Verðmunur Dýrabúða

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Pippi
Posts: 276
Joined: 29 Nov 2007, 17:21

Verðmunur Dýrabúða

Post by Pippi »

Er svona að spá með verðmun
Ég sá T.d Poly Ornatipinnis í dýraríkinu og hann kostaði rétt um 25 þús kr,
Svo sá ég í Fiskó Ornatipinnis í sömustærð á 6900 kr.
Mér finnst þetta ekkert enginn smá verðmunur, getur þetta verið svona mikill verðmunur hjá byrgjum úti eða eru þeir að leggja svoldið vel á þetta hjá sér hérna heima hjá dýraríkinu.
Þetta er bara svona vangaveltur hjá mér.
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Þeir í Dýraríkinu verða að leggja svona mikið á til að borga þessa líka dýru verslun sýna í hrauninu.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég var í dýraríkinu í dag og þar kostaði ornatipinnis rúmlega 32þús. Og gúbbí 1300-1500kr.. Stórkostleg skemmtun að skoða verðskránna hjá þeim :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

þeir eru varla að selja mikið þessa dagana... fólk er orðið mikið meðvitaðra um verð núna en fyrir 3 mánuðum síðan. fólkið sem getur virkilega svarað manni þarna (þá tel ég allar búðirnar sem ég hef komið í) er teljandi á fingrum annarrar handar ef maður er smiður og er búinn að saga 3 putta af!
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Gunnar konungur Dýraríkisins er "fastur " í Excelforritinu á 25% hækkun ...............svona u.þ.b vikulega :oops:
Ace Ventura Islandicus
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það versta er að það er allt of mikið af fólki sem er að byrja og kannast bara við Dýrastaríkið og fer þangað í startið og eiðir þar með mestu peningunum.

Annað er að svo nennir fólk oft ekki að gera verðsamanburð, td er ég búinn að selja fóður sem er 20-50% ódýrara en í verslunum en sárafáir nýta sér það, bara örfáir snillingar eins og Pippi. :)

Ég held að Dýraríkisverslunin í hrauninu hverfi fljótlega eftir áramót, það getur ekki verið raunhæft að halda úti svona stórri verslun og aldrei fleiri þar inni en í hinum litlu búðunum.
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Þegar ég byrjaði að fá áhugann aftur á þessu fyrir um ári síðan, þá gat ég bara ekki ímyndað mér það að stærsta búðin væri með dýrustu fiskana. Ef ég hefði ekki farið á fiskaspjall og séð að fólkið hér var að fara mikið í fiskabúr, þá hefði ég ábyggilega farið í dýraríkið og keypt þar, en ákvað að kíkja líka í fiskabúr og skoða, og fékk bara sjokk þegar ég sá að allt var miklu ódýrara þar.

Svona er þetta með fólk eins og mig sem á heima útá landi, maður veit ekki neitt ;) Ég held að dýraríkið fái mestu viðskiptin frá landsbyggðarfólkinu.
jæajæa
Rúnar Haukur
Posts: 160
Joined: 13 Nov 2006, 19:13
Location: Akureyri - norðan við á
Contact:

Post by Rúnar Haukur »

Svo er líka stórt vandamál þegar ríkið er eina dýrabúðin á svæðinu :(

Þekki nokkra sem hafa alveg gefist uppá fiskastússi hérna fyrir norðan, 3 síðustu innkaup mín í ríkinu hafa endað sama hátt. Háfurinn til að hirða upp dauða fiska :cry:

Verð samt að taka fram að búðin lítur mun betur út núna en hún gerði á tímabili þegar fiskarnir voru greynilega með einhverja veiki og dauðir fiskar á floti í búrunum.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Rúnar Haukur wrote:Svo er líka stórt vandamál þegar ríkið er eina dýrabúðin á svæðinu :(

