Skrautfiskar á frímerkjum.

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Skrautfiskar á frímerkjum.

Post by Vargur »

Ég rakst á mynd af þessum tveim fiskum í minni eigu á frímerkjum.
Þetta er ansi gaman að sjá og nú langar mig bara að finna fleiri frímerki með mínum fiskum og helst að eignast þau líka.

Image
Image
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég rakst á helling af frímerkjum um daginn, reyndar í algjörri óreiðu en ég skal rúlla í gegn um það.
Ertu að safna frímerkjum?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er reyndar ótrúlegt en satt að safna frímerjum, reyndar helst Íslenskum, þó söfnunin hafi ekki verið í forgang hjá mér á síðustu árum þá á ég eftir að sinna henni betur á efri árum. :wink:
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

ég safnaði einu sinni fiskafrímerkjum ( skrítið )
fiskar sem þú átt þá á ég allavega johanni frímerki (frá malawi) tropheus og zebra (frá afganistan) tretocephalus (Tanzania) og helling í viðbót
td. í ránfiskum pírana,chönnu (micropeltes) hnífafiska lungnafisk arrowana og ýmislegt fleira
ég var búinn að gleyma þessu safni og er núna að skoða og verð að viðurkenna að það er bara gaman að eiga þessi merki
21 tegund af gullfiskamerkjum hehe
ég er klikkaður hehe
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

haha ! þið eruð báðir allveg snar klikkaðir :lol:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er hægt að vera klikkaður í ýmsu, þetta er ekkert verra en hvað annað. Þú ættir nú að finna þessi frímerki Guðmundur og setja í ramma og hafa í búðinni.

Þetta mynnir mig á söguna af manninum sem var forfallinn mörgæsa aðdáandi. Blaðamaður kom að ræða við hann vegna áhugans.
Maðurinn bjó í húsi sem var í laginu eins og mörgæs, átti bara styttur af mörgæsum, rúmfötin voru með myndum af mörgæsum, hann átti ekkert nema bækur um mörgæsir og alls staðar voru myndir af mörgæsum !!
Blaðamaðurinn spurði mannin hvort hann ætti ekkert áhugamál annað en mörgæsir. Maðurinn hugsaði sig aðeins um og svaraði svo, "´jaaah, ég safna nú reyndar líka frímerkjum".
Blaðamaðurinn spurði þá hvort hann ætti mörg frímerki.
"nei" svaraði maðurinn, "ég á bara ca 100 stk, reyndar öll með myndum af mörgæsum"
:D
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

hehe . .
skrýtið þetta fólk . .


hmm ég ætti kannski að fara að athuga þetta . . er með 2 fiskahúðflúr..
en engin frímerki . .
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég fann ekki nema eitt stk. Það er Pumpkinseed Sunfish og er bandarískt.
Er búin að kippa því frá og þú færð það á næstu dögum hjá mér. (frímerkið sko)
Post Reply