Albino Sverðdragar

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Albino Sverðdragar

Post by Jakob »

Ég keypti mér par af sverðdrögum fyrir stuttu, skellti kerlingunni í flotbúr, hún gaut á meðan Endlicheri skóflaði karlinum í sig.
Verður áhugavert að sjá hvernig seiðin munu líta út. Ég tók strax eftir því að sum seiðin eru með svört augu á meðan önnur eru með rauð.
Það voru venjulegir sverðdragar með þeim albino svo að þar er skýringin.
Efri mynd, albino seiði, neðri mynd venjulegt seiði. Bæði úr sama goti.
Image
Image

Bera samt venjulegu seiðin samt ekki albino genin?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þessir venjulegu bera albino genin og ættu að skila þeim áfram ef þú parar þau saman eða við aðra með albino gen.

Það er gaman að fá svona blöndu af seiðum þó albinóa sverðragarar fari aðeins í taugarnar á mér.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Vargur wrote: þó albinóa sverðragarar fari aðeins í taugarnar á mér.
Og hví mun svo vera?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

fín mynd af albinoa seiði
albino eiga að vera frekar erfiðir/viðkvæmir í ræktun
en það kemur í ljós hjá þér :)
reyndu svo að láta ekki éta fleiri fiska
frekar aulalegt að setja þetta svona saman til að þetta sé bara étið :?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ekki séns að kerlingin verður étin, passar upp í hvorugan fiskinn.
Endlicheri er 13cm, haldið þið að hann gæti verið í 400L, ég er mest hræddur að 17cm óskarinn reyni að éta hann?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Síkliðan wrote:Ekki séns að kerlingin verður étin, passar upp í hvorugan fiskinn.
Endlicheri er 13cm, haldið þið að hann gæti verið í 400L, ég er mest hræddur að 17cm óskarinn reyni að éta hann?
Drepin eða étin er ekki að sjá mismun :wink:
þú verður aðeins að forgangsraða í búrin ef þú ætlað að rækta eitthvað :?

ekki veit ég hvort Óskarinn komi til með að vera með vindil í kjaftinum fljótlega eftir að Endlicheri fer út í en ein leið til að komast að því er að henda honum útí :shock:
Andri gæti verið með reynslu í þessum málum

þú verður bara að bæta við búrum :lol:
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég veit, nú er komið að því að bæta við búrum, ég er með tómt 160L búr sem að heldur vel vatni, það er ekki lengur pláss hjá pabba, svo búrið yrði að vera hjá mömmu, en sem betur fer búa þau í sömu götu (auðveldara að gefa fiskunum). :lol:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Post Reply