Þekki nokkra sem hafa alveg gefist uppá fiskastússi hérna fyrir norðan, 3 síðustu innkaup mín í ríkinu hafa endað sama hátt. Háfurinn til að hirða upp dauða fiska :cry:
quote]
Ömurlegt að standa í þessu en flestar verslanir hér senda vörur út á land þó þær standi sig misjafnlega vel í því. Ég hef heyrt að Trítla standi sig hvað best.
Norðanmenn þyrftu að hafa meira samband sín á milli til að geta skiptst á fiskum eða öðru innan hópsins og nýtt bæjarferðir betur. Group-buy væri líka fínn kostur, ég mundi alveg nenna að standa í að smala saman fiskum osf og koma í flug ef nokkrir tækju sig saman.
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Rena XP3 kostar í dýraríkinu ef ég las rétt, 75þús en hún kostar milli 30 og 40þús annarstaðar
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Fékk nú Rena XP3 á 20.500 hjá Vargs í sumar :-)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

XP 3 kostar 31.500 hjá mér núna vegna gengisbreytinga.
Dýraríkið gekk nokkrum skrefum lengra og hækkaði verð á fiskum sem þeir áttu í búðinni um daginn um 20-40%
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Sá líka eheim 2080 á 100-110þús... Eðal dæla, en vá hvað þetta er rugl hátt verð.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

keli wrote:Ég var í dýraríkinu í dag og þar kostaði ornatipinnis rúmlega 32þús. Og gúbbí 1300-1500kr.. Stórkostleg skemmtun að skoða verðskránna hjá þeim :)
Gúbbí 1300-1500.hvaða djöfulsins rugl er þetta.allveg fáranlegt verð.
mætti halda að þeir væru gull húðaðir.fyrir svona 10 árum var þetta nánast gefins..fara þarna og seija þeim að troða þessu öfugu upp í #"$%&&/ á sér

Bara þvæla
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

keli wrote:Sá líka eheim 2080 á 100-110þús... Eðal dæla, en vá hvað þetta er rugl hátt verð.
já sá það líka og kassin leit nú ekki út fyrir að vera nýr þannig eflaust var þetta keypt inn á allt öðru gengi. Það er alveg fáranlegt hvað fólk er að nýta sér þetta gengisrugl

Ég skil svo sem með vörur sem eru mikið að fara af eins og þar sem ég vinn seljum við varahluti í bíla og fl. og við greiðum ekki fyrir vöruna fyrr en 90 eftir að hún er keypt og þá þarf að sjálfsögðu að fylgja gegninu mjög stíft en með vörur sem lítið fer af og standa jafnvel í nokkra mánuði eða ár þá er ekki verið að hækka þá mikið en það er samt gert

en það sem ég er að reyna að segja er að ef þú átt vöru til á lager og búið að greiða byrgjanum fyrir hana hvernig er þá hægt að réttlæta verð hækkun á henni.
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Gæti vel trúað að þetta ævintýri hjá dýraríkinu í Garðabænum setji þá á hausinn, verður erfitt að losna undan skuldum vegna þessarar risaverslunar. Það hlýtur hver maður að sjá að fólk er ekki að fara að spreða 1200 kalli í gúbbí og tugum þúsunda í hreinsidælur.
Ef dýraríkið fer, þá verður það samt örugglega gott fyrir hinar verslanirnar og bjargar þeim vonandi í gegn um ástandið. Good ridance segi ég nú bara.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

vantar bara að einhver annar fái umboðið fyrir eheim, arcadia, ferplast og fleira :?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Aðrar búðir hafa svosem verið að selja bæði eheim og arcadia, en vöruúrval dýraríkisins slá fáir út..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

þetta er spurning um varahluti og sérhæft dót.....
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Minnsta mál fyrir búðir að panta þessa hluti, það er bara lítið sem enginn markaður fyrir þessu og fáir sem vilja kaupa aukahluti sem sitja lengi í hillunum

Þarft bara að leggja inn beiðni um að láta panta þetta fyrir þig með næstu pöntun sem verslunin tekur til landsins
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Oftast vantar manni varahluti nú aðein fljótar en eftir 1-3 mánuði :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

mér hefur ekki verið boðið að sérpanta neitt sem ekki hefur verið til!
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Já það er alveg rétt að manni vantar vara hlutina strax ef eitthvað bilar en ég skil líka að búðirnar vilja ekki liggja með þetta á lager

