Búrið mitt

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Búrið mitt

Post by Gunnsa »

Gunnsa heiti ég er or ný hér á spjallinu. Er 17 ára kópavogsbúi
Image
Mynd af stelpunni.

Er með 3 Guppy, 1 kk og tvær kvk og einn eplasnigil. Til að byrja með voru þau í litlilli 5L kúlu en núna eru þau komin í stærra 43L RENA búr með öllum græjum.. Allir svakalega ánægðir og þau eru búin að vera að synda á móti straumnum núna í svona korter.. Sýnist þetta vera einfaldar sálir sem þarf lítið til að gleðja :D
Image
Hérna er litla kúlan sem fiskarnir voru í.. Eins og þið sjáið er þetta ekki besta fyrir fiskana..

Image
Kallinn og önnur kellan. Mjög fallegur litur eins og sést. Fékk hann og snigilinn í dýrarýkinu Grensás.

Image
Snigillinn hann Garðar

Image
Snakeskin kellan og bleika blómið

Sendi myndir af nýja búrinu þegar allt er komið inná tölvuna.
Annars var ég að pæla hvort þið getið sagt mér hvaða fiskar geta verið með guppy fiskum.. Geta kossagúramar verið með þeim?
Svo ætlaði ég að fá mér eina lifandi plöntu í búrið, í lokinu er ein flúorpera með spegli og hún er 18W
Öll svör eru þegin með þökkum :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Kossagúramar geta verið með þeim en þeir verða full stórir fyrir 43l búr. Svo getur líka verið erfitt að gefa þeim þar sem þeir éta aðallega af botninum og þar af leiðandi fengið voðalega lítið af mat.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Okay, nenni ekki að vera í veseni með þannig.. Með hverskonar fiskum mæliru þá?
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Komin með myndirnar af nýja búrinu

Image
Búrið áður en allt var sett í það

Image
Uppröðunin eins og hún verður í bili

Image
Að bíða eftir að komast í vatnið

Image
Allir hamingjusamir að synda á móti straumnum :)
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

skemmtileg uppsetning, fíla svona gefi uppsetningar í lítil búr sjálf :)
Image
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Ég þakka :D
Ætla samt að ná mér í eina lifandi plöntu og fleiri fiska.. Fá smá fjölbreynti í þetta. Er líka að spá í að finna eitthvað svona loftbólu skraut.. Veit einhver hvernig þannig dót virkar?
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

Verða fiskarnir ekkert stressaðir að hafa svona skær rauðan sand í botninum ?
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Ég held það nú ekki..
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Smekklegt búr.
Guppy karlinn lítur vél út, gaman væri að sjá betri mynd af honum. ´
Ég mundi helst mæla með Platy sem búrfélögum.
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Þakka :)
Ég er rosalega hrifin af litnum á karlinum og er búin að reyna eins og óð að ná betri myndum af honum en þetta var sú skýrasta hingað til.. Er dugleg með myndavélina til að reyna að ná betri myndum :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Fínasti karl - kallast þetta ekki moscow blue eða eitthvað þannig?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Þá erum við búin að bæta í búrið eftir dauðsfallið (kk guppinn dó fyrir skömmu). Við fengum okkur 4 fiska til viðbótar, eitt platy par. Kellan er með mikkamús dæmið og kallinn er rauður með svartri línu. Svo fengum við okkur tvær rosalega stórar flottar guppy kellur tilviðbótar. Skelli inn myndum þegar ég get. Báðar eru nálægt goti og við ætlum að bíða með að kaupa okkur annan kk þangað til við erum búin að sjá hvað kemur úr þeim 4 gotum sem verða á næstunni.

Annars var ég að velta því fyrir mér hvað ætti að gefa seiðunum að éta, hvaða aðstöðu þurfa þau. Og hvort að maður ætti að gefa fiskunum í búrinu eitthvað fleira en þessar flögur sem þeir fá? Við erum að nota tvær gerðir sittá hvað, frá RENA og SERA.. Bæði samt gular, grænar og rauðar flögur. Eitthvað lifandi (helst ódýrt) sem þau myndu hafa gaman af?
User avatar
Hrannar E.
Posts: 98
Joined: 18 Jan 2007, 06:27
Location: Grindavík

Post by Hrannar E. »

Í sambandi við seiðin þú getur mulið venjulegan mat mjög smátt og gefið þeim eða þá að kaupa seiðamat.
Kveðja Hrannar
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Sá í trítu eitthvað sem heitir hrein egg af artemia salina og á að klekja út.. Eru þetta bara þurrkuð en samt lifandi egg? Er að spá í að kaupa þannig fyrir seiðin, en geta fullorðinr fiskar líka étið svona? Og geta alveg glæný seiði líka étið svona? Þetta eru 100ml á 1620, er til eitthvað svipað en ódýrara í öðrum búðum?
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Þetta fæst líka í Dýraríkinu og ég yrði ekki hissa ef strákarnir í Dýragarðinum bjóða upp á þetta líka :)

Ég á svona dollu frá Trítlu sem ég er búin að eiga ansi lengi, maður
notar svo geggjað lítið af þessu í einu, en artemíu egg eru yfirleitt ekki ódýr.

Þú þarft að hafa auka loftdælu til að klekja þeim út, á trítlu dæminu
eru nákvæmar leiðbeiningar hvernig á að græja þetta, salt magn o.s.frv.
Fylgir áræðanlega með hjá hinum búðunum líka samt, hringdu
bara og tjékkaðu á þessu :)
Image
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

En þetta endist sem sagt alveg lengi þó að það sé dýrt? Er nóg að hafa litla loftdælu og láta hana dæla í loftstein eða eitthvað svoleiðis? ég er að fara að kaupa einhverja litla uppá punt í búrið
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

já já endist heillengi, sérstaklega fyrir svona smáhobbísta eins
og okkur, fer nú eflaust hraðar hjá liðinu sem er með nokkra rekka að rækta :)

En þú þarft ekkert að gefa þeim artemíu seiðunum, þau spjara sig alveg
fínt á muldu þurrfóðri :) En það er reyndar bara gaman að fóðra artemíu :D
En já þá er lítil loftdæla alveg nóg, svo geturðu líka keypt þér oggu ponsu
stærri loftdælu og tengt tvær lofslöngur við hana, eina í búrið og hina fyrir artemíuna :D
Image
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Okay

Kellan mín er að gjóta as we speak.. En það líður voða langt á milli seiða hjá henni.. Það eru komin 3 (einhver gætu auðvitað hafa synt upp aftur og verið étin) en hún er ennþá með rosalegan maga.. Hvað er svona normið að got taki langan tíma hjá þeim? Og hvenær sé ég að hún er hætt?
Post Reply