Gullfiskur á hvolfi

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Gullfiskur á hvolfi

Post by Hrafnkell »



Fjölskyldumeðlimi var gefin gullfiskur í skál í gær.

Persónulega finnst mér það heldur sorgleg vist fyrir gullfisk en því verður ekki breytt úr þessu.

Það sem verra er að fisknum virðist ekki líða vel. Í dag lá hann bara á hliðinni í búrinu og var slappur. Ég fyrirskipaði auðvitað vatnsskipti strax. Eftir það á fiskurinn það til að synda á hvolfi en fer einnig í gamla farið á botninum.

Eitthvað hef ég heyrt um sundmagavandamál og það leiði til að synda á hvolfi. En hann virðist nú geta komist niður en hann getur ekki áttað sig.

Ég fyrirskipaði að salta vatnið og reglulega gára vatnið og dýfa bolla í og sturta aftur ofan í svo eitthvað súrefni leysist upp í vatninu.

Hafið þið fleiri ráð?
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Get ekki séð að það sé mikið meira sem þú
getur gert fyrir greyjið, ef þetta er að völdum snýjudýri þá
ætti saltið að slá á þetta en ef þetta er ,,sprunginn" sundmagi
þá hættir hann ekkert að vera sprunginn ...
veit um nokkra sem hafa haldið slíkum krílum lifandi í örfá ár,
og passa sig að sökkva fæðunni þeirra svo þeir gleypi ekki
loft við yfirborðið :?
Þá synda þeir mér að mér skilst nokkuð eðlilega,
hvort það sé eitthvað líf er ekki mitt að dæma.

mér hefur einnig fundist það gera hellings fyrir
þessi kríli í skálum að tengja loftdælu við.

Þegar stærri menn hugsa um stærðareinnar fiskabúr fyrir fyrirtæki og stofnanir
fer Vigdís á stúfana og passar gullfiskakúlur hjá einstaklingum
og fyrirtækjum :lol:
Last edited by ~*Vigdís*~ on 24 Apr 2007, 21:24, edited 1 time in total.
Image
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Post by Hrafnkell »

Takk Vigdís.

Ég tók einmitt fram loftdæluna mína og hringdi í kúlueigandann og sagði að sækja hana og setja í. Ég á von á heilsufarsskýrslu og lífsmörkum í kvöld :)
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

já vonum að það geri eitthvað, svona upside down
gullfiskar eru pínu kvimleiðir :?

Maður krossar alltaf fingurnar og vonar að saltið taki á slíku,

væri gaman að heyra frá öðrum hvort þeir hafa einhver betri ráð,
ég væri til í að prófa hvað sem er ,,næst" þegar ég hitti svona
einstakling :)
Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Einu sinni heyrði ég af manni sem sagðist hafa fengið lyf við þessu í Dýraríkunu og að fiskurinn hefði lagast. Ég hef reyndar litla trú á því, gaman væri að fá reynslusögur.
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Post by Hrafnkell »

Ég reyndi að lesa mér aðeins til í gær.

1) Hafið 2ja daga matargjafafrí í viku hjá gullfiskum. Þetta tryggir að innyfli þeirra hreinsa sig og minnkar líkur á sýkingum.

2) Gefið lítið í einu og frekar oftar. Plássið í maga gullfisks er lítið og töluverður þrýstingur á innyflin þar sem þeir eru hálf "afbakaðir" gegnum kynbætur og afbrigðaræktun.

3) Ef notað er þurrfóður, myljið það fínt og leggið í bleyti fyrst. Annars étur gullfiskurinn það frekar þurrt og fyllir á sér magann. Svo dregur þurrfóðrið í sig raka í maga hans og þenst út. Það eykur en á þrýstinginn á innyflin og getur leitt til sýkinga.

Fann þessa síðu sem lýsir mörgum heilsufarsvandamálum gullfiska
http://www.goldfishinfo.com/identify.htm

Var að fá hringingu. Fiskurinn hresstist vel í gær við aðgerðir en er aftur orðin slappur. Ég sagði endurtaka aðgerðir gærdagsins (skipta 50% vatns og salta í nýja vatnið).
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Vargur wrote:Einu sinni heyrði ég af manni sem sagðist hafa fengið lyf við þessu í Dýraríkunu og að fiskurinn hefði lagast.
Þarf að spyrja Halldór að því við tækifæri :)


Þetta meikar sens með að hafa matinn ekki þurrann,
á við um svo margt í dýraríkinu...

Annars finnst mér eimitt þess vegna gullfiska kögglar svo
góðir, hægt að bleyta upp í þeim, þeir haldast samt heilir
án þess að sáldrast út um allt búr og valda mengun eins og flögurnar
Image
Post Reply