Perur fyrir groðurbur(buið)

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
User avatar
Einval
Posts: 636
Joined: 24 Feb 2009, 18:52
Location: Reykjanesbæ

Perur fyrir groðurbur(buið)

Post by Einval »

Er einhver sem getur sagt mer .hvaða Perur eru bestar fyrir Groðurbur.
eg er með 1 juwel high lite day. se ekki meiri af merkingunni a henni .virðist mað af.hun er allavega bjartari en hin peran sem er fyrir aftan sem sest ekkert af merkingunni.

sumt af groðrinum. er byrjaður að loðna og sverðplanta sem eg er með
er byrjuð að rifna eða tærast sumstaðar a brununum a blöðunum.
svo er bara ekki nogu goður grænn litur a þeim finnst mer half fölar
greyin. :sjúkrabíll: burið er 180 ltr

....Takk fyrir
Last edited by Einval on 04 Sep 2009, 12:34, edited 1 time in total.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

þú gætir fengið þér Gro-lux frá Sylvania og jafnvel bætt við kolsýrukerfi, speglar eru líka ágætir í gróðurbúr.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ertu með T5 eða T8 ?
Það er erfitt að fá T5 gróððurperur í Juwel búrin en speglar og kolsýra geta gert mikið gagn.
User avatar
Einval
Posts: 636
Joined: 24 Feb 2009, 18:52
Location: Reykjanesbæ

fiskabur

Post by Einval »

eg er alveg nyr i þessu fiskastussi. spegla :?: eg held eg verði að fa meiri upplysingar um það..
:?: og annað hvernig ser maður hvort það se t5 eða t8 :roll:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

T5 eru mun mjórri en hinar hefðbundnu T8.
User avatar
Einval
Posts: 636
Joined: 24 Feb 2009, 18:52
Location: Reykjanesbæ

fiskabur

Post by Einval »

ok þessar eru mjoar sem sagt t5 og er það nog i groðurbur :?:
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

Það kemur um 80% meiri Birta af t5 þannig jæa þær eru mjöög góðar í gróðurbúr :D
Minn fiskur étur þinn fisk!
N0N4M3
Posts: 48
Joined: 21 Jan 2010, 17:20
Location: Kópavogur

Post by N0N4M3 »

Ég hef aldrei heyrt töluna 80% nefnda við samanburð á þessum ballöstum, hinsvegar lúmen per watt mismunurinn er í kringum 10 ef ég man rétt, 105lpw á t5 og 95lpw á t8
Perurnar eru hinsvegar minni um sig og gefa hönnuðinum betri kost á að hanna góðann skerm til að endurkasta ljósinu :)
nota bene þegar þið skellið nýrri flúor peru í hafið hana í gangi 24 tíma til að lengja lífstíma hennar :)

undirritaður hefur verið að læra lýsingartækni
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

NON4M3, takk fyrir þessa ábendingu með að hafa perur í gangi í 24 tíma til að lengja líftíma þeirra. Hafði ekki heyrt þetta áður. Reynar eru plöntunörrar yfirleitt að skipta perunum út langt áður en það slökknar á þeim, á ca. 6 mánaða fresti þar sem að birtan frá þeim minnkar talsvert áður en þær springa, en mundi þetta trikk hjálpa með það líka?

Varðandi 80% meiri lýsingu frá t5 vs t8, þá hef ég líka heyrt þetta. Sel það þó ekki dýrara en ég keypti það.

Varðandi lumen, þá skilst mér að þau mæli það ljós sem mannsaugað nemur, sem hefur svo lítið að segja varðandi það hvað plönturnar fíla. Þegar verið er að mæla styrk lýsingar fyrir gróðurbúr, þá hef ég yfirleitt séð að notast sé við lux.

En einval, varðandi spurninguna þína svo við förum ekki alveg út af sporinu. Þá ertu svolítið bundinn með gróðurperur í þessi blessuðu juwel búr. Þeir hjá juwel voru nefnilega það vinsamlegir við gróðurbúraáhugamenn að þeir ákváðu að hafa ekki standard stærð af perum í búrunum sínum, þú getur því ekki keyt hvaða peru sem þig langar í í juwel búrið þitt. Þú þarft að kaupa juwel perur og borga fyrir það juwel verð ;)

Ef þú ert að fara í gróðurinn fyrir einhverja alvöru, þá er spurning hvort það sé praktískara fyrir þig að skipta ballestunum út fyrir standard ballestir.
Post Reply