Hvernig hafið þið sem hafið búið til Infusoriu borið ykkur að?
Ég er að prófa þetta núna og setti ca. 1,5 ltr í 2 lítra flösku með smá kínakáli og hálfri þörungatöflu útí í norður glugga. Ætla að sjá hvað gerist með það. (Er að prófa að fá Svartneon til að hrygna)
Væri gaman að fá upplýsingar hvernig aðrir hafa gert þetta og hvað virki best.
settir þú þörungaeyðistöflu í? þú vilt hafa vatnið þykkt af þörungi, ég setti vatnið í flatann plastdall og setti gamalt kramið salat. svín virkaði. held að það sé betra að hafa meira yfirboð en minna og besta stöffið er við yfirborðið.
OK, takk fyrir það Guðrun, nei ég setti þörunga-töflu, svona eins of maður gefur pleggum og öðrum þörunga-ætum.
Sé hvað kemur út úr þessu, prófa kanski líka með stærri plast dalli.
Hvað þurftir þú annars að bíða lengi þangað til að þetta var farið að virka?