Pípulagningar-project

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Pípulagningar-project

Post by Sven »

Jæja, nú er ég að reyna að taka saman hvaða fittings og fleira ég þarf til að tengja allt systemið í skápnum undir búrinu sem ég er nú með á teikniborðinu. Planið er að vera með sennilega 6 göt í botninum.

í tvö götin tengist eheim 2260 dæla, til að tengja hana hallast ég að:
1" bulkhead Sch 80 (t*t) http://www.savko.com/partlist.asp?pgid=2

á eftir bulkheadnum kæmi svo kúluloki (heitir það það?) - 1" single union ball valve http://www.savko.com/partlist.asp?pgid=2, ætti ég kanski að fá stærri loka? e.t.v. 1,5" þar sem að gatið í lokanum er talsvert minna en 1"?

Úr lokanum mundi ég svo tengja í dæluna og þaðan í co2 reactor og aftur upp í búrið, með sama loka og sama bulkhead til baka.

Get ég svo tengt lokann beint í bulkheadinn eða þarf að setja einhvern pvc stubb á milli?

Svo mundi ég hafa svipað setup fyrir eheim 2026 dælu nema nota 3/4" bulkheadda og loka, og svo mögulega 2 göt í viðbót fyrir fleira drasl.

Er til eitthvað svona dóterí t.d. í vatnsvirkjanum eða annars staðar? væri fínt að skoða þetta til að gera sér grein fyrir hvernig þetta passar allt saman áður en maður fer að panta svona. Best væri náttúrulega ef maður gæti fengið þetta hérlendis á sæmilegu verði.

Hvernig er það annars með allt þetta pvc dæmi og tengingar í kring um það, er þetta ekki allt í tommum? Þarf maður þá nokkuð að vera að hafa áhyggjur að drasl sem maður pantar frá usa passi ekki á dót héðan?

Vonandi að einhver geti skýrt þetta eitthvað fyrir mér, ég er alveg að verða ruglaður í kollinum við að skoða þetta :?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég hef ekki hugmynd um hvernig dót frá usa passar við dót hérna.. Það er allt gefið upp í mm hérna, en það getur vel verið að það passi við tommurnar í usa.

Með límt pvc þá þarftu búta eða múffur til að tengja drasl saman, en ef þetta er skrúfað gætirðu hugsanlega sloppið við að skrúfa bara beint. Skiptir í raun litlu máli hvort sem er.

Vatnsvirkinn á lítið af svona drasli eins og er, þannig að það er ekki til mikils að fara til þeirra. Myndi frekar mæla með að kíkja í poulsen eða loft.is

Ég myndi persónulega kaupa allt sem ég get hérna - minna vesen þar sem manni vantar *alltaf* eitthvað sem gleymdist eða virkar betur eða whatever.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Vatnsvirkinn er líka búinn að pakka öllu pvc saman núna og er það að fara upp í Vatn og Hiti sem er í kóp
Kv. Jökull
Dyralif.is
Post Reply