Búrfiskar í matinn - ekki fyrir viðkvæma?
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Búrfiskar í matinn - ekki fyrir viðkvæma?
Rakst á athyglisverðan þráð á erlendri spjallsíðu.
Þessi maður vildi skipta út fiskunum sínum, reyndi að auglýsa þá en ekkert gekk.
Í stað þess að fara með þá í búð og fá inneign og ekki vita í hvaða höndum fiskarnir lenda þá ákvað hann að... borða þá.
Þetta er Red Devil síklíðupar / Amphilophus labiatus og voru víst mjög gómsætar.
Myndirnar kunna kannski að vekja upp einhverjar neikvæðar tilfinningar, þetta var amk mjög umdeilt mál á þessum þræði.
Persónulega myndi ég ekki borða mína eigin fiska, þó svo að nokkrir fiskar sem ég á eru mikilvægir/vinsælir matfiskar erlendis.
Frekar myndi ég t.d. láta stoppa upp Pangasiusinn þegar hann væri kominn í góða stærð frekar en að grilla hann
Aftur á móti finnst mér ekki vera hægt að líkja þessu við að borða köttinn eða hundinn sinn eða álíka gæludýr en það voru vinsæl rök fyrir því hvað þetta væri rangt.
En ég vil endilega heyra ykkar skoðun á þessu máli.

Ég myndi ekki setja það fyrir mig að éta þá... En oft hefur maður gefið fiskunum lyf og jafnvel mat sem er ekki ætlast til að sé notað á fiska sem eru ætlaðir til manneldis...
Sá einmitt svipaðan þráð á mfk þar sem gaurinn át arowönuna sína... Held reyndar að hún hafi stokkið uppúr frekar en að hafi orðið of stór.

Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Ég sé svo sem ekkert að því að éta þetta þó ég haldi að búrfiskar séu í flestum tilfellum góður matur þar sem þeir fá sjálfsagt ekki nógu gott og fjölbreitt fóður.
Það má ekki gleyma því að margir þeirra fiska sem við höfum sem búrfiska éru étnir á sínum heimaslóðum. Td eru innan við 10% fiska sem eru veiddir í Malawi vatni sem eru fluttir út, restin er étin af heimamönnum.
Um daginn var fjallað um það um daginn í Ísland í dag held ég, að það sé vöntun á ýmsum fisktegundum á veitingastaði hér heima og því velt upp hvort ekki væri hægt rækta þessa fiska hér, tegundir sem meðal annars voru nefndar voru ma Clarias og Pangasius, vel þekktir búrfiskar hér á spjallinu.
Ég væri alveg til í að fara út að éta og fá mér grenivafinn íslenskan Clarias steiktan í miklu smjöri. Borinn fram með hleyptu skelfiskseyði, möndlum og ferskum jurtum.

-
- Posts: 138
- Joined: 19 Sep 2006, 02:49
- ~*Vigdís*~
- Posts: 525
- Joined: 20 Sep 2006, 19:03
- Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
- Contact:
Ég er fyrrverandi hörku hestakona og ég ét hrossakjöt með bestu lyst.~*Vigdís*~ wrote: Kannski ekki eitthvað sem ég myndi græja heima hjá mér,
en mér finnst ekkert að því þannig, í margri menningunni er það litið
hornauga að éta hrossakjöt og ekki sjáum við Íslendingar neitt að því
En virkilega skemmtileg pæling hjá Varg, hljómar meira segja
eins og eitthvað beint af matseðli
Mig myndi ekki langa að éta gullfiskana mína en ég væri alveg til í að borða einhverja framandi fiska á veitingastað.
Mér finnst
Mér finnst þetta persónuleg mjög ósmekklegt að borða fiskabúrsfiska en það er bara mitt álit eða að sjá þessar myndir vekur mér óhug
Ég fór til portúgals fyrir mörgum árum og man ég eftir því að á veitingastöðum voru stór fiskabúr, með t.d. svipuðum fiskum og þessum og þar átti maður að velja sér fisk, svo var hann háfaður uppúr og eldaður fyrir þig.
Við íslendingar þekkjum það kannski ekki að borða svona fallega fiska, en mörgum útí heimi þykir þeir sjálfsagt mun bragðbetri en soðin ýsa með kartöflum og smjöri

Eymar Eyjólfsson