Byrjenda-búrið mitt!

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

flott breyting 8)
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Jæja nýtt af mínum slóðum:
Ein planta er steindauð, þegar ég kippti henni upp sá ég að ég hafði væntanlega sett hana of djúpt niður, þetta var Hygrophila difformis.
Á sama tíma færði ég til nokkrar aðrar plöntur sem ég er með og lítur búrið svona út núna (ég og myndavélar eiga greinilega ekki saman)

Image
Ætla að reyna seinna að ná betri myndum, of þreyttur núna

En svo varð fyrst dauðsfallið hjá mér í morgun (fyrir utan rækjurnar sem ég hef ekki séð í langan tíma) þegar ég kom að öðrum skalanum mínum fljótandi í búrinu. Hann hafði reyndar fyrr í vikuni verið með hosu út úr sér með að því leit út kúlum inní, síðan voru kúlurnar horfnar og hosan líka og svo deyr hann! Veit einhver hvað þetta var?

Svo get ég ekki farið í Dýragarðinn án þess að kaupa eitthvað þannig að ég bætti þessum tvem í safnið, nöfnin á þeim væru vel þegin!


Image

Þessi hangir uppvið yfirborðið og virkar stundum dauður :)
Og inní þessum helli er hinn, hlébarður af kattarætt :)

Image
xxx :D xxx
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

þessi efri er african butterfly fish og hinn er synadontis.. ekki alveg viss á undirtegundinni :D annars er þetta virkilega flott búr hjá þér
What did God say after creating man?
I can do so much better
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Kominn tími á myndir hjá mér en þar sem ég finn ekki snúruna úr myndavélinni þá verður það aðeins að bíða.
Ætlaði bara að segja frá því að þegar ég leit á búrið áðan þá starði annar koi-skalinn á mig með þessum sorgaraugum og engin furða því hann var fastur inní gúrkunni! Hafði gefið gúrku sem var orðin uppétin nema hýðið og hann hafði troðið sér þarna inn í forvitni :P Því miður fann ég ekki myndavélina strax og þorði ekki öðru en að losa greyjið strax enda gaffall þarna í gegnum líka. Fannst þetta smá fyndið en hann er ómeiddur greyjið.

Er kominn með kolsýru en fékk mér hana kannski full seint, tvær plöntur að gefast upp hjá mér (hreinlega þoli ekki þegar plöntur hjá mér drepast).
sp. vill anubias vera í skugga? Er semsagt hægt að hafa hann í of miklu ljósi? Fannst ég lesa það einhverstaðar hér á spjallinu.
Annars stefni ég á að losa mig við bláu gúrúana, finst þeir ekki passa í búrið mitt, vill frekar fá mér fleirri tetrur og jafnvel einn pictus kattarfisk.
Lofa myndum um leið og snúran finnst!
xxx :D xxx
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Anubias þarf ekki mikið ljós en skuggi er þó ekki æskilegur til lengdar.
Í miklu ljósi kemur þörungur á blöðin þannig það þarf að finna einhvern milliveg.
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Jæja, það fór þó þannig að skalinn minn sem festist í gúrkunni dó, það sá ekkert á honum en eitthvað hefur hann laskast við þetta, ég náði honum samt ekki úr búrinu því ryksugu-karlinn minn var búinn að éta hann mestallan þegar ég sá hvað hafði orðið um hann, bon-abetít :D

2dögum seinna náði fiðrildarfiskurinn minn að hoppa uppúr búrinu, mér til mikillar gremju! Páfagaukarnir mínir höfðu verið að kroppa upp lokið sem er fyrir auto-fóðrarann og ég ekki að fattað þannig að hann fór sína leið :evil:

Breytti búrinu fyrir nokkru og keypti mér um leið kolsýru-unit frá Vargnum, full seint gert hjá mér, plönturnar að hverfa sem eru ekki auðveldar, en þá er það komið fyrir framtíðarplöntur. Hérna er mynd af búrinu eins og það er í dag.
Image

Skalarnir hafa allaveganna hrygnt einu sinni, náði smá mynd af því.
Image

Svo með nýju ári fer maður að plana næstu skref :D
xxx :D xxx
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Skalinn hefur tæplega drepist á því að festast í gúrkunni. Líklegra að hann hafi drepist og skorðast þar eða verið slappur og fest sig það. Gúrkan er amk ekki orsökin. Það að annar fiskur hafi stokkið uppúr á svipuðum tíma fær mig til að gruna að það sé kominn tími á vatnsskipti í stærri kantinum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Það er ekki langt síðan að vatsskipti urðu. Með gúrkuna þá var auðvitað gaffall stungin í hana til að þyngja hana niðu, var að spá hvort skalinn hefði hugsanleg skaddast af því að skorðast inní gúrkunni með 4spjótum(gaffall).
Fiðrildafiskurinn er mér sagt að sé þekktur stökkvari en fúllt var þetta að sjá ekki að þetta litla lok var ekki á en eins og þeir segja þá hefur annað eins gerst :P
xxx :D xxx
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

voru síðustu 4 vatnsskifti í desember ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Já einu sinni á ári síðustu fjögur árin :lol:
Nei, bara búinn að skipta einu sinni í þessum mánuði, næstu skipti plönuð næstu helgi. Ég skipti út 40-50% á 3-4vikna fresti.
Til nánari útlistunar þá var allt í lagi með skalann þegar hann festist í gúrkunni, og hann var dauður tvem dögum eftir atvikið (veit ekki nákvæmlega hvenær hann dó).
xxx :D xxx
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

