Fiskaspjall.is umræðuhópur Fiskaspjall.is
Umræður um fiska og vatnadýr
 
 Algengar spurningar (FAQ)Algengar spurningar (FAQ)   LeitaLeita   Listi yfir notendurListi yfir notendur   NotendahóparNotendahópar   NýskráningNýskráning 
 Þín uppsetningÞín uppsetning   Skráðu þig inn til að athuga með einkapóstSkráðu þig inn til að athuga með einkapóst   InnskráningInnskráning 

Síkliður í allri sinni mynd

 
Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð    Fiskaspjall.is umræðuhópur -> Greinar og fræðsla
Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði  
Höfundur Skilaboð
Jakob



Skráður þann: 05 Des 2007
Innlegg: 3018
Staðsetning: 16 ára Mosfelllingur

InnleggInnlegg: Laugardagur 27. Febrúar 2010 0:47    Efni innleggs: Síkliður í allri sinni mynd Svara með tilvísun

Fyrsta grein sem ég skrifa. Um hina sívinsælu fangasíkliðu. Ég bæti síðan smámsaman inn greinum um fleiri síkliður.

Tegund: Amatitlania Nigrofasciata – Convict (ísl: Fangasíklikða) (Nafni var breytt úr Archocentrus Nigrofasciatus árið 2007)

Stærð: Kerlingar verða um 10cm, en karlarnir um 15cm. Karlar hafa sést stærri, eða allt upp í 20cm en það er mjög óvenjulegt og á oftast við um villta fiska.

Búrstærð: 100L búr er góð búrstærð fyrir par, en þeir lifa yfirleitt vandræðalaust í búrum niður í 60L. En til þess að hafa nokkra karla eða nokkur pör saman þurfa fiskarnir að vera í stærra búri 200L+ vegna þess að pörin eigna sér yfirráðasvæði sem geta verið þó nokkuð stór. Sama búrstærð gildir ef að þú vilt hafa aðra fiska með parinu.

Mataræði: Til þess að fá sem besta liti úr fangasíkliðu, sérstaklega kerlingum þá skiptir miklu máli að gefa mikið af mismunandi fóðri, mismunandi gerðir af fóðri og kjötmeti (t.d. rækjur, humar, nautahjörtu). Ef farið er eftir þessu verðlauna fiskarnir þér með því að sýna góða, sterka og fallega liti.

Kyngreining: Að kyngreina convict er auðvelt og mögulegt á ungum fiskum þar sem kerlurnar fá appelsínugulan blett á magann við ungan aldur, þessi blettur getur þó horfið eða minnkað við hrygningu. Karlarnir fá hnúð á höfuðið þegar þeir eldast.

Vatngæði: Það er ekki erfitt að gera fangasíkliðum til geðs þegar kemur að vatnsgæðum, og geta þær sætt sig við slæm vatnsgæði (ekki til lengdar samt). Best er að hafa sýrustigið frekar hátt (Ph:7-8 ), þær hrygna frekar í hörðu vatni en geta einnig vel hrygnt í mjúku vatni. Kjörhitastig er 24-27°C.

Hrygningar: Convict síkliður hrygna yfirleitt á flata steina (keramik pottar eru einnig vinsælir í fiskabúrum). Bæði karlinn og kerlingin sjá um eggin og seiðin og eru fangasíkliður þekktar fyrir að vera góðir foreldrar og geta varið seiði frá fiskum sem eru tvöfalt stærri en þau sjálf. Hrognin eru yfirleitt frá 50-200. Seiðin borða fínmulið fiskafóður eða artemíu.

Afbrigði: Til eru nokkur litaafbrigði af convict, pink, albino og marble. Hegðun er sú sama og öll gilda öll sömu skilyrði við þau. Það hefur reyndar stundum þótt erfiðara að fá þessi afbrigði til að hrygna.


Karlfiskur: Takið eftir löngum uggum og hnúð á höfði.


Kvenfiskur: Takið eftir rúnuðum uggum og appelsínugulum blett.

-----------------------------------------------------------
Myndir í boði: google.com
-----------------------------------------------------------

Óheimilt er að birta þess grein án leyfi höfundar © Jakob A. Axelsson
_________________

Kv. Jakob
Stefni á Heterandia Formosa og Endler guppy ræktun.


Síðast breytt af Jakob þann Sunnudagur 14. Mars 2010 19:17, breytt 2 sinnum samtals
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Fiskurinn



Skráður þann: 11 Jún 2007
Innlegg: 219

InnleggInnlegg: Laugardagur 27. Febrúar 2010 8:31    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Vel skrifuð grein. Wink
_________________
Sportið snýst um vatn, Heldurðu vatninu góðu,þá heldurðu lífi í vatninu..!
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Sýna innlegg frá síðasta:   
Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð    Fiskaspjall.is umræðuhópur -> Greinar og fræðsla Allir tímar eru GMT
Blaðsíða 1 af 1

 
Fara til:  
Þú getur ekki sent inn nýja spjallþræði á þessar umræður
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
Þú getur ekki breytt innleggi þínu á þessum umræðum
Þú getur ekki eytt innleggjum þínum á þessum umræðum
Þú getur ekki tekið þátt í kosningum á þessum umræðum


Powered by phpBB © 2001, 2005 phpBB Group