Heimatilbúin bakgrunnur, smásaga

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
User avatar
Hjartagosi
Posts: 28
Joined: 08 Dec 2007, 10:38
Location: Reykjavík
Contact:

Heimatilbúin bakgrunnur, smásaga

Post by Hjartagosi »

Hæ allir mig langaði að deila með ykkur hvernig maður gerir heimatilbúin
bakgrunn úr frauðplasti(hvítum kork).

Ég byrjaði á því að kaupa mér 120 lítra búr (að mig minnir). Þreif það og
keypti loftdælu, hreinsidælu og hitara í það. Fekk búrið notað á 7000kr.
Image
Image

Fór þvínæst í BYKO og keypti sílíkonkítti fyrir fiskabúr og fékk korkinn gefins
hjá þeim. Ég fann bara tvær dældaðar plötur og spurði hvort ég mætti
hirða þær.

Image
Image

Skar svo plöturnar til og límdi saman með kíttinu

Image

Svo var farið á fullt að skera með dúkahníf, sög, rifjárni og hinu og þessu
sem var við höndina. Þetta var svolítið tímafrekt og svona eftir á séð þá
hefði verið gott að fá smá hjálp þegar maður var komin þetta langt.

Image
Image
Image

Ég bjó mér svo til littla eldvörpu úr kveikjara og svitalyktareyði :twisted:
og úðaði yfir listaverkið til þess að herða ysta lagið. Þá gætu fiskarnir
ekki verið að kroppa í þetta.

Image

Ég þurfti svo að skera þetta í þrjá búta til að koma þessu í búrið.
Ég vildi líka geta falið allar dælur og hitara með þessu eins og þið sjáið hér.

Image

Svo var bara að steypa utan á þetta og mála. Allt keypt í BYKO og
öruggt fyrir fiskabúr

Image
Image
Image
Image

Sá eiginlega pínu eftir því að hafa reynt að nota brúna litinn til að fá
einhverja skemmtilega tóna í þetta. En það skipti ekki miklu máli eins og
þið fáið að sjá hér á eftir. En allavegana þá er þetta komið ofaní búrið hér
á næstu myndum eins og þið sjáið og loftsteinninn að virka eins og í sögu.

Image
Image

Bútarnir 3 voru svo kíttaður beint á fiskabúrið.

En það er eitt sem ég ætti kannski að minnast á í sambandi við þetta
ævintýri. Svona búr vegur eitthvað í kringum 140kg þegar allt er tekið
til greina. Þegar maður ætlar að athuga hvort að hillan sem á að fara
undir búrið sé nógu sterkbyggð fyrir það er ekki nóg að 70kg maður
hossi sér á henni.

:oops:

Image

Svona til þess að klára þessa littlu skemmtilegu sögu þá endaði búrið og
bakgrunnurinn út í tunnu eftir þetta enda hélt það ekki miklu vatni í þessu
ásigkomulagi. :lol: . Ég fór þvínæst í næstu verslun og fékk þar feykilega
góðan díl á 150 lítra búri sem ég hef notað síðan. Þeir í búðinni voru mjög
almennilegir og gáfu mér góðan afslátt eftir að þeir fengu að heyra hvað
gerðist , þegar þeir hættu að hlægja það er að segja. :)
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

heheheheheehehehehehe dufus :lol:
german blue ram (4 stk.)
tetrurnar 11
taugaveiklaði perlugúraminn
gullrún gúrami
já og síkliðan sem ég hélt að væri dauð :) sem er núna DAUÐ
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

úff! æjæjæj... Þetta er svekk.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Flottar myndir og flottur bakgrunnur en síðasta myndin er heldur betur sjokkerandi. :?
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

USSS maður finnur bara til með þér en get samt ekki annað en hlegið :rofl:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvernig var að þrífa allt draslið eftir bakgrunna smíðina, var ekki plast um allt (sennilega hefur verið leiðinlegrs að þrífa ruslið eftir að búrið brotnaði) ? :-)

Þú hefur svo ekki lagt í að gera bakgrunn í nýja búrið eða hvað ?
User avatar
Hjartagosi
Posts: 28
Joined: 08 Dec 2007, 10:38
Location: Reykjavík
Contact:

Post by Hjartagosi »

Það var bölvað vesen að þrífa eftir að vera búin að saga og skera þetta
í agnir, þar sem að hleðslan á stöðurafmagni er gífurleg og þetta festist
allstaðar.

Ég breiddi sem betur fer út nokkra ruslapoka yfir gólfið þannig
að þegar ég var búin þá pakkaði ég þeim bara saman ásamt öllu rusli sem
lá ofan á þeim. Svo bara ryksugan á restina.

Ég hef ekki ennþá lagt í það að gera annan bakgrunn en það kemur að því
býst ég við. Þetta er helvíti gaman og myndi örugglega koma betur út í
næstu tilraun.
User avatar
Atli
Posts: 225
Joined: 18 Dec 2006, 05:57
Location: Reykjavík

Post by Atli »

það er ekkert óvitlaust að hirða lokið og botninn og smíða bara nýtt búr í staðinn í þetta. ætti ekki að vera mikið mál
Heilaþveginn af fiskum - Blessaður af vatni
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Já, mjög sniðugt að hirða lokið og setja nýtt saman fyrir það...
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Hjartagosi
Posts: 28
Joined: 08 Dec 2007, 10:38
Location: Reykjavík
Contact:

Post by Hjartagosi »

Ég var kannski ekki í besta hugarástandi þarna til að hugsa jákvætt.
Starði bara á gólfið blautur í fæturna með kreppta hnefana.

