Eru allir sniglar með vesen?
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Eru allir sniglar með vesen?
Heil og sæl fiskafólk,
Við hérna félagarnir vorum að spá hvort að allir sniglar væri bara tómt vesen. Við fengum tvo svoleiðis í dag og eftir að hafa skannað umræðurnar hér í dag þá erum við doldið hræddir um að sniglafaraldurinn komi í búrið okkar. Kannski aulaspurning en við erum rookie í þessum bransa og viljum ekki kúka upp á bak...
Spurning er því þessi: Verða allir sniglar að einhverjum faraldri eða eru það bara sumir?
kveðja,
Hraunið

Fúlt líka að fá snigla í búr sem maður getur ekki losnað við þá úr... Ég er t.d. með HELLING af trumpet snails í piranha búrinu mínu, en það böggar mig ekki þar sem þeir eru alltaf bara í sandinum.
Ef þetta væru venjulegir sniglar þá væri ég ekki sáttur... Og ekki einfalt að losna við þá, því ekki bætir maður bótíu í búrið

Þið kúkið ekki upp á bak með eplasniglana en með þessa litlu fjanda sem einmitt koma oft með gróðrinum gætu þið kúkað upp á hnakka.
Eins og Guðjón segir eru bótíurnar besta lausnin ef hægt er.
Hvað eruð þið annars með í búrinu?

You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
- Varlamaður
- Posts: 1221
- Joined: 06 Nov 2006, 16:02
- Contact:
þökkum góð svör... Gaman að þessu spjalli.
Við erum því miður ekki orðnir það góðir að vita hvað þessi fiskar heita. Erum með eitthvað bland í poki í búrinu okkar til að byrja með. Allavega 3 kellingar sem eru að fara eiga og það er voða spennandi...allavega til að byrja með og stefnum á að verða ræktunarkóngar Íslands
Vargur gæti kannski sagt ykkur hvað við erum með og þá okkur í leiðinni svo við vissum hvað er í búrinu

- ~*Vigdís*~
- Posts: 525
- Joined: 20 Sep 2006, 19:03
- Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
- Contact:
hehe
Fyrir mína parta þá geta sniglar verið æðislegir
Í raun eini gallinn er að það gengur ekki að hafa bódíur með þeim
Hér eru nokkrar tegundir sem ég er með og bara ekkert vesen ...
Nerita snigill sennilega Neritina coromandeliana
Rosafallegir nánast ómuglegt að fjölga þeim samt
Verpa endalaust eggjum ofan í vatninu ýmist á gróður eða steina en ekkert
gerist, veit ekki til þess að hægt sé að þekkja kynin (á þrjá) til að
vita hvort eggin séu eftil vill bara ófrjó...
Hvítu dílarnir tveir á plöntunni eru svona egg eftir þá...
---------------------------------------
Hornsnigill Þeir eru líka af ættinni Neritoidea
held þeir heiti Theodoxus corona en er ekki viss gæti líka verið Theodoxus coronatus
Enda frekar líkar og skildar tegundir veit alltof lítið um þá...
frekar lítið lesefni í boði fyrir greyin en ég á 3 stk af þessari tegund,
enginn eins Hér eru annar
---------------------------------------
Eplasnigill Ampularia australis gold
Rosa fínn Þessir verða frekar stórir og gaman er að dúlla í þeim
Þvílíkt fyndið að setja þá á lófan á sér og bíða, þegar þeir byrja að skríða
finnur maður alveg fyrir skráptungunni bara skondin tilfinning
---------------------------------------
Viviparus ?
Er bara ALLS ekki klár á latneska heitinu hér, sem er bara pirrandi,
mjög mikilvægt að kunna latneska heitið á öllum mínum gæludýrum
En þetta er sennilega gotsnigill sem gítur lifandi afkvæmum en
bara fáum í senn... Grunar að þetta sé því af ættkvíslinni Viviparus
(sem eru oft kallaðir mysteri snails) Þar sem þeir voru í tómubúri
hjá seljandanum og höfðu þar birst nokkur afkvæmi án sýnilegs eggjaklasa...
---------------------------------------
Þessi er reyndar í minnstu uppáhaldi hjá mér...
Hrútshorn Marisa cornuarietis
Þessum er mjög auðvelt að fjölga og eru þeir stundum pest í fiskabúrum,
þess vegna er ég bara með einn Hann étur líka ALLT alger villingur,
ótrúlega duglegur að narta í gróðurinn minn ef ég var ekki dugleg að færa honum
gúrkubita nenni ekki að eiga svona núna
---------------------------------------
Næsta mynd er stolin af netinu
ákveðin hæfileiki sem ég hef
Melanoides tuberculata þessir eignast lifandi afkvæmi, mjög
þreytandi, maður getur haldið svona samt vel í skefjum með réttri matargjöf,
um leið og maður ofgefur aðeins þá verður botninn iðandi *hrollur*

Væri ekki málið að fá þennan sniglafróðleik Vigdísar í fræðsluna hér.
Þeir Hraunarar (já ekki Litla-hrauns menn, það má ekki vera með tölvur, myndavélar eða fiska þar) eru með eitthvað bland í búrinu.
Ef ég man rétt.
3 Indjána-platy (gula)
3 Sverðdragara
2 Perlugurama
2 Rubripinnis tetrur
2 Neon tetrur
Þið getið litið hér yfir og séð hvort eitthvað vanti hjá mér eða mig mismynni.
http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/Fis ... lokkar.htm
Það væri gaman ef þið settuð inn þráð um búrið ykkar hér á spjallið, einkonar dagbókar form um hvað er að gerast í búrinu.