Fiska noob

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
Jona_Birna
Posts: 2
Joined: 25 Aug 2010, 16:53

Fiska noob

Post by Jona_Birna »

ÉG er búin að eiga 2 skala í ca 2 ár, þeir eru frekar litlir, og eru bara 2 í 60 lítra búri, getur verið að það sé svoldið lítið, en það passar ekkert stærra inn hjá mér :) og var að vona að einhver gæti svarað þessari spurningu..

ég held að annar fiskurinn hafi verið að koma fyrir eggjum eða eitthvað í búrinu, og auðvitað á dæluna! veit ekki hvort fiskurinn sé að reyna koma þeim fyrir á plöntunni eða hvað en einhverra hluta vegna þá enda þessar "kúlur ? " hrogn eða hvað sem þetta er alltaf á dælunni. Þetta hefur gerst 3-4 sinnum áður og í öll skiptin hafa "kúlurnar" verið frekar stórar, og eiginlega hvítar, næstum eins og þær væru loðnar, en núna er kominn ágætis skammtur á dæluna og flestar "kúlurnar" eru glærar, en nokkrar svona alveg hvítar inn á milli, hvað er eiginlega að gerast í búrinu mínu ????

tók eftir því fyrir 2 dögum síðan að annar fiskurinn byrjaði að ýta dælunni (er föst með sogskálum) eitthvað til hliðar og núna er hún skökk með þessum kúlum á ... þetta er alveg mystery fyrir mér. ég hélt að þetta væru 2 strákar! hvað er í gangi ?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Sæl

Skalarnir þínir eru að hrygna. Ef hrognin verða hvít þá eru þau ófrjó. Þegar þau eru orðin loðin þá er kominn sveppur í þau og þau farin að "mygla".


Þetta eru augljóslega ekki 2 strákar :) Gætu hinsvegar vel verið 2 kerlingar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Jona_Birna
Posts: 2
Joined: 25 Aug 2010, 16:53

Post by Jona_Birna »

okei, myndi ég sjá það á glæru hrognunum hvort það komi seyði úr þeim ?
í fyrsta skipti núna eru þeir ekki að éta hrognin... þetta hefur alltaf horfið bara í 10 mínútum hjá þeim þarna í búrinu.. en aldrei verið glært áður, ef þetta eru karl og kerling, myndu þá ekki koma seyði bráðlega ?

með fyrirfram þökk fyrir svar :)
Post Reply