Ljósið slær út rafmagninu...

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Ljósið slær út rafmagninu...

Post by Fanginn »

Vitið þið hvað getur valdið því að ljósið slái út rafmagninu. Er búinn að prófa að hafa ljósið í sér tengi og alltaf sama sagan.

kveðjur
EymarE
jæajæa
User avatar
davidge
Posts: 59
Joined: 01 Mar 2009, 14:59
Location: Hafnarfjörður

Post by davidge »

Ballestin getur verið farin
Davíð Geirsson
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Takk fyrir það.

En það væri rosalega gott ef þú gætir sagt mér hvað ballestin er, og hvernig er hægt að laga það :)

Er núll og nix þegar rafmagn á í hlut :)

Takk fyrir.
jæajæa
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Hugsanlega kominn raki að einhversstaðar líka.

Ballestin er græjan sem keyrir ljósin, rafmagnið fer úr veggnum í hana og þaðan í ljósin.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
davidge
Posts: 59
Joined: 01 Mar 2009, 14:59
Location: Hafnarfjörður

Post by davidge »

Image

Hún er sennilega eitthvað þessu lík, og það er ekki hægt að laga hana heldur þarf að skipta um.
Ég held að þetta sé líklegasta orsökin.

þú gætir líka athugað með raka í fattningunum (þetta sem perurnar setjast í)

Það getur líka verið ágætt að skipta um peru og startara, en það er sennilega ekki orsökin.
Davíð Geirsson
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Takk fyrir svörin.

Tók þetta í sundur og það var slatti af raka inní ljósinu, og "ballestin" hundblaut.

Eyðileggs ballestin ef hún blotnar, eða er hægt að þurrka hana?


Tek fram að ég er nýbúinn að fá þetta ljós í hendurnar :)
jæajæa
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Skelltu ljósinu á ofninn
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
davidge
Posts: 59
Joined: 01 Mar 2009, 14:59
Location: Hafnarfjörður

Post by davidge »

Það þarf ekki að vera að hún sé ónýt.
einhverntíman lét ég ballast vera á ofni í einhvern tíma og hún virkaði eftir það.
Ég mundi bara láta allt draslið þorna vel og sjá svo hvort að rafmagnið slær út
Davíð Geirsson
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Búinn að blása smá á þetta með hárþurrku. prófaði svo, en það sló út.

Ætla að hafa þetta á ofninum í nótt og sjá hvað gerist á morgum.

Þakka fyrir hjálpina.

kveðjur
EymarE
jæajæa
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

minnir að ég hafi nú mist nokur flúor ljós oni búrið mitt í den.
hvorki Mbúnunum né ljósinu varð meint af :oops:
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

jæja rafmagnssnillingar.

Núna lét ég það standa á ofninum í nótt og fram til núna, setti það í samband og ekki sló út.

Semsagt, það komið í lag.

Þá er það annað....??

Ég fæ ekki ljós á perurnar.. virðast ekki fá rafmagn. En mér til undrunar þá kemur örlítill ljósbarmi ef og held þéttingsfast utan um peruna á endanum. Hvað gæti það nú verið?

kveðjur
EymarE
jæajæa
User avatar
davidge
Posts: 59
Joined: 01 Mar 2009, 14:59
Location: Hafnarfjörður

Post by davidge »

Það kemur ýmislegt til greina.

Perurnar geta verið farnar, startarnir gætu verið farnir, þú getur prófað að ýta saman fattningunum (bara rétt aðeins ekkert fast).
Ef að þetta eru snúnar fattningar þá getur verið nóg að snúa aðeins meira
Svo gæti líka verið að ballastin sé dáin.
Davíð Geirsson
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Byrja á að skyfta um startara.
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

örugglega ekki perurnar, búinn að skipta þeim.

Hugsaði líka startarar, en það er enginn hægðarleikur að komast að öllu draslinu á þessu ljósi. En jú, maður reynir að rífa þetta einhvernveginn út og tékka.

Þakka fyrir.

p.s. annars er þetta alveg að komast á það stig að ég láti bara rafirkja kíkja á þetta helv. ;)

kveðjur
EymarE
jæajæa
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Hvaða tegund af ljósi er þetta ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Þetta er engin tegund. Bara álkassi með perustæðum, og búið að troða ballestinu inní.

Mér tókst að rífa þetta útur ljósinu, en þar voru engir startarar, bara þetta "ballast" og vírar til að tengja ljósin. Hlýtur þá að vera ballestið....

Þetta ljós var keypt með nýju búri, "aqua rynkar" 450 lítra, með bognu framgleri.

Einhverjar hugmyndir?

kveðjur
EymarE
jæajæa
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Eftir nánari athugun, stendur á litlum hvítum miða á ljósinu. "akva rynkar" fyrir 2x 54 watta perur.. :)
jæajæa
User avatar
davidge
Posts: 59
Joined: 01 Mar 2009, 14:59
Location: Hafnarfjörður

Post by davidge »

Ef að perurnar eru heilar þá þarftu líklega að skipta um ballest.
Passaðu bara að byðja um elektróníska þegar þú kaupir nýja.
Davíð Geirsson
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

Mæli eindregið með Flúrlömpum í HFJ! :D
Minn fiskur étur þinn fisk!
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

veit einhver hvað svona ballest kostar ca. ? fyrir 2x54w...


Eða á kannski einhver svoleiðis í pokahorninu hjá sér, sem kemur ekki til með að nota:)
jæajæa
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

kostar ekki undir 15 Þ ný, það er það sem ég borgaði fyrir mína. Annars á ég eina sem ég keypti fyrir nokkrum mánuðum og er að fara að hætta að nota :P .
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ég keypti ballest um daginn á 2000kr, hun var reyndar í frekar gamalt ljós og því ekki elektrónísk?, þurfti svo ekki að nota hana því það var þéttirinn sem var farinn en ekki ballestin.
Hún var fyrir 2x36W perur ef ég man rétt.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

2x54w kostar svona 4-5þús í flúrlömpum. Fattningar og vírar kosta svo eitthvað smotterí ef þú getur ekki notað þínar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

ja, hringdi í flúrlamba. kostar 4.600 kr. ca.

leiðinlegt að kaupa þetta og svo væri þetta ekki ballestin.....

Var að fá nýjar upplýsingar um ljósið :)

Fyrri eigandi sagði mér að einn góðann veðurdag hafi ljósið bara slokknast allt í einu. En ekkert svona "útsláttarvesen".

Hvort rakinn hafi komið eftir á....
Maður reddar sér allavega nýrri ballest og prófar það. Ef það virkar ekki er ég hættur :)

kveðjur
Eymar

p.s. þakka hjálpina.
jæajæa
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

Ég borgaði 15 Þús . fyrir ca 3 mánuðum það var reyndar með öllu , heilt ljósasett. 2x54W t5 . Keypti það í Flúorlömpum Hafnafirði.
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Já, þetta er bara ballestin.

Það var líka hægt að fá með dimmer, en ég spurði ekki hvað hún kostaði.

Búinn að panta hana, kemur í ljós í kringum 5. jan, hvort þetta var málið :)
jæajæa
Post Reply