Nýliði

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
gislij
Posts: 4
Joined: 22 Nov 2009, 20:22

Nýliði

Post by gislij »

Svo er mál með vexti að mig langar í Gullfisk

Mig langar bara í 1 lítinn til að byrja með þar sem ég er á vist
ég hafði séð fyrir mér að hafa hann í litlu kúlubúru (samt ekki of litlu)
hvað er svona það sem ég þarf að hafa í huga :)
fóður, hvaða fiskur unir sér best einn, og til dæmis ef maður fer heim yfir helgi að hvað get ég gert til að hann hafi að borða ... ég las um svona kúlur en það er bara of mikill matur fyrir 1 fisk ;)
og náttúrulega hversu mikið á að gefa einum litlum að borða og hversu oft á að skipta um vatn / þrífa kúluna :D
og þarf nokkuð dælu í svona lítið búr með einum fisk?

öll svör vel þeginn :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Kúlur eru ekki góður staður fyrir gullfiska en það má gera þær bærilegar með góðum vilja.
Aðalmálið er að skipta reglulega um vatn (50% helst daglega), gefa lítið og loftdæla er æskileg.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af því að fiskar svelti þó farið sé frá þeim yfir helgi.
gislij
Posts: 4
Joined: 22 Nov 2009, 20:22

Post by gislij »

Þá kemur náttúrulega spurningin...ef ég fer yfir helgi sleppur þá að skipta um vatn þegar ég kem aftur og gefa honum bara aðeins aukalega að borða þá

og ef maður er duglegur við að skipta um vatn þá líður honum ekkert illa án dælu?
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Að hafa gullfisk í kúlu er álíka og hafa hest inní eldhúsi = tómt vesen
en það er hægt að láta það ganga með smá vinnu

Til að gera þetta einfaldara ( eða rugla þig endalega í ríminu )
Þá er dæla í raun hótel fyrir bakteríur sem liggja á beit og vinna við að brjóta niður óæskileg efni í vatninu
með því að gefa fisknum að borða ertu í raun að eitra fyrir honum vatnið en eftir að bakteríur eru búnar að koma sér fyrir í dælunni og hafa undan að brjóta niður þessi efni þá ertu kominn í ágætis mál
lestu þetta
http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/ver ... gurinn.htm
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Nýliði

Post by Elma »

gislij wrote:Svo er mál með vexti að mig langar í Gullfisk

Mig langar bara í 1 lítinn til að byrja með þar sem ég er á vist
ég hafði séð fyrir mér að hafa hann í litlu kúlubúru (samt ekki of litlu)
hvað er svona það sem ég þarf að hafa í huga :)
fóður, hvaða fiskur unir sér best einn, og til dæmis ef maður fer heim yfir helgi að hvað get ég gert til að hann hafi að borða ... ég las um svona kúlur en það er bara of mikill matur fyrir 1 fisk ;)
og náttúrulega hversu mikið á að gefa einum litlum að borða og hversu oft á að skipta um vatn / þrífa kúluna :D
og þarf nokkuð dælu í svona lítið búr með einum fisk?

öll svör vel þeginn :)
Mæli ekki með minni kúlum, en 10L. Gætir haft bardagafisk, þeir sóða minna út en gullfiskar, það þarf ekki mikið að hafa áhyggjur af því að fiskurinn drepist úr súrefnisleysi, þar sem þeir geta andað að sér lofti og una sér best einir , þar sem fiskurinn hefur þá "félagsskap" af þér.
(getur ekki haft tvo bardagafiska saman í búri)
hitinn þarf hinsvegar að vera í kringum 24-25 gráður, en ef þú ert með lítinn gullfisk, þá skiptir það ekki svo miklu máli, þar sem þeir eru kaldvatnsfiskar, 18-24 er fínt fyrir gullfisk...
Það er allt í lagi þó að fisknum sé ekki gefið yfir eina helgi, út í náttúrunni, fá þeir takmarkað magn að borða og það er eðlilegt fyrir þeim að vera ekki að háma í sig mat á hverjum degi.
Það á ekki að þrýfa búr alveg, heldur bara að skipta um vatn í þeim og ryksuga botnlagið öðru hverju og skrúbba glerið með hreinum uppþvottabursta eða stálull.
Gullfiskar borða meira af grænfóðri en bardagafiskar eru alætur á fóður, en ég gef mínum meira af t.d tubifex ormum, blóðormum og krilli.
Þegar vatn er sett í kúlubúr, þá á alltaf að skilja eftir nokkra cm frá brúninni.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
gislij
Posts: 4
Joined: 22 Nov 2009, 20:22

Post by gislij »

Þannig að bardagafiskar una sé einir og án dælu?

og hvernig held ég hitastiginu réttu?
Last edited by gislij on 23 Nov 2009, 18:42, edited 1 time in total.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Afhverju ættiru ekki að vilja að hafa dælu.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
gislij
Posts: 4
Joined: 22 Nov 2009, 20:22

Post by gislij »

er ekki erfitt að hafa dælu á kúlubúri?

því það er eiginlega ekki pláss hérna fyrir stærra búr en kúlubúr fyrir 1 fisk :)
Post Reply