700L búr í býgerð...

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
User avatar
Österby
Posts: 106
Joined: 11 Apr 2009, 18:26
Location: HFJ

700L búr í býgerð...

Post by Österby »

Jæja, ég er búinn að eyða hálfri nóttinni í Google SketchUp að teikna mér draumabúrið =D

Kann ofc ekkert á þetta forrit og er búinn að vera að fikra mig áfram ^^

Málin á búrinu eru ekki óhagganleg en ég teiknaði þau 170x60x70.
Skápurinn er 90cm hár. (of hátt?)

Image

Búrið á að sjást frá báðum stóru hliðunum og virka sem einskonar skilrými 8)

En ég veit ekki með sumpinn, á ég að koma fyrir proteinskimmer í sumpnum sjálfum eða þarf kannski ekki protein skimmer þegar maður er með sump ? (eða vera með hann í búrinu sjálfu?)
Hann er 300L er það svolítið "over the top" ? Má hann vera jafnvel helmingi minni ? :?

Ég teiknaði 2x rör á hliðina sem afföll, annað neyðaraffall, hitt verður með loka. Er ekki mikið öruggara að hafa boranirnar á hliðargleri frekar en botninum? :P

Hlakka bara til þegar ég fæ e-h cash til að geta byrjað á þessu ^^

Endilega segið mér ef e-h má betur fara eða bæta við :wink:
.-Ívar
130L Sjávarbúr
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég myndi mæla með að bora botninn, þá sleppurðu líka við að rörin útlitsmengi utanfrá.

Sumpurinn er alls ekki of stór! Því stærri, því betri. Hólfuninni mætti líklega breyta aðeins og hann er líklega aðeins of hár miðað við skápinn uppá að koma búnaði auðveldlega fyrir. Hugsaðu t.d. hvernig væri að skipta um próteinskimmer án þess að rífa allt í sundur :)

Próteinskimmer er möst, það að vera með sump breytir því ekki.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Aðal búrið er frekar hátt, þarft massa lýsingu fyrir svona búr
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Mundir líka þurfa nokkuð þykkt gler í svona hátt búr. Mundir e.t.v. sleppa með 15mm gler ef búrið væri eurobrace-að með 2-3 stífum þvert yfir búrið líka. Annars 19mm gler, sem kostar fokk mikið.

Annars finnst mér ekkert að því að hafa skápinn 90cm, skápurinn sem ég er að smíða er rétt rúmlega 90cm hár. Svo lengi sem þú ert ekki það lágvaxinn að eiga erfitt með að vinna í búri þar sem brúnin stendur á ca. 160cm. Til að þægilegt sé fyrir þig að vinna í búrinu þyrftir þú þá helst að vera 160cm við handakrika.

Annars er ég sammála Squinchy, það er mjög margt sem mælir með því að lækka búrið talsvert. Mikill auka kostnaður að hafa búrið svona hátt.
User avatar
Österby
Posts: 106
Joined: 11 Apr 2009, 18:26
Location: HFJ

Post by Österby »

Ok, flott að fá skoðanir, stökk strax í SketchUp og breytti til!

Sumpinn lækkaði ég um 5 cm, þá er ég með helmin skápsins í vinnslupláss og hann er þá 270L

Búrið er núna 170x70x60
Skv http://www.thekrib.com/TankHardware/gla ... kness.html slepp ég með 12 mm hliðarplötur og 15 mm botn, en ég mun eourobrace-a (íslenska heitið?) búrið samt sem áður.

Image

Hverju þarf ég að breyta við hólfaskiptingu sumpsins, og hvar færi skimmerinn í hann? Lokahólfið?
.-Ívar
130L Sjávarbúr
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég held að þessir standardar á thekrib séu miðaðir við að búrin séu brace-uð þvert yfir.
Ég mundi ekki leggja í að hafa búr af þessari stærð í 12mm. Mæli eindregið með að hafa 15mm. Það er til á lager á ágætis verði í glerborg hfj. Íspan á víst ekki 15mm á lager.

