Roapfish

Fyrir þá sem þora. Ránfiskar, botn- og kattfiskar í stórum númerum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Roapfish

Post by Ólafur »

Þar sem Roapfiskarnir minir tilheyra ekki sikliðum þá stofna ég sérstakan þráð um þessa fiska og bið alla sem geta sagt mér eitthvað um þá að skrifa hérna :)

Þeir eru mjög sýnilegir hérna hjá mér og eru oft að synda á móti straumi frá hreinsidæluni,virðast vera að leika sér.

Veit ekki um kynin en á eftir að telja uggana eins og nafni benti mér á en svo er spurningin,fjölga þeir sér i búrum?

Image
Last edited by Ólafur on 28 Nov 2006, 01:32, edited 1 time in total.
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Image
Image

Sjáið þið hvernig hann fer ofani hreinsidæluna.
Rakst á hann fyrir tilviljun þarna og rétt náði mynd áður en hann hvarf ofani :)
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hvað eru þeir langir hjá þér?
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Einn er svona 12 til 15 cm en hinn nær 20
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Svona geta þeir hangið i gróðrinum

Image
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

:D Það er eins gott að þú passir þig þegar þú ert að grisja gróðurinn. :D

Hvað kostar svona kvikindi vanalega ?
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Ég borgaði 1900 kall fyrir stykkið i Vatnaveröld og keypti tvo :)
Hverni hafa Óskararnir þinir það? Minir bara stækka :?
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Óskararnir vaxa eins og arfi á fjósahaug enda alltaf étandi hjá mér.
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Hehe lika hér
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Sá þá éta i fyrsta sinn og náði mynd þegar þeir vori i rækjuveislu.
Annar þeirra sést hér að gæða sér á einni slikri.

Image
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Og svo er að kikja allstaðar :)

Image
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

já þeir eru gríðarlega skemmtilegir þessir . !!

eru þeir búnir að finna sér samastað í hreinsidælunni hjá þér ?
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Nei það held ég ekki en þeir kikkja þar við af og til :D
Annars eru þeir mikið á ferðini i búrinu sjálfu.
Maður veit aldrei með nóttina það getur vel verið að þeir hafi samastað i dæluni einmitt á nóttini.

Ég er búin að kjaftloka búrinu. Búin að sniða plastlok fyrir öll göt og sniða göt á lokið fyrir leiðslunum úr tunnudæluni :)
Ekki veitir af

Image
Image
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

:) Þessi mynd var tekin núna áðan

Image
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
mundivalur
Posts: 58
Joined: 20 Sep 2006, 17:06

Post by mundivalur »

Þú þekkir kk og kvk með því að skoða anal uggan :lol: , man samt ekki hvor er með lengri en það er mikil munur á svipað stórum fiskum,Þetta eru fiskar sem ég byrjaði á með gullfiskum :roll: Vissi ekkert hvað þetta var,svo eina nóttina var ég frammi í stofu og allt var brjálað í 40l búrinu þá var állinn búinn að bíta sig fastann í slörið á gulla og vanntaði slatta af því daginn eftir :shock: Svo fóru þeir með einhverju molly dóti og þeir týndust,þá var það Convict það var lala nema seiðin voru horfin á 2. nóttum,já svo voru þeir oft týndir líka. Endaði með því að ég skipti þeim,en það var oft gaman að horfa á þá synda og eta :wink:
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Já það er naumast. Minir eru ekki svona villtir enn :) enda með amerikusikliðum og þær láta nú ekki vaða neitt yfir sig.
Já ég var búin að lesa mér til um kynin en hef ekki veitt þvi neina sérstaka athygli.
En eins og er er allt i takasta lagi.
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Fishy
Posts: 12
Joined: 03 Oct 2006, 17:02

Post by Fishy »

bara að spurja, hvað er vatnaveröld?

þessi fiskar eru crazy flottir :D
:p
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Vatnaveröld er gæludýrabúð i Keflavik 8)
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Fishy
Posts: 12
Joined: 03 Oct 2006, 17:02

Post by Fishy »

er hún með heimasíðu? hvar er hún til húsa? :)
:p
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Vatnaveröld ehf
S. 421-7095
Hafnargata 18
230 Reykjanesbær
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Heimasíðan er www.pet.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Jæja það eru fréttir héðan að stærsti Óskarin minn tók annan Roapfiskin i forrétt núna á dögunum :(

Sá einn morgunin svona cm bút sem eftir var af greyinu.

Já þessir Óskarar koma á óvart þvi Snakeheddið var ekki undir 30 cm langur svo þetta hefur verið slagur en ég varð ekki vitni að þessu en Óskarin er eini fiskurin i búrinu minu sem hefur getað þetta.
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Nú verð ég að leiðrétta mig en haldiði ekki að vinurin sem ég taldi látin og étin hafi ekki birst ljóslifandi i gær öllum til mikilla gleði :D .
Hafði hann haldið sig viðs fjarri i langan tima svo ég var viss um að hann hafi verið étin enda veit ég ekki þá hvað ég sá þarna um daginn sem minti mig á bút úr svona fiski sem lá á botninum.
En hvað um það mikið gott að hann skuli hafa komið fram og leiðrétti mig hér með. 8)



Kv Ólafur
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

He he, hefur búturinn sem þú sást ekki bara verið afleggjari og vaxið nýr fiskur úr honum. :D
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Svei mér þá jú það hefur bara verið eitthvað svoleiðis :? en ég get ekki imyndað mér hvað þetta var sem ég sá þarna forðum nema þetta hafi verið einhverskonar uppblásin úrgangur úr Óskarnum en hann skitur ekki neinum smákögglum stundum :lol:
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Hérna kemur alveg ný mynd af öðrum þeirra sem ég á.
[img][img]http://i129.photobucket.com/albums/p228 ... G_6581.jpg[/img][/img]
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Post Reply