Vinnu gróðurbúr Malawi

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Vinnu gróðurbúr Malawi

Post by malawi feðgar »

Setti upp 85 lítra búr í vinnunni og var að skella gróður í það á eftir að bæta meira í þegar það er komið betur í gang.
Í búrinu eru 6 kardinálar, 4 einhverjar tetrur man ekki nafnið og 3 ancistur og gróður.
Hristi saman co2 og er með 2 svoleiðis hálfs lítersflöskur.
Er með 2 stk t5 perur og spegla sem ég útbjó inní 250mm rör sem ég sagaði í tvennt.

smá mynd.
Image

Allar tillögur að fleirri íbúum eða gróðri vel þegnar
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Laglegt!! Þetta hefur alveg góðan pótensjal með þessari lýsingu, ég mundi þó athuga með að setja kolýruna í stærri flösku. Eftir því sem það er meira vatn í brugginu, þá lifir framleiðslan lengur. Ástæðan fyrir því að kolsýruframleiðslan hættir er að áfengismagnið í vatninu verður það hátt að það drepur gerið, þetta gerist fyrr ef það er lítið vatn til staðar. (og ástæðan fyrir því að það er betra að nota bruggger heldur en brauðger)
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

er þá verið að nota sömu blöndu bara meira vatn?
en ég er að nota slatta af sykri, 1/2 teskeið matarsóda á móti 1 teskeið brauðger í hálfslíters flösku og hún er að duga ca 1 og 1/2 viku. langar að fá mér co2 kút en tími því ekki hérna í vinnuna en hafa menn ekkert verið að útbúa krana á sodastream kútana er ekki ódýrast að skifta þeim út, spyr sá sem ekki veit.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Veit ekki hvernig þetta er með stærðina á sodastream kútunum.
Hefur þetta dugað í 1 og 1/2 viku ??? Hefur co2 flæðið þá ekki verið orðið frekar lítið síðustu dagana?
Ég held að það væri vel þess virði að gera tilraun með að nota sömu blöndu í 2 eða 1 líters flösku og sjá hvort það endist ekki lengur. Gætir jafnvel stækkað uppskriftina aðeins.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Mér finnst frekar líklegt að gasið sjálft í sodastream kútana sé frekar dýrt, en kútana sjálfa er hægt að fá á allt í lagi verði.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
hossi
Posts: 42
Joined: 09 Sep 2009, 12:23
Location: reykjavík
Contact:

er þetta eikvað til sölu?

Post by hossi »

er þetta til sölu?? :idea:
höskuldur ægir gudmmundsson
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: er þetta eikvað til sölu?

Post by keli »

hossi wrote:er þetta til sölu?? :idea:
Af hverju ætti þetta að vera til sölu? Þetta er ekki inn í smáauglýsingadálknum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

nei þetta búr er ekki til sölu né neitt sem í því er þetta búr er í vinnunni minni mér til dundurs og gamans :D
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Ný mynd

Post by malawi feðgar »

Ein mynd af búrinu gróðurinn dafnar vel, sérstaklega þessi rauða í miðjunni byrjaði með einn lítinn afleggjara og hef varla undan að klippa og planta frá henni.
Image
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
N0N4M3
Posts: 48
Joined: 21 Jan 2010, 17:20
Location: Kópavogur

Post by N0N4M3 »

gerið drepst ekki, það leggst í dvala þegar áfengisprósentan er svona há.
ástæðan fyrir því að túrbógerið getur gerjað upp í svona háa prósentu er að það eru ýmisleg næringarefni fyrir gerið í þessum pakkningum.
Getur sett tómats puré & sítrónusafa í þetta og brauðger og það ætti að gerjast hærra en 14%
User avatar
krusi79
Posts: 59
Joined: 02 Jul 2008, 12:50
Location: RNB

Post by krusi79 »

sæll, lítur mjög vel út hjá þér.

er einmitt að leita mér að plöntu sem vex hratt og lítur vel út, hvað heitir þessi rauða í miðjunni?
250l-Samfélagsbúr
25l-Humar búr
28l-Humar seiði
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

man ekki nafnið á henni fékk hana hjá Andra pogo
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
Post Reply