Mér hefur heldur ekki verið boðið það, ég spyr bara hvort það sé hægt að panta fyrir mig ef mig vantar eitthvað
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

mig vantaði nú svona plast-sigti á inntakið á eheim dælu, endaði í dýraríkinu, þar sem þetta kostaði um 1200 kall!!! og það var áður en krónan fór til andskotans. Ég sleppti því að kaupa þetta og setti net af háfi yfir inntakið.
Pointið er, að á þeim verðum sem varahlutirnir eru á í dýraríkinu, þá er það varla til nokkurs að hafa þá aðgengilega þarna. Það er þó etv annað mál þegar vantar eitthvað stykki í mótorinn eða álika þannig að dælan virkar ekki án þess.
En ég held að brotthvarf dýraríkisins verði gott skref á gæludýramarkaðinum hérlendis. Þá þurfa allir þeir sem hafa ekkert velt fyrir sér hvert þeir ættu að fara að finna sér nýjan aðila til að versla við, það bjargar þá vonandi minni búðunum.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Úff þessi dýraríkisbúð er alveg í ruglinu hvað varðar verðlagningu :S ég fer samt stundum þangað bara til að kíkja á úrvalið :) og þá vel ég Garðabæjarverslunina :P En ég kaupi aldrei neitt þarna og ef það gerist þá er það algjör undantekning og ekki einhverjir fokdýrir gúbbýjar :P

En ég fór þarna bara á föstudaginn og sá þá 37 lítra svona fimmkanta eða sexkanta búr með loki og dælu á 40 þús :shock: ég bara missti andlitið smá. Fannst það svona frekar mikið fyrir ekki stærra búr :S Þorði ekki að kíkja hvað stærri búrin kosta þá :S kosta örugglega uppundir milljón :P
200L Green terror búr
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

hvað kostar þá Convict? 2500þ 4 cm seyði? :lol:
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Fór þarna um daginn, og ég var ekki alveg viss um hvort tölurnar utan á búrunum voru raðnúmerin fyrir fiskana eða verðið, en sumstaðar virtust tölurnar áþekkar. Líka magnað að kaupa sér dvergsíklíðupar og 2 gúrama og borga u.þ.b. 30.000 fyrir. :oops: :oops: :shock: :shock:
Ace Ventura Islandicus
Gremlin
Posts: 260
Joined: 04 Nov 2007, 20:03
Location: Grafarvogur 112. Reykjavík

Post by Gremlin »

Dýraríkið hefur alltaf verið í dýrari kantinum eins og ég man eftir henni þegar ég var að byrja. Ég get þó sagt það að þegar ég var að byrja í bransanum þá voru þarna góðir og fróðir strákar sem gátu leiðbeint manni í rétta átt og verð ég sérstaklega að þakka þeim það þeim ( Kidda og Gunnsa ) sem gera alltaf það besta fyrir mann og taka á móti manni með bros á vör. Dýragarðurinn er stutt frá Dýraríkinu á Grensás og beini öllum mínum viðskiptum oftast þangað enda bara fyrsta floks menn þar á ferð. :)
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

okur á fiskum og fiskavörum skemmir fyrir áhugamálinu... nýjir tilvonandi áhugamenn fara kannski td. í dýraríkið fær flog yfir verðinu og hættir við að smitast af delluni :? semsagt dýraríkið er td. að skemma fyrir öðrum verslunum með þessari fáránlegu verðlagningu :x
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

reyndar má nú ekki gleyma einu smáatriði þessa dagana að evran er okkur ekki í hag
ég var að skoða pöntunar lista frá mínum heildsala og ef ég væri að flytja inn fiska núna væri guppy á 1000-1400
platy á 1300-2000 eftir lit
því miður held ég að allar búðir eigi eftir að verða mun dýrari vegna þessa þegar nýjar sendingar koma inn

en ljósið í myrkrinu er það að núna ætti að vera komin markaður fyrir heimaræktun
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Post Reply