Þetta er Green Iguana eðlan sem að ég á.
Ef að fyrrverandi eigandi hefur sagt rétt frá þá á hún að vera tæplega 4 ára.
Hún er um 70 - 80 cm.
Hún er verulega ástfangin af sjálfri sér, henni finnst ekkert betra en að liggja og glápa á sjálfa sig í spegli,
Myndir:
og ein af búrinu hliðiná fiskabúrinu
Last edited by Gudjon on 20 Jan 2007, 16:00, edited 1 time in total.
Hún liggur bara þarna og glápir í spegilinn.
Hvað gerir hún ef enginn er spegillinn, er hún meira á ferðinni ? Hún hefur svo sem lítið að fara þarna í skápnum. Hann er nokkuð sniðugur skápurinn, er glerhurð á honum ?
Vargur wrote:Hún liggur bara þarna og glápir í spegilinn.
Hvað gerir hún ef enginn er spegillinn, er hún meira á ferðinni ? Hún hefur svo sem lítið að fara þarna í skápnum. Hann er nokkuð sniðugur skápurinn, er glerhurð á honum ?
Hún verður voðalega fúl útí mig ef að ég fjarlægi speglana, jafnvel bara til að þrífa þá. Þegar að hún er fúl útí mig þá yrðir hún ekki á mig og lætur sem að ég er ekki til.
Hurðirnar eru úr harðplasti svo að hún getur farið út hvernær sem er þegar ég er heima, þegar að ég er ekki heima þá skelli ég einhverjum þungum hlut fyrir svo að hún komist ekki út.
Ég er með eitt fiskabúr á gólfinu hjá mér, hún á það til að fara að elta fiskana í gegnum glerið, ferlega fyndið og gaman að sjá, ég þarf bara að passa að hún komist ekki ofaní búrið því hver veit hvað gerist þá