sérsmíðaður standur

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

sérsmíðaður standur

Post by Birgir Örn »

Ég ætlaði að smíða mér stand undir 390l búr sem mér áskornaðist fyrir tilviljun. Fór að pæla mikið í þessu hvernig maður ætti að gera þetta og svona, svo datt mér í hug að félagi minn er húsgagna smiður svo ég fékk hann til að gera þetta fyrir mig og hér er útkoman.

Kem svo með fleiri myndir þegar búrið er komið upp og í gang

Image
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Flott, það væri gaman að fá myndir af smíðinni ef þær eru til og hvaða efni er í þessu.
...þú hefur nú verið búinn að fá þér aðeins þegar þú settir höldurnar á. :)
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

...þú hefur nú verið búinn að fá þér aðeins þegar þú settir höldurnar á. :)
Mér sýnist það :)
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

helvíti flott
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

Vargur wrote:Flott, það væri gaman að fá myndir af smíðinni ef þær eru til og hvaða efni er í þessu.
...þú hefur nú verið búinn að fá þér aðeins þegar þú settir höldurnar á. :)
Skil ekki alveg afhverju þú segir það, því höldurnar eru að sjá
allar jafn langt frá brún. Snýst sennilega um neðri höldurnar þessi
athugasemd... Geri ráð fyrir að þær séu bara útlit, enda sagði hann að
þetta hafi verið smíðað fyrir hann. :D :)
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

flottur skápur en mér finnst neðri höldurnar alveg skemma. skil líka ekki tilganginn með þeim.
Eyjó
Posts: 298
Joined: 26 Mar 2007, 16:12
Location: Reykjavik

Post by Eyjó »

Brynja wrote:flottur skápur en mér finnst neðri höldurnar alveg skemma. skil líka ekki tilganginn með þeim.
Nú til að opna með tánnum :P
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Eyjó wrote:
Brynja wrote:flottur skápur en mér finnst neðri höldurnar alveg skemma. skil líka ekki tilganginn með þeim.
Nú til að opna með tánnum :P
Algjörlega rétt hjá Eyjó. Þetta er bráðsniðugt. Það er ósjaldan sem maður er með báðar hendur fullar og þarf að nota tærnar til að opna.
User avatar
pasi
Posts: 287
Joined: 03 Mar 2008, 22:54
Location: selfoss
Contact:

Post by pasi »

hló mig máttlausann þegar ég sá ástu allveg fyrir mér með báðar hendur fullar að opna með tánnum :D hehehe
Búrin okkar:
viewtopic.php?t=3835
fishy fishy fish :P
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Eyjó wrote:
Brynja wrote:flottur skápur en mér finnst neðri höldurnar alveg skemma. skil líka ekki tilganginn með þeim.
Nú til að opna með tánnum :P
Rétt!

Annars var þetta smíðað fyrir mig og hann klikkaði eithvað á þessu og gerði fyrst tvær hægri hurðar og ákvað að laga þetta svona.

Mér finnst þetta persónulega gefa honum spes svip á góðan hátt.

Það eru engar myndir af smíðinni held ég skal samt spyrja að því. Skápurinn er allur smíðaður úr 25mm mdf (þ.e.a.s toppur, botn, bak, hliðar og stoð í miðjunni) nema hurðarnar þær eru úr 16mm mdf sem er allt lakkað hvítt og hann er allur settur saman með svona IKEA style festingum þannig það sést enginn skrúfa utan á skápnum

Svo þarf ég að klára að taka gamla kíttið úr hinu búrinu og kítta upp á nýtt svo það sé snyrtilegra og mála ramman á því hvítan og finna sand í það sem convictinn á ekki jafn auðvelt með að grafa niður í botn í
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Það væri mjög gaman að fá að sjá myndir innan úr skápnum. og e.t.v. eitthvað leyout af smíðinni, ef það er til.
Er að undirbúa að smíða skáp undir áætlað búr sem verður um 190cm*60cm að grunnfleti og væri því gaman að sjá hvernig smíðin á þessum var.
Hvaða stærð af spýtum voru notaðar í grunninn? Hef verið að velta þessu svolítið fyrir mér og geri ráð fyrir að ég þurfi að nota 50*200mm burðarvið í grunninn og undir búrið sjálft.

...sh*t, sá ekki alveg hvað þetta er gamall þráður, sorry.
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Skápurinn er allur smíðaur úr 25mm MDF hliðarnar og bakið liggja ofan á botn plötunni og top platan liggur ofan á þannig þunginn hvílir ekki á neinum festingum. Að öðru leyti er hann settur saman með ikea style fesingum

ég skal svo koma með mynd innan úr honum bráðlega hann er frekar pakkaður svo ég nenni ekki að fara í það núna
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Hér er svo mynd af þessu eins og búrið er í dag

Image

haha það sést víst í síman þarna verðið að afsaka það
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Næs :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Nú eru IKEA ljósin dauð ig kominn tími á eithvað betra hvar er best af versla sér lýsingu í svona heiðasmíða dót
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
pasi
Posts: 287
Joined: 03 Mar 2008, 22:54
Location: selfoss
Contact:

Post by pasi »

þetta er allveg geggjað :D smíðaðiru utan um búrið líka?? (sýnist það nú allt á öllu)
Búrin okkar:
viewtopic.php?t=3835
fishy fishy fish :P
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég á 30W ballest föl fyrir 2.000 kall
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Hvar fae eg svo fattningar og svoleidis?
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

þetta er ballest með fattningum og tilheyrandi, öllu nema peru.
Annars geturðu náttúrulega líka athugað þetta hjá flúrlömpum, fá elektrónískan ballast og víra þetta sjálfur. Það getur komið vel út. Ég gerði það allavega fyrir búrið hjá mér, fékk reyndar ballestinn að utan (áður en krónan dó)
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Þá er kominn 2 X 30W lýsing í búrið kem með myndir fljótlega
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
Post Reply