En góð hugmynd engu að síður.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Hjartagosi wrote:Ég var kannski ekki í besta hugarástandi þarna til að hugsa jákvætt.
Starði bara á gólfið blautur í fæturna með kreppta hnefana.

En góð hugmynd engu að síður.
Ég get vel trúað því að þetta hafi verið pínulítið fúlt :)


Ég verð samt að segja fyrir mig að ég hefði ekki þorað að setja fiskabúr á svona hillu, festingarnar sem festa plötuna við grindina eru svi djöfulli aumingjalegar... Ég er með svona svipaða hillu við hliðiná mér hérna :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

flottur bakgrunnur hjá þér!

en vá hvað þetta var fúlt :?
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Já djöfullinn ég varð bara miður mín og hefði ekki viljað vera í þínum blautu sporum,ég hefði sjálfsagt lagt íbúðina í rúst í bræði minni.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þetta var flott hjá þér en sorglegur endir - mér var alls ekki hlátur í huga og tek undir með það sem pípó sagði:
ég hefði sjálfsagt lagt íbúðina í rúst í bræði minni.
Jónbi
Posts: 70
Joined: 10 Aug 2007, 00:26

Post by Jónbi »

Þetta voru bara 120L. Prufið að bæta 1 fyrir framan og þá fáið þið að sjá fullorðinn mann næstum gráta. þótt það hafi ekki verið svona rækilegt, bara duglegur leki.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Úff hefði ekki þorað að setja þetta búr á þessar undurstöður. Ég er með svipaðar hillur hjá mér og 60L búr og þetta væri síðasti staðurinn sem mér hefði dottið í hug að setja búrið enda engar undirstöður þannig :roll:

En hvað hélst þetta lengi uppi á þessu?
200L Green terror búr
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

æææiiiiii gerið....
þetta leit gg vel út hjá þér :shock:
leit að þetta endaði svona !
en hvernig datt þér í hug að seta búrið á þetta borð :shock: ?
ég mundi varla þorg setja 30-50 l á það :lol:
User avatar
Hjartagosi
Posts: 28
Joined: 08 Dec 2007, 10:38
Location: Reykjavík
Contact:

Post by Hjartagosi »

Þetta hélst á borðinu í svona korter áður en hillurnar gáfu sig.
Ekki mín besta stund og þegar ég lít tilbaka þá spyr ég sjálfan mig hvað
í fjandanum ég var að spá.

bara fljótfærni og spenna býst ég við.
biggihb
Posts: 222
Joined: 08 Oct 2006, 18:04
Location: kópavogur
Contact:

Post by biggihb »

Góð pæling hjá þér að öllu leyti nema með undirstöðuna vona að parketið sé í lagi svo sé ég að tölva var þarna nálægt skemmdist ekkert ?
Heppin að engir fiskar voru komnir í búrið svo er bara að gefast ekki upp og líta á fyrri bakgrunninn sem góða æfingu :wink:
Lífið er ekki bara salltfiskur
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

Jónbi wrote:Þetta voru bara 120L. Prufið að bæta 1 fyrir framan og þá fáið þið að sjá fullorðinn mann næstum gráta. þótt það hafi ekki verið svona rækilegt, bara duglegur leki.
emmmmm 120l og bæta einum fyrir framan áiiiiiiiiiiii ég trúi því ekki að þú sért YFIR TONN hell no, væri frekar að bæta einum fyrir farman 120 og taka 0ið af þá fær maður út litlar 112 ekki 1120 :lol: samt drullu sárt að missa þetta niður eftir það sem ú ert búin að leggja í það
german blue ram (4 stk.)
tetrurnar 11
taugaveiklaði perlugúraminn
gullrún gúrami
já og síkliðan sem ég hélt að væri dauð :) sem er núna DAUÐ
Jónbi
Posts: 70
Joined: 10 Aug 2007, 00:26

Post by Jónbi »

Raunar 1140L til að vera nákvæmur, er að vísu ekki í minni eigu en á ófáar vinnustundir í þessum dalli. eigandin er Svavar nokkur Sigurðss. oft kallaður Brúsi
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Passar hérna eru myndir frá þessum tíma. það fer nettur hrollur um mig við tilhugsunina.

Verið að setja búrið upp.
Image

Búrið daginn eftir
Image

Og svo hætti þetta að verða sekemmtilegt :?
Image
Image

"glaður eigandi" eða hitt þó heldur.
Image

Allt uppúr enda ekkert val, búrið var jú byrjað að leka.
Tilraun 2 og nú var komið 15 mm gler í botnin ásamt stálbotninum sem er 2 mm rústfrítt stál.
Image

Bakrunnurinn aftur í
Image

Vatn sandur og plöntur komanar á sinn stað.
Image

Búrið í dag.
Image
Image
Image
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Post Reply