: 26 Aug 2013, 19:31

Re: Inline Diffuser

Post by Santaclaw »

keli wrote:Margir setja þetta nú bara beint á út slönguna á tunnudælunni sinni. Einstefnuloka (sem eru oft í þrýstijöfnurunum) og málið er dautt. Ekki viss um að maður þurfi sér græju í þetta nema maður sé að nota brjálað mikla kolsýru í búrið (stórt búr)

Er Atomizerinn ekki alltaf settur á slönguna á tunnudælunni ? Er önnur leið ?

Og Hvaða aðra "sér" græju ertu að vitna í ? Eða ertu að meina að Atomizerinn sé "sér" græjan og margir setja bara Co2 slönguna beint í tunnudæluna án einhvers tóls sem brýtur hana niður í smærri bolur? :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Inline Diffuser

Post by keli »

hreyfingin á vatninu í slöngunum er oft(ast) nóg til að leysa kolsýruna upp.. Ekki endilega nauðsynlegt að vera með sér græju til að leysa þær upp.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Santaclaw
Posts: 59
Joined: 26 Aug 2013, 19:31

Re: Inline Diffuser

Post by Santaclaw »

Aha.. ég skil :)

Ég mundi samt hiklaust nota svona, hlýtur að nýta kolsýruna mikið betur, yfirborðið verður margfalt og svo þetta ekki dýrt :)
En ég er líka græjuóður!
User avatar
snerra
Posts: 136
Joined: 03 Jun 2013, 21:30

Re: Inline Diffuser

Post by snerra »

Ef maður er að nota kolsýru er þá ekki eina vitið að vera með ph controler ? svo maður drepi ekki öll kvikindin í búrinu
svanur
Posts: 63
Joined: 26 Sep 2009, 21:36
Location: keflavik

Re: Inline Diffuser

Post by svanur »

Ég var automiser í ca 2 ár,hef líka verið með keramikdisk og utanáliggjandi diffuser ásamt poweheaddrifnum svo ég veit smá um málið.Automiser er skilvirkasta co2 græjan sem ég hef verið með.Það er mjög mikilvægt að hún sé tengd við úrtaksslönguna á tunnudælunni því þetta er í raun keramikhólkur sem fyllist af óhreinindum mjög fljótt ef hann er staðsettur annarsstaðar en er alveg viðhaldsfrír á úrtakinu ef tunnudælan er að virka vél.Skifta honum svo bara út einu sinni á ári,hann er það ódýr að það tekur því ekki að þrífa hann,er samt hægt að leggja hann í klórblöndu í 20 mínútur og skola svo vel eins og venjulegan keramikdisk en mistrið verður með stærri loftbólum.
Eitt er þó sem þarf að spá í..margir þrýstijafnarar sem eru keyptir sérstaklega fyrir fiskabúr eru með fasta bar stillingu á 1,4-1,8 til að forða fólki frá því þegar þrýstingur fellur á kútnum þegar hann er að tæmast að hann gubbi restinni úr sér og drepi allt í búrinu.(co2 dump)
Automiser er með mjög fíngerðann keramikhring og þarf 1,8-2,2 bar til að virka vel, svo ef þú ert ekki með stillanlegt bar á þrýstijafnaranum geturðu ekki stjórnað loftbóluflæðinu.Mistrið hefur líka þann kost að þú getur nákvæmlega séð hvernig co2 er að dreyfast um búrið.
Santaclaw
Posts: 59
Joined: 26 Aug 2013, 19:31

Re: Inline Diffuser

Post by Santaclaw »

Ehhmm.. neiii neii..

Ég er með 2 búr sem eru með kolsýru.
Eitt er með Ph controler hitt ekki.

Þetta með ph controlernum er 240l hitt er 120l.
Ég mældi bara með hversu lengi kolsýran var á í stóra búrinu og hversu oft svona uþb, deildi svo bara með 2 og stillti tímarofa samkvæmt því.

Það eru bara rækjur í því búri og ekkert vesen. Minnir að það kvikni 4-5 sinnum á kolsýrunni uþb ein bóla á sek í 20 mín í senn.
Maður prófar sig bara áfram og svo fer eftir því hvað þú ert með mikinn gróður og allt það :)

Ég hef það líka sem smá viðmið ef þú sérð að plöntunar eru að gefa frá sér súrefni , perlar af þeim þá ertu kominn á mjöf fínt ról og algjör óþarfi að skrúfa meira upp í kolsýrunni.
User avatar
snerra
Posts: 136
Joined: 03 Jun 2013, 21:30

Re: Inline Diffuser

Post by snerra »

Hvað er sýrustigið ? og hversu oft þarft þú að skipta um vatn sýrir maður ekki vatnið meira en venjulega þegar maður er að setja kolsýru í það
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Inline Diffuser

Post by keli »

snerra wrote:sýrir maður ekki vatnið meira en venjulega þegar maður er að setja kolsýru í það
Bara á meðan kolsýran er uppleyst í því. Ef maður er með jafna kolsýru í vatninu þá lækkar sýrustigið augljóslega ekki.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Santaclaw
Posts: 59
Joined: 26 Aug 2013, 19:31

Re: Inline Diffuser

Post by Santaclaw »

Ef þú hefur áhyggjur af því að PH falli of mikið á meðan Co2 gjöf stendur, getur þú sett matarsóda sem buffer í vatnið. Hversu mikið fer bara eftir stærð búrs og hversu mikið af Co2 þú ert að gefa.
User avatar
snerra
Posts: 136
Joined: 03 Jun 2013, 21:30

Re: Inline Diffuser

Post by snerra »

Þar sem ég er nú byrjaður að spyrja ykkur hvað mælið þið með mörgum T5 perum fyrir 720 lítra Akvastabil búr sem gróðurbúri
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Inline Diffuser

Post by keli »

Fer algjörlega eftir gróðri, næringu og kolsýru.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
snerra
Posts: 136
Joined: 03 Jun 2013, 21:30

Re: Inline Diffuser

Post by snerra »

Sem gróðurbúr er maður þá ekki með mikið af gróðri ? Og ef þú ert með mikið af gróðri er þá ekki best að hafa kolsýru ? Allavega er ég að hugsa um það og var að velta fyrir mér að vera með 6 perur hvað finnst þér um það.?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Inline Diffuser

Post by keli »

Það fer eftir hvernig gróðri sjáðu nú til :) Lítið mál að vera með stútfullt búr af gróðri og þurfa lítið sem ekkert að pæla í kolsýru og næringu ef maður er bara með hægvaxta plöntur.

6 perur ætti að duga í margt. Passaðu samt að mikil lýsing = meiri vinna við að halda búrinu fínu og svolítið föndur í byrjun að finna jafnvægi á kolsýru, birtu og næringu svo að það fari ekki allt í þörung og vesen.

Frekar mikilvægt að byrja með sem mest af plöntum, jafnvel spurning um að fá tilboð frá verslunum í einhvern slatta af plöntum. Ef maður er ekki með plöntur til að taka næringu úr vatninu, þá tekur þörungurinn glaður við henni :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
snerra
Posts: 136
Joined: 03 Jun 2013, 21:30

Re: Inline Diffuser

Post by snerra »

Takk fyrir þessar upplysingar en losna ég við þörunginn með UV ljósi ?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Inline Diffuser

Post by keli »

Nei, en getur hugsanlega minnkað hann, amk svifþörung.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply