Hillbilly guppy breeding

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Hillbilly guppy breeding

Post by henry »

Jæja. Þannig er mál með vexti að ég er með mína fyrstu gúppý fiska, þótt ótrúlegt megi virðast. Hef aldrei haft neinn áhuga á þeim, en konan sem er ný í sportinu er rosa hrifin af litunum og svona. Þannig að ég fékk 2x kalla og 2x kellingar frá Vargnum með flugi og svo fór náttúrulega að ein kellingin varð seiðafull. Og mér sýnist hún vera alveg við það að gjóta. Hnöttótt og með dökkan blett á mallanum.

Ætlaði fyrst að leyfa þessu bara að ganga sitt skeið og þetta yrði þá bara étið. En svo fékk ég bakþanka og náði í ~15L bleikt Dóru fiskabúr úr fallega rispuðu plexi sem ég á, og minnsta hitarann sem ég á (100w :P) og skellti þessu saman ásamt dælu sem fylgdi búrinu og hraunmola með Javamosa úr 250L búrinu.

Núna húkir hún, heillin, ein ofan á eldhúsinnréttingunni hjá mér, þar sem sodastream tækið var, og bíður eftir að eiga

Veit ekkert hvað ég geri við seiðin, kannski hirði þá sterkustu og hinir fara í Discusamaga..

Myndir:

Image
Image
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

nei heyrðu bara kas ólétt.. til hamingju meða 1.gúbbýana
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

til hamingu með þetta og gangi þér vel.
kristinn.
-----------
215l
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta er kanski byrjunin á rekka. :D
Persónulega þykir mér ræktunin það skemmtilegasta í þessu, það er einstaklega gaman að sjá seiði sem fæðast hjá manni verða af fullorðnum fiskum og svo rækta áfram undan þeim.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Já. Ég sá einn Risa marmara skalla um daginn sem var undan mínu pari (afabarn). Spes :)
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Jæja, var að búa mér til sveran prótein shake í hádeginu þegar mér varð litið á búrið og sá að kerlingin var öll grönn og spengileg, og seiði í javamosanum.

Veit ekki hvenær hún var að gjóta nákvæmlega, eða hvort hún náði að éta eitthvað, en ég færði hana strax aftur í 54L búrið hennar.

Ég tími ekki að kaupa artemíu ofan í greyin, svo ég notaði gamalt trix frá skallaræktunardögunum góðu, og sauð eggjarauðu ofan í þau. Sjá vídeó

<embed src="http://www.youtube.com/v/8cN0-rQHLTo&hl=en&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed>
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

svo er líka bara fínmulið fóður ágætt :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Þeir fá það líka, gef 4x á dag, bara eggjarauða 2x á dag. Var að spá í að prófa að gefa þeim daphniu líka. Á misjöfnu þrífast börnin best! ;)
Post Reply