Veit ekki heldur íslenskt heiti fyrir eurobrace......... evróstífun ? :?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Mættir sleppa seinustu plötunni í sumpnum til að stækka flötinn þar sem búnaðurinn er og vatnsmagnið sem dælan hefur uppá að hlaupa við uppgufun. Svo held ég að það væri sterkur leikur að svissa flæðinu þannig að það rennur úr búrinu í sump, og svo undir plötu, yfir plötu, undir plötu.

Svo er spurning hvort þú viljir gera sumpinn styttri, uppá að koma auto topoff kerfi fyrir í skápnum. Í raun yrði það þannig að t.d. seinasta hólfið á myndinni eins og hún er núna myndi vera alveg sér, og vera með bara ferskt vatn. Sá partur mætti vera hærri til að koma meira vatni fyrir.

Svo fer þetta bara eftir því hvaða búnað maður ætlar að vera með í sumpinum og hvaða filterefni.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Flott.
Hvernig seturu google sketchup file sem mynd á netið?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Österby
Posts: 106
Joined: 11 Apr 2009, 18:26
Location: HFJ

Post by Österby »

keli wrote:Mættir sleppa seinustu plötunni í sumpnum til að stækka flötinn þar sem búnaðurinn er og vatnsmagnið sem dælan hefur uppá að hlaupa við uppgufun. Svo held ég að það væri sterkur leikur að svissa flæðinu þannig að það rennur úr búrinu í sump, og svo undir plötu, yfir plötu, undir plötu.

Svo er spurning hvort þú viljir gera sumpinn styttri, uppá að koma auto topoff kerfi fyrir í skápnum. Í raun yrði það þannig að t.d. seinasta hólfið á myndinni eins og hún er núna myndi vera alveg sér, og vera með bara ferskt vatn. Sá partur mætti vera hærri til að koma meira vatni fyrir.

Svo fer þetta bara eftir því hvaða búnað maður ætlar að vera með í sumpinum og hvaða filterefni.
Ok, cool fer í að hanna það á eftir :D


Síkliðan wrote:Flott.
Hvernig seturu google sketchup file sem mynd á netið?
Print Screen -> líma í paint -> skera út partinn sem þú vilt sýna =P
.-Ívar
130L Sjávarbúr
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Líka hægt að fara einfaldari leið:
File - Export - 2D Graphic og velja JPEG
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

Fishfiles
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Andri Pogo wrote:Líka hægt að fara einfaldari leið:
File - Export - 2D Graphic og velja JPEG
Takk Andri.
Fishfiles
þú misskyldir greinilega það sem að ég var að tala um.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

já greinilega ......sorry :oops: :)
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
Dýragardurinn
Posts: 143
Joined: 11 Dec 2006, 16:29
Location: Dýragarðurinn

Post by Dýragardurinn »

'eg smíðaði búr sem er 350 x 90 x 100cm (lxbH)

Í botnin notaði ég 19mm allt annað er 15 óhert gler. Búr er með Eurobrace á langhliðunum og 3 stífur yfir það þvert úr 12 mm gleri.

Þetta búr er búið að þola einn jarðskjálfta og lekur ekki enn.

Hæðin á hans búri sem er 70 cm er ekki mikið vandamál að mínu mati.

Nær vel að lýsa búrið upp á T5 lýsingu, þótt MH væri betra.

'oþarfi að vera með svona mörg hólf í sumpnum nóg að hafa 3 hólf.
Dýragarðurinn
Síðumúla 10
108 Reykjavík
S:517-6525
dyragardurinn@dyragardurinn.is
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Sven wrote:Ég held að þessir standardar á thekrib séu miðaðir við að búrin séu brace-uð þvert yfir.
Ég mundi ekki leggja í að hafa búr af þessari stærð í 12mm. Mæli eindregið með að hafa 15mm. Það er til á lager á ágætis verði í glerborg hfj. Íspan á víst ekki 15mm á lager.

Veit ekki heldur íslenskt heiti fyrir eurobrace......... evróstífun ? :?
Mitt er 200x63x68 12mm hliðar botnin er freak og við ræðum hann ekkert meira :oops:

annars er mitt braced allan hringin og 2 þver stífur
Post Reply