Yellow Lab kall ????

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
Toni
Posts: 488
Joined: 05 Nov 2006, 12:41

Yellow Lab kall ????

Post by Toni »

Gott kvöld
Ég hef átt í marga mánuði einn Yellow Lab kall, með mjög sterka liti og alveg svarta ugga að neðan sjáið myndina. (kellan er þarna bakvið)

Image

Síðan fékk ég mér eina kellingu handa honum, (hún var með uppí sér þegar ég fékk hana) en nú í gær voru þau að hrygna aftur, en þá byrjaði kallinn að hrygna eggjum og taka þau uppí sig sést illa á þessum myndum en hér er ein þegar "hann" er kominn með uppí sig.

Image

er ég orðinn eitthvað ruglaður eða er þetta Kelling eða Karl ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er ekki flóknara en svo að karlinn þinn er kerla. Það kemur oft fyrir að tvær kerlur hrygni saman ef enginn karl er í búrinu.
Þó það geti verið erfitt að kyngreina Y. lab, þá þykir mér nokkuð augljóslega vera tvær kerlur á myndinni.
Last edited by Vargur on 02 Apr 2009, 00:51, edited 1 time in total.
Toni
Posts: 488
Joined: 05 Nov 2006, 12:41

Post by Toni »

hehe já bara skrítið því hann eða já Hún er með svo rosalega dökka ugga undir, er það ekki yfirleitt einkenni kallanna ?

Þetta eru þá vætanlega bara ófrjó egg.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Kk er yfirleitt með dekkri ugga en það er ekki hægt að kyngreina örugglega eftir því, fiskurinn á myndinni hefur höfuðlag og gotrufarugga eins og kvk, að auki er það öruggt að ef hann hrygnir og tekur hrognin upp í sig að þarna er um kvk að ræða. Víða á netinu má lesa reynslusögur um kk sem hrygna og passa hrognin en engar af þessum sögum hafa þann endi að hrognin verði að seiðum enda hrygna karlkyns fiskar ekki þrátt fyrir sannfæringu eigenda.
Það þarf varla að taka fram að þegar tvær kvk hrygna saman að þá eru hrognin ekki frjó.
Toni
Posts: 488
Joined: 05 Nov 2006, 12:41

Post by Toni »

hehe ég tel mig nú vita það :) að það þarf kk og kvk tilþess ;)

Fannst þetta bara eitthvað skrítið því ég er búinn að eiga "hana" svo lengi og var alltaf að hugsa um að fá mér kellingu fyrir hann en síðan eftir allt saman er þetta kelling.

takk fyrir svörin
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

hérna er góð mynd af KK yellow lab

Image
Þarna sjást vel oddmjóu uggarnir

miðað við þessa mynd frá þér
Image
Hérna er fiskurinn með stutta, rúnaða ugga. Semsagt kvk.

:)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Toni
Posts: 488
Joined: 05 Nov 2006, 12:41

Post by Toni »

já okey snilld, þá er þetta alveg komið á hreint :D

thanks alot
Post Reply