SadboY wrote:Já einu sinni á ári síðustu fjögur árin :lol:
Nei, bara búinn að skipta einu sinni í þessum mánuði, næstu skipti plönuð næstu helgi. Ég skipti út 40-50% á 3-4vikna fresti.
Til nánari útlistunar þá var allt í lagi með skalann þegar hann festist í gúrkunni, og hann var dauður tvem dögum eftir atvikið (veit ekki nákvæmlega hvenær hann dó).
Líklega of fá vatnsskipti, ég stend við upphaflega skoðunina mína um vatnsgæðin :)

Mæli með 2x 50% vatnsskiptum á næstu 2-3 dögum, og svo skipta um 50% á 10 daga fresti eða svo eftir það. Líklega bara uppsöfnuð mengunarefni hjá þér vegna of fárra vatnsskipta.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Fór í gær í gæludýrabúðaleiðangur, mér leiðist það ekki :P
Endaði auðvitað á því að kaupa eina plöntu og smá trjábút í Fiskó (auðvitað á afslætti)!
Þegar heim var komið tók ég búrið í gegn, gerði 60% vatnsskipti og saxaði Egeria densa niður eins og ég ætti lífið að leysa, var eitthvað ljót að sjá eftir síðustu fjöldamorð á henni en ætti að fíla sig vel núna.
Tók svo í sundur og færði til plöntu sem ég hef ekki nafnið á (eru tvær hlið við hlið vinstra meginn við miðju) er núna með fjóra afleggjara í búrinu.

Plantan sem ég keypti var (alveg öruglega) Cabomba caroliniana og er þarna fyrir framan tré-spíruna sem ég keypti í leiðinni (sjá mynd)

Image

Íbúalistinn er svona núna:
1stk. Balahákarl
1stk. Rauðuggahákarl
1stk. Cuckoo Synodontis aka. Hlébarðinn :D
2stk. Skalar
2stk. Bláir Gourami
5stk. Svartar tetrur
5stk. Kardinála tetrur
4stk. Keiluklettabarbar (voru jafnvel keyptir því hitt nafnið var svo fyndið, fallegir fiskar samt! Harlequin Rasbora)
3stk. Panda Corydoras
2stk. Pleggar
Tók eftir því um daginn að ég hafði ekki séð Pakistana-bótíuna síðan ég gramsaði í búrinu síðast og færði til nokkra steina og plöntur, hefur væntanlega þrátt fyrir að ég fór varlega lent einhverstaðar á milli, hún var mjög lítil enþá :?

Plöntulistinn: (ekki nógu góður)

Egeria densa
Cabomba caroliniana
Anubias barteri
Echinodorus bleheri
"sú óþekkta"

Ætla að fá mér 2 plöntur í viðbót, væntanlega sverðlilju og síðan einhverja lágvaxna til að fá smá teppi :)

Veit ekki með fiskana, geri lítið í þeim efnum á næstuni nema losa mig við einhverja í staðinn.
xxx :D xxx
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Gleymdi að setja 2sae á síðustu upptalningu og svo skipti ég á bláu gourami fiskunum mínum og á 6 cherry börbum í dag. Búrið orðið rólegra og núna fá kannski skalarnir mínir frið til að koma upp einni hrygningu!

Keypti í gær líka eitt stykki Micranthemum umbrosum og fæ vonandi smá teppi út úr því :)
xxx :D xxx
User avatar
Maris
Posts: 27
Joined: 15 Oct 2009, 00:29
Location: Kópavogur

Post by Maris »

Mjög fallegt búr hjá þér og einn af þeim skemmtilegri þráðum sem ég hef lesið hérna :D Virkilega gaman að lesa búrasögu þína- Lærði heilmikið á því. Það verður gaman að fylgjast með framhaldinu.
Fiskurinn
Posts: 271
Joined: 11 Jun 2007, 12:37

Post by Fiskurinn »

Plantan fyrir framan rótina hægra meginn er Ceratophyllum demersum 'Foxtail'
Plantan sem þú tókst í sundur er líklegast Hygrophila corymbosa

Hérna er fínn linkur til að skoða og lesa um algengar fiskabúra plöntur
http://www.tropica.com/default.asp
Sportið snýst um vatn, Heldurðu vatninu góðu,þá heldurðu lífi í vatninu..!
Post Reply