Er með silvur- og seglmollý. Kerlingin er orðin nokkuð þykk. Spyr eins og fávís. Hvenær er kominn tími til að setja hana í gotbúr?
Ps. Hef bara verið með sikliður sem passa uppá seiðin sjálfar.
Hvenær á að setja ófrískuna í gotbúr?
Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan
-
- Posts: 3
- Joined: 07 Apr 2010, 23:39
- Location: Reykjavík
Seglmolly er það stór að það er á mörkunum að hægt sé að setja í gotbúr en í góðum aðstæðum gengur það.
Tímasetningin getur verið nokkuð á reiki og með tímanum fara reyndir fiskamenn eftir tilfinningunni.
Ágætt byrjendatrikk er að fylgjast með hvort kerla sé orðin felugjörn, haldi sig í gróðri eða við botn búrsins, þá er oftast stutt í got.
Einnig er á gætt að fylgjast með bumbunni, þegar kerla er orðin sérstaklega gild aftan til þannig bumban virðist slétt en ekki ávöl er vanalega stutt í got.