Kraftaverk ?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Kraftaverk ?

Post by Kitty »

Ég var að uppgötva 5 seiði í 20 lítra búri yngstu dótturinnar :D Þetta væri fyrir mér í sjálfu sér ekkert merkilegt ef ég gæti ímyndað mér hvernig þau urðu til. Í búrinu eru 1 Sverðdraga kelling, 1 Bardagafiskur og 2 Ankistur. Fyrir um ári síðan voru 2 Sverðdragakerlingar og einn Sverðdraga karl í búrinu með hinum en Bardagafiskurinn hrakti þau uppúr búrinu í sumar eða það er mín kenning allavega eftir að ég fann þau sem harðfiska í kringum búrið í lok Júlí og hann hafði nýverið tekið uppá að elta þau um búrið í geðvonsku kasti.

Aldrei sá ég nein seiði í búrinu meðan öll hersingin var þar og mig grunaði Bardagakallin (Dreka hinn illa eins og dóttir mín skírði hann) um að hafa ryksugað þau öll upp um leið og þau birtust.

Nú þar sem enginn pör af fiskum eru búin að vera í búrinu frá í sumar var ég búin að gefa upp alla von um seiði nema nú í kvöld setjumst við fjölskyldan niður við að borða og ég rek augun í seiði í búrinu. Ég ákvað með það sama að ég væri farin að sjá ofsjónir og fékk fleiri í lið með mér og viti menn í búrinu synda 5 krúttleg seiði. Ég veiddi þau hið snarasta og skellti þeim í seiðabúr þarna ofaní í þeirri von að forða þeim frá Dreka hinum illa.

Geta Sverðdragakerlingar verði "óléttar" í marga mánuði án þess að unga út eða verð ég að leita skýringa til æðri máttarvalda eða kanski undarlegrar pörunar milli bardagafisksins og Sverðdragakerlingarinnar :?: :?:
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

heheeh þessi seiði eru semsagt eingetinn :P :lol:
er að fikta mig áfram;)
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Is there a God?

Fiska Jesu:Ð
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

þetta er frábærlega skemmtilegt... einhverjir fiskar geta haldið í sér og þetta er varla meyfæðing..... gaman að sjá hvað kemur úr þessu! :D
hrafnaron
Posts: 402
Joined: 23 Feb 2009, 18:56
Location: Reykjavík

Post by hrafnaron »

hmmm áttu mynd?.... gæti verið ancistru seiði
allavega eru það einu 2 fiskarnir sem koma til greina
Rena Biocube 50: tómt eins og er
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Kitty þekkir nú sennilega ancistur... :?

Sverðdragarakerlan hefur sennilega verið að gjóta annað slagið en hún og bardagakarlinn hafa étið þau jafnóðum. Núna hafa svo sloppið nokkur eða þá að þið sáuð þau bara áður en þau voru étin.
hrafnaron
Posts: 402
Joined: 23 Feb 2009, 18:56
Location: Reykjavík

Post by hrafnaron »

enn það er bara einn sverðdragi?
Rena Biocube 50: tómt eins og er
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Post by Kitty »

Jamm blessaðar Ancistrunar gætu það verið en synda Ancistru seyði upp að yfirborðinu og dunda sér þar innan um gróður :?: Ætti maður ekki að sjá mun á þeim miðað við seyði annara fiska eða eru þau öll eins svona ný :?: Ofan í það eru báðar Ancisturnar brúsklausar svo ég gerði ráðfyrir að það væru 2 kerlingar :oops:

Ég er með glatað gler í búrinu og svo eru þau í lélegu seyða búri ofan á það ég gæti hugsanlega náð myndum af litlu Jesú seyðunum ofan frá ...ætla að reyna :P
Last edited by Kitty on 21 Mar 2009, 02:09, edited 1 time in total.
hrafnaron
Posts: 402
Joined: 23 Feb 2009, 18:56
Location: Reykjavík

Post by hrafnaron »

hmm já allavega eru mín sverðdraga seiði við yfirborðið að dunda sér í gróðrinum....
Rena Biocube 50: tómt eins og er
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

HALELUJA :shock:
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Post by Kitty »

Jæja veiddi 2 kríli uppúr seiðabúrinu og skellti i krukku og gerði heiðarlega tilraun til að ná mynd af þeim en þau er svo hrikalega smá (c.a. 2.5 mm) að þetta eru nú engar keppnis myndir :oops:

En getur kerlingin virkilega hafa verið að gjóta reglulega í 8 mánuði frá því hún var síðast kennd við Sverðdraga karl :shock: :?:

Þetta er þá algjölega survival of the fittest ef ein kerling getur viðhaldið stofninum svona :) Sverðdragar eru þá merkilegri skepnur en ég hafði gert mér grein fyrir :!:

Heyri ég Amen :lol:
Image

Image
Last edited by Kitty on 21 Mar 2009, 02:35, edited 1 time in total.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Amen Sistah! :gamall:
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

aaaaaaaaaaaaaaaaammmmmmmmmmmeeeeeeeeeeeeeeeeennnnnnnnn :fiskur:
er að fikta mig áfram;)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Kerlurnar geta verið frjóar í nokkra mánuði, reyndar hef ég enga staðfestingu á hvað þær geta verið að koma með seiði í langan tíma án þess að hitta kk, sennilega er það eitthvað misjafnt eftir einstaklingum og aðstæðum í búrinu. Átta mánuðir er þó meira en ég hefði haldið, er frekar kalt í búrinu ? Það gæti hafa hægt á ferlinu.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Þetta er eitt af vandamálunum þegar maður kaupir gotfiskakerlingu til undaneldis, þær geta verið nokkra mánuði að losa sig við seiði undan öðrum körlum
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hér á spjallinu hefur alltaf verið talað um að kerlurnar geti geymt í sér í 2-3 mánuði en það þarf auðvitað ekkert að vera heilagur sannleikur.

Mér finnst þetta merkilega langur tími.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Haleluja þetta er skemmtilegt hehe mér sýnist þetta vera sverðdragaraseiði allavega.. litirnir í þeim allavega benda á það
Ekkert - retired
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

þetta eru sverðdragara seiði.

Svona getur náttúran verið skemmtileg :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Post by Kitty »

Hitinn í búrinu er 24-5 gráður og hefur frekar átt til að hitna full mikið en of lítið þar sem búrið stendur í gluggakistu fyrir ofan ofninn í eldhúsinu.

En það er nú ekkert lítið vandamál í ræktun ef þær geta geymt "seiði" í 8 mánuði eða lengur :shock: Mér finnst þetta reyndar alveg frábær aðferð við að viðhalda stofni að geta bara ungað út eftir þörfum. Undur náttúrunnar eiga sér engin takmörk ekki einu sinni í litlum illahirtum fiskabúrum :oops:

Ég er líka hæst ánægð að Dreki Hinn Illi náði þeim ekki og krossa fingur fyrir að mér takist að halda þeim á lífi og koma þeim til fisks :)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Dreki hinn illi...
.... mér finnst þetta stórkostlegt nafn :lol:
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Post Reply