Fiskaspjall.is umræðuhópur Fiskaspjall.is
Umræður um fiska og vatnadýr
 
 Algengar spurningar (FAQ)Algengar spurningar (FAQ)   LeitaLeita   Listi yfir notendurListi yfir notendur   NotendahóparNotendahópar   NýskráningNýskráning 
 Þín uppsetningÞín uppsetning   Skráðu þig inn til að athuga með einkapóstSkráðu þig inn til að athuga með einkapóst   InnskráningInnskráning 

Skipta um fiska

 
Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð    Fiskaspjall.is umræðuhópur -> Almennar umræður
Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði  
Höfundur Skilaboð
Sven



Skráður þann: 20 Maí 2007
Innlegg: 954

InnleggInnlegg: Mánudagur 26. Júlí 2010 19:17    Efni innleggs: Skipta um fiska Svara með tilvísun

Nú er ég svolítið að velta því fyrir mér að skipta um fiska í búrinu hjá mér. Núna er ég með slatta af svartneon í ca. 600 lítra búri sem er fullt af trjárótum og anubias. Ég er svolítið heitur fyrir því að skipta þeim út fyrir haplochromis, ég veit að þeir fíla harðara vatn en ef ég minnka aðeins kolsýruna hjá mér þá ætti sýrustigið að vera í kring um 7 sem ætti nú alveg að sleppa.

Ég geri mér grein fyrir að ég þarf að loka búrinu hjá mér ef ég geri þetta og sennilega taka mosavegginn úr því, er það ekki annars? Mundu þeir ekki rífa allan mosann af?

En þar sem að ég veit ekki mikið um haps (veit þó að þeir heita víst ekki haplochromis lengur), þá væri vel þegið að fá uppástungur af góðri blöndu af tegunudum. Var jafnvel að pæla að hafa þetta bara karlabúr, eitthvað vit í því?

Allar uppástungur og tillögur vel þegnar, er annars erfitt að nálgast Happa, eru þeir mjög dýrir?
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Jakob



Skráður þann: 05 Des 2007
Innlegg: 3018
Staðsetning: 16 ára Mosfelllingur

InnleggInnlegg: Mánudagur 26. Júlí 2010 19:31    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Happar geta farið illa með gróðurinn. Að minni reynslu er það mjög persónubundið hjá fiskum hvort þeir éti/tæti/eyðileggi gróður. En engu síður mjög skemmtilegir fiskar. Þeir eru oft dýrir ef þú kaupir þá í búðum, þá sérstaklega eintök sem eru 10cm+, en ég hef séð þá kosta upp í 6-8þ krónur í þeirri stærð.

Ég skil þig mjög vel Sven að vilja kannski meira spennandi fiska heldur en tetrurnar. En mér finnst frekar mikil synd að breyta búrinu mikið þar sem það er óskaplega fallegt. Ég held að það væri gaman að hafa frekar í búrinu regnboga fiska, endler guppy, corydoras og fleira. En það er allt upp á þér komið.
_________________

Kv. Jakob
Stefni á Heterandia Formosa og Endler guppy ræktun.
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Sven



Skráður þann: 20 Maí 2007
Innlegg: 954

InnleggInnlegg: Mánudagur 26. Júlí 2010 20:30    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Takk fyrir það Síkliða, en ég er nefnilega satt best að segja varla að nenna að halda þessum mosavegg við, það er frekar mikið pain, held að ég láti bara bakhliðina vera svarta og er að spá í að festa frekar bara meiri anubias á netið Smile Þá yrði búrið bara með anubias.

En hvernig er það að fá happa í minni stærðum og er verðið á þeim þá mikið betra, mér finnst persónulega miklu skemmtilegra að fá fiska litla og sjá þá vaxa. Hvernig er það annars með happa og yfirráðasvæði, er mikið mál að vera með nokkra og bæta svo fleiri við seinna?

Varðandi tetrurnar þá er ég mjög hrifinn af mörgum tegunum og var jafnvel að pæla að skipta yfir í kardínála eða rummy nose þar sem að ég er frekar svekktur með svartneoninn að því leiti að þeir eru ekki að hópa sig nógu mikið saman, til að það sé gaman að þeim þá þurfa þær helst að vera í frekar þéttri torfu. Verst við rummy nose er að það er erfitt að rækta þær og mjög dýrt að kaupa stóra torfu. Langar líka svolítið að hafa stærri fiska í svona stóru búri.

Kannski að maður skoði regnbogafiskana eitthvað, en ég væri gjarnan til í að fá ábendingar með einhverjar tegundir af góðum Haps sem væri hægt að verða sér út um á sæmilegu verði.
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Vargur
Umsjónarmaður


Skráður þann: 15 Sep 2006
Innlegg: 7898
Staðsetning: 冰島

InnleggInnlegg: Mánudagur 26. Júlí 2010 20:36    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Hapsar hafa látið gróður í friði hjá mér og láta jafnvel Egeria Densa í friði sem margir minni fiskar tæta niður.
_________________
Hobby herbergið- Opið eftir samkomulagi -
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst Heimsækja heimasíðu sendanda
Gudmundur



Skráður þann: 20 Sep 2006
Innlegg: 1881
Staðsetning: Grindavík

InnleggInnlegg: Mánudagur 26. Júlí 2010 21:25    Efni innleggs: Svara með tilvísun

ég var að skoða eitt 2500 ltr búr sem var fullt af kardinála og síðan var einn stór silver dollar í búrinu sem synti um og fékk tetrurnar til að synda fallega saman í í hóp þar sem dollarinn fór um
vantar þig ekki bara eitt stórt skalapar eða álíka í búrið ?
_________________
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst Heimsækja heimasíðu sendanda
Sven



Skráður þann: 20 Maí 2007
Innlegg: 954

InnleggInnlegg: Mánudagur 26. Júlí 2010 21:35    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Ég reyndi það, er með 4 skala í búrinu, það virðist hafa haft lítil áhrif á þá Sad
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Sven



Skráður þann: 20 Maí 2007
Innlegg: 954

InnleggInnlegg: Miðvikudagur 28. Júlí 2010 18:57    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Fá engar sérstakar tegundir meðmæli frá neinum??
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Jakob



Skráður þann: 05 Des 2007
Innlegg: 3018
Staðsetning: 16 ára Mosfelllingur

InnleggInnlegg: Fimmtudagur 29. Júlí 2010 15:32    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Copadichromis Borley, Haplochromis Jacksoni (ahli), Livingstoni, Fossochromis Rostratus, Dimindiochromis Compressiceps.
_________________

Kv. Jakob
Stefni á Heterandia Formosa og Endler guppy ræktun.
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Gudmundur



Skráður þann: 20 Sep 2006
Innlegg: 1881
Staðsetning: Grindavík

InnleggInnlegg: Fimmtudagur 29. Júlí 2010 20:05    Efni innleggs: Svara með tilvísun

miðað við síðustu myndir sem ég man af búrinu þá eru litlir hópfiskar málið.
fíngerðar rætur og mosi kallar á smáfiska
spurning að reyna að nálgast eitthvað annað en flestir eru með td. pensilfiska einnig gæti verið flott að hafa 40 kuhliála á botninum
eða fara aftur í fortíð og fylla búrið af gotfiskum

50 rauðir platy væru flottir í gróðrinum eða bara bland af litum


20 denisoni væru lika glæsilegir
_________________
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst Heimsækja heimasíðu sendanda
Sven



Skráður þann: 20 Maí 2007
Innlegg: 954

InnleggInnlegg: Fimmtudagur 29. Júlí 2010 21:05    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Takk fyrir það, mér finnst svolítið spennandi að vera með afríkusíkliður í búru fullu af gróðri, verð að skoða þetta svolítið vel þó.

Mér finnst bara þurfa svo svakalega marga fiska til að láta þetta lúkka vel, ég er núna með áá milli 40 og 50 svartneon en þeir líta út fyrir að vera örfáir í þetta stóru búri.

Svo yrði náttúrulega líka algert hell að veiða þá upp úr búrinu, kannski að maður ætti bara að hafa þetta algert community búr, bæta skatta af rauðum platyum oní sem kæmu vel út eins og Gummi bendir á........ sef á þessu, þakka viðbrögðin.
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Vargur
Umsjónarmaður


Skráður þann: 15 Sep 2006
Innlegg: 7898
Staðsetning: 冰島

InnleggInnlegg: Föstudagur 30. Júlí 2010 10:46    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Sverðdragarar kæmu vel út í svona stóru búri.
_________________
Hobby herbergið- Opið eftir samkomulagi -
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst Heimsækja heimasíðu sendanda
Sýna innlegg frá síðasta:   
Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð    Fiskaspjall.is umræðuhópur -> Almennar umræður Allir tímar eru GMT
Blaðsíða 1 af 1

 
Fara til:  
Þú getur ekki sent inn nýja spjallþræði á þessar umræður
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
Þú getur ekki breytt innleggi þínu á þessum umræðum
Þú getur ekki eytt innleggjum þínum á þessum umræðum
Þú getur ekki tekið þátt í kosningum á þessum umræðum


Powered by phpBB © 2001, 2005 phpBB Group