green spotted puffer

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Junior
Posts: 128
Joined: 04 Feb 2009, 17:07

green spotted puffer

Post by Junior »

bara svona upp á gamanið, hefur einhver reynslu af þessum fiskum?
ég er að vinna í að setja upp búr sem ég hafði hugsað mér að setja þessa fiska í.
-Andri
audun
Posts: 228
Joined: 24 Apr 2008, 00:57

Post by audun »

hef átt tvo svona hafði mjög gaman af þeim en þeir þola sama og ekkert. eru ekki með hreistur heldur húð svo "húðsjúkdómar" algengir og mér fannst erfitt að láta þá éta. þarf að hafa smá salt í búrinu en ég endurtek það var mjög gaman af þeim á meðan var og hét.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Gott að hafa felustaði og svo framvegis, og hafa slatta af sniglum fyrir hann að éta. Annars éta þeir flest kjötmeti sem þeim er gefið, en þeir eru frekar viðkvæmir fyrir lélegum vatnsgæðum.

Hér er hægt að finna bókstaflega allt um GSP.
http://www.thepufferforum.com/forum/lib ... d-puffers/
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Junior
Posts: 128
Joined: 04 Feb 2009, 17:07

Post by Junior »

þessi síða er algjör snilld, ég er að hugsa um að byrja með þá í vægu brachis og færa þá með tíð og tíma í full marine. þeir eru víst nokkuð hægvaxta.
-Andri
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég hef átt svona og þetta eru mjög skemmtilegir fiskar. Þeir eru fljótir að þekkja þig og eru alltaf "glaðir". Ekki skemmir krúttilegt útlit heldur fyrir. Það er pínu auka vinna að vera með þá því þeir endast venjulega ekki nema nokkra mánuði í fersku vatni, þeir þurfa helst að vera í hálfsöltu vatni til að dafna vel. Einnig getur mataræðið valdið sumum vandræðum þar sem þeir þurfa reglulega að fá mat með skel (t.d. snigla), og það borgar sig að gefa þeim eins fjölbreyttan mat og maður mögulega getur.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Junior
Posts: 128
Joined: 04 Feb 2009, 17:07

Post by Junior »

segið mér nún eitt, hvernig er þetta með brachis, má ég nota kötlusallt eða er neuðainlegt að hafa eithvað annað?
-Andri
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

Held að það sé betra að nota sjávarsalt :)
Minn fiskur étur þinn fisk!
Post Reply