11 monster-vaxtarhraði

Fyrir þá sem þora. Ránfiskar, botn- og kattfiskar í stórum númerum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

11 monster-vaxtarhraði

Post by Jakob »

5 ný monster á leiðinni á næstu 2 vikum.
Ætla að fylgjast með vextinum hérna með því að pósta myndum af þeim og verður þetta bara myndaalbúm fyrir þau.
1x Longnose Gar
1x Silver Arowana
2x Datnoid
2x Channa Marulia eða Channa Marulioides
2x Polypterus Palmas Palmas
1x Polypterus Ornatipinnis
1x Polypterus Lapradei
1x Paroon Shark

Þetta eru efnileg monster og mun ég síðan kaupa mér 720L búr eða 900L búr undir þau :D
Kannski ég leyfi einhverjum Polypterusum að fljóta með á myndunum :)
Last edited by Jakob on 14 Jul 2008, 00:29, edited 1 time in total.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Hefði ekki verið gáfulegra að byrja með þennan þráð þegar þú ert búinn að eignast eitthvað af þessu? Allar líkur á að þú verðir búinn að skipta nokkrum sinnum um skoðun áður en þú færð nokkuð af þessu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

enn ekki hvað :roll:
nei nei ætla að leyfa þessu að vera svona bara :-)



...sagði ég það ekki síðustu 4 skipti líka :oops:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

ertu kominn að utan?
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Já núna, geturu sótt dovii og RTC í dag?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

jam :)
sendu mér sima númer
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Jæja keypti Silvur Arówönu í dag, mældist 8cm.
Tók 140L búrið í gegn áður en að hún fór í það. Búrið er mjög plantað og fann ég Valisneria Gigantea í fiskó sem að ég auðvitað keypti (ennþá meira til).
Smelli inn mynd af henni fljótt.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Þess má geta að það er búið að venja hana á flögur og síkliðu bita :-)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

Flott :-) endilega koma með myndir
Minn fiskur étur þinn fisk!
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

23. Júní 2008 "Silver Arowana" 8cm.
Image
Image

Af nákvæmlega 132 myndum af sama fisk þá eru þessar 2 þær bestu :oops: Hún hélt sig alltaf í skugganum í búrinu og gerir því myndatökur erfiðar :? Vildi ekki stressa litla greyið var ekkert að reyna að færa hana í ljósið :)
Hvernig finnst ykkur? :roll:
Heildar mynd af búrinu:
Image
Valisneria Gigantea:
Image
Last edited by Jakob on 25 Jun 2008, 01:18, edited 1 time in total.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
scalpz
Posts: 90
Joined: 25 Apr 2008, 21:54
Location: Rvk

Post by scalpz »

flott búr, ein spurning samt, hvað er arowana að kosta útí búð? (bara þessi kommon týpa :P)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Silvur Arowana kostar 13000kr í dýragarðinum og 8000kr. í dýraríkinu ( ég fékk sú seinustu)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

silfur, ekki silvur.


Er hún ein í búri?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

:)
Ætla ekki að taka neina áhættu. Er eitthvað samt sem að mundi virks flott með henni? s.s. í þessari stærð?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
scalpz
Posts: 90
Joined: 25 Apr 2008, 21:54
Location: Rvk

Post by scalpz »

sá hana í dýraríkinu langaði rosalega að kaupa mér hana, svo vaknaði ég upp af draumi og fattaði að ég er bara með 120lítra búr :P
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Gangi þér vel Jakob.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ekkert mál að hafa allavega eitthvað hreinsiteam með henni, t.d. ankistrur. Svo henta einhverjir litlir fiskar líka sem gætu endað sem matur seinna meir...
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ok, er með Stóran Ancistru KK og 15800kr. plegga sem að er um 6cm :-)
Er að hugsa um Danio, Barba og Neon Tetrur sem gotterí :P
Hef ekki séð hana éta en það kemur allt :-)
Takk Ásta.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Post by siggi86 »

Ég vill sjá mynd af plegganum
User avatar
vkr
Posts: 166
Joined: 02 May 2008, 23:55

Post by vkr »

Ég er sammála með pleggan :mynd:
Þið eruð asnar og ég er fífl..
Þess vegna getum við verið vinir;)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Plegginn er um 4cm og verður vonandi lítill.
Ómögulegt að taka myndir en hér eru nokkrar frá því að ég sleppti honum svo í stórabúrið.Var hræddur um að hann yrði étinn svo að hann fór í 60L gúbbíbúr...
Þetta er ekki Blue Panthom svo að þið vitið það.
Image
Image

Arówanan fékk smá nammi í nótt og ég lærði mína lexíu. Fann gúbbíseiði í 60L búrinu reyndust vera 26stk. Hafði ekki pláss fyrir flotbúrið í 60L búrinu svo að ég skellti því í með aró. Um morguninn þegar ég vaknaði og kveikti ljósið var hún í gotbúrinu að vesenast við að ná seinasta seiðinu :lol:
Ef að ég var ekki búinn að nefna það þá skellti ég nokkrum Convict unglingum með aró, spái því að hún borði þau öll innan 3 mán. Annars fara þau bara í stórabúrið.
Búið í bili...
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Jæja fiskó á víst að fá einhverja voða flotta sendingu.
Er búinn að láta taka frá fyrir mig Datnoid (Siamese Tiger Fish) og Polypterus Lapradei.
Einnig á að koma P. Ornatipinnis, Senegalus og Palmas (Polli eða Palmas, óvitað). Sendingin á að koma æa Miðvikudag og ég er ROSA spenntur. Það voru pantaðir 2x Datnoid ef að einhver vill krækja í hinn...

Arówanan er að éta Krill mat. Á víst að vera mjög góður fyrir hana, veit einhver hvernig þetta er með Aró pg Dat, er það í lagi ef að þau eru í sömu stærð?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Mældi Arówönuna áðan, er nákvæmlega 11cm.
Mídasa parið rak 15cm Gibba undan dælunni, sá að hann var í sárum svo að ég færði hann og stóru senegalus kvk í Aró búrið, svo fara næstu monster að koma.

Er einnig kominn með Clown Knife, mældist 32cm. Kem með update af stærð hans eftir nokkra mánuði.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Orntatipinnis 5cm 9. Júlí 2008

Ég er s.s. kominn með Ornatipinnis og eru fleiri Polypterusar sem að koma næstu eða þar næstu helgi.
Þeir eru:

Polypterus Bichir Lapradei
Polypterus Palmas Palmas


Einnig fæ ég Datnoid og Red Belly Pacu næstu eða þar næstu helgi :D
Ætla að telja Monsterin og Oddballin.

3x Polypterus Senegalus
1x Polypterus Ornatipinnis
1x Clown Knife
1x Walking Catfish
1x Silver Arowana


Skammast mín ekkert smá að eiga ekki fleiri Monster :oops:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

13. Júlí 2008 14cm. Silver Arowana
Image
400L Ameríkusíkliður o.fl.
audun
Posts: 228
Joined: 24 Apr 2008, 00:57

Post by audun »

næs
